Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 56
5MA5AC5A
Morgun
shind
gefur
gull í
mund
Þetta voru einkunnarorð
tengdamóður minnar
og mannsins míns en ég
hafði ekki lifað eftir
þeirri reglu
Suinir eru þannig gerðir að þeir
framkvæma þegar andinn er yfir
þeim og er ég ein þeirra. En stund-
um kemur það fyrir að andinn kemur yfir
aðra en mig og þá verð ég einungis að
framkvæma eftir bestu samvisku. Og þetta
var einmitt orsökin til þess að við Hans
urðum ósátt. En hið undarlega var að
ástæðan til árekstrarins var einmitt sú hin
sama sem leiddi okkur saman - nefhilega
vekjaraklukkan.
Dag nokkurn kom Hans Philips inn í úr-
averslun hr. Engels, þar sem ég vann, og
setti vekjaraklukku sína í viðgerð. Herra
Engel fór með klukkuna inn á verkstæðið
og athugaði hana. Á meðan beygði Hans
sig niður að búðarborðinu til þess að horfa
á mig. Og ég gat hreint og beint ekki stað-
ist bros þessa hávaxna, ljóshærða pilts
með þennan fallega munn.
Ég veit ekki hvað kom honum til að
hlæja, en það var skemmtilegur, dimmur,
mildur hlátur, eins og einhver væri að kitla
hann í iljarnar.
Þegar hann náði í klukkuna næsta dag,
bauð hann mér í hádegisverð, og frá þeirri
stundu vissi ég að hamingjusól mín var
risin. Hálfu ári síðar giftist ég Hans Philips
og uppgötvaði að þegar sólin reis upp þá
reis einnig Hans Philips, og það var mjög
snemma morguns.
Ég skildi það mætavel að ætlast var til að
Hans kæmi manna fyrstur í vinnuna, vegna
þess að hann var nýr í fyrirtækinu, en að
hann kynni jafnframt vel við það var ofar
mínum skilningi.
Hann er einn af þeim sem stekkur liram
úr rúminu um leið og heyrist í vekjara-
klukkunni. Ég veiti mér þann munað að
flytja fæturna yfir á hlýja staðinn, sem
hann hefur nýlega yfirgefið. Síðan opna ég
vinstra augað ofurlítið og lít á hann. Hann
sveigir sig og teygir, blístrar fjörugt og
54 VIKAN 10. TBL. 1989
falskt, rennir upp gluggatjaldinu með
smelli og birtan flæðir inn. f eikartrénu
fýrir utan syngja fuglarnir og fljúga í leit að
morgunmat.
Ég hef innilega samúð með þeim vesal-
ings ormi, sem hefur farið snemma á fætur,
hnipra mig undir sængina og loka vinstra
auganu aftur. Þá man ég skyndilega eftir
því að það er heilög skylda sérhverrar hús-
móður að senda mann sinn af stað með
kjarngóða máltíð sem undirstöðu og bros-
andi andlit. Og þar með er friðurinn úti, að
því er mig varðar. „Fyrirmyndarhúsmóð-
ir,“ segir Hans, þegar hann er búinn að
troða í sig þessari kjarngóðu fæðu, tekur
mig í arma sína og bætir við: „og Marilyn
Monroe, nákvæmfega rétt biandað saman."
Sannleikurinn er nú annars sá, að ég
nota tækifærið, þegar Hans heidur mér í
örmum sínum, lygni aftur augunum og
bæli niður í mér geispann. Auðvitað gerði
ég mér það Ijóst, að sannleikurinn mundi
koma í ljós fyrr eða síðar, en vildi gera
mitt til þess að það yrði síðar.
Sérstakfega varð mér þetta Ijóst eftir að
við höfðum búið heima hjá foreldrum
Hans nokkra daga, þegar við vorum á leið
heim úr brúðkaupsferðinni. Móðir Hans er
smávaxin og það sem kallað er eljusöm —
það er að segja kona, sem er geislandi af
krafti og starfsgleði og fellur aldrei verk úr
hendi. Orðið „scinna" verkar á hana eins
og vítamínsprauta, sem heldur henni
ávallt starfandi af fullum krafti.
Þegar sama dag sem við komum leiddi
hún mig við hlið sér og sýndi mér allt
þetta stóra gamaldags hús, allt neðan frá
kjallara og upp í kvist. Hún sýndi mér
vöggu Hans og fjölskyldumyndirnar á
veggnum yfir arninum. Allt var þetta dug-
legt fólk með sterklega höku og leit út eins
og það hefði gefið sér bara eitt augnablik
til þess að sitja fyrir hjá Ijósmyndaranum,
svona rétt á meðan hesturinn hafði verið
járnaður eða meðan sultan var að sjóða.
Því næst benti hún á einhvers konar
veggteppi, sem hékk uppi á vegg í ramma
bak við gler. „Þetta saumaði ég sjálf, þegar
ég var nýgift," sagði hún og las rauðu
krosssaumsstafina hátt: „Hvernig notar
litla býflugan sérhverja mínútu á daginn?"
Að vísu hafði ég aldrei eytt tíma í að hug-
leiða hvernig þessi duglega, litla býfluga
vann á daginn, en það hafði tengdamóðir
mín greinilega gert. Hún hafði svarið
reiðubúið í bláum krosssaum: „Morgun-
stund gefur gull í mund.“
Ég uppgötvaði fljótlega, að dagur
Philips-fjölskyldunnar leið áffam í potta-
skrölti og þvottavélahávaða. Frú Philips
var ein af þeim húsmæðrum, sem telja, að
þegar nýr dagur er genginn í garð, verði
að rjúka til og sópa eftir hinn. Ég reyndi
eins og ég gat til þess að læra og setja mig
í spor þessa fólks. Á því hálfa ári, sem við
Hans höfðum verið gift, hafði ég með vís-
indalegri nákvæmni vegið kaffið í litlu raf-
magnskönnuna á hverju kvöldi, til þess að
það væri tilbúið að morgni, og þá þurfti ég
einungis að setja í samband. Ég hafði einn-
ig tekið á mig þær húsmóðurlegu skyldur
Eg skildi það
mœtavel að œtlast
var til að Hans kœmi
manna fyrstur í
vinnuna, vegna þess
að hann var nýr í
fyrirtœkinu, en að hann
kynni jafnframt vel við
það var ofar mínum
skilningi.