Vikan


Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 56

Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 56
5MA5AC5A Morgun shind gefur gull í mund Þetta voru einkunnarorð tengdamóður minnar og mannsins míns en ég hafði ekki lifað eftir þeirri reglu Suinir eru þannig gerðir að þeir framkvæma þegar andinn er yfir þeim og er ég ein þeirra. En stund- um kemur það fyrir að andinn kemur yfir aðra en mig og þá verð ég einungis að framkvæma eftir bestu samvisku. Og þetta var einmitt orsökin til þess að við Hans urðum ósátt. En hið undarlega var að ástæðan til árekstrarins var einmitt sú hin sama sem leiddi okkur saman - nefhilega vekjaraklukkan. Dag nokkurn kom Hans Philips inn í úr- averslun hr. Engels, þar sem ég vann, og setti vekjaraklukku sína í viðgerð. Herra Engel fór með klukkuna inn á verkstæðið og athugaði hana. Á meðan beygði Hans sig niður að búðarborðinu til þess að horfa á mig. Og ég gat hreint og beint ekki stað- ist bros þessa hávaxna, ljóshærða pilts með þennan fallega munn. Ég veit ekki hvað kom honum til að hlæja, en það var skemmtilegur, dimmur, mildur hlátur, eins og einhver væri að kitla hann í iljarnar. Þegar hann náði í klukkuna næsta dag, bauð hann mér í hádegisverð, og frá þeirri stundu vissi ég að hamingjusól mín var risin. Hálfu ári síðar giftist ég Hans Philips og uppgötvaði að þegar sólin reis upp þá reis einnig Hans Philips, og það var mjög snemma morguns. Ég skildi það mætavel að ætlast var til að Hans kæmi manna fyrstur í vinnuna, vegna þess að hann var nýr í fyrirtækinu, en að hann kynni jafnframt vel við það var ofar mínum skilningi. Hann er einn af þeim sem stekkur liram úr rúminu um leið og heyrist í vekjara- klukkunni. Ég veiti mér þann munað að flytja fæturna yfir á hlýja staðinn, sem hann hefur nýlega yfirgefið. Síðan opna ég vinstra augað ofurlítið og lít á hann. Hann sveigir sig og teygir, blístrar fjörugt og 54 VIKAN 10. TBL. 1989 falskt, rennir upp gluggatjaldinu með smelli og birtan flæðir inn. f eikartrénu fýrir utan syngja fuglarnir og fljúga í leit að morgunmat. Ég hef innilega samúð með þeim vesal- ings ormi, sem hefur farið snemma á fætur, hnipra mig undir sængina og loka vinstra auganu aftur. Þá man ég skyndilega eftir því að það er heilög skylda sérhverrar hús- móður að senda mann sinn af stað með kjarngóða máltíð sem undirstöðu og bros- andi andlit. Og þar með er friðurinn úti, að því er mig varðar. „Fyrirmyndarhúsmóð- ir,“ segir Hans, þegar hann er búinn að troða í sig þessari kjarngóðu fæðu, tekur mig í arma sína og bætir við: „og Marilyn Monroe, nákvæmfega rétt biandað saman." Sannleikurinn er nú annars sá, að ég nota tækifærið, þegar Hans heidur mér í örmum sínum, lygni aftur augunum og bæli niður í mér geispann. Auðvitað gerði ég mér það Ijóst, að sannleikurinn mundi koma í ljós fyrr eða síðar, en vildi gera mitt til þess að það yrði síðar. Sérstakfega varð mér þetta Ijóst eftir að við höfðum búið heima hjá foreldrum Hans nokkra daga, þegar við vorum á leið heim úr brúðkaupsferðinni. Móðir Hans er smávaxin og það sem kallað er eljusöm — það er að segja kona, sem er geislandi af krafti og starfsgleði og fellur aldrei verk úr hendi. Orðið „scinna" verkar á hana eins og vítamínsprauta, sem heldur henni ávallt starfandi af fullum krafti. Þegar sama dag sem við komum leiddi hún mig við hlið sér og sýndi mér allt þetta stóra gamaldags hús, allt neðan frá kjallara og upp í kvist. Hún sýndi mér vöggu Hans og fjölskyldumyndirnar á veggnum yfir arninum. Allt var þetta dug- legt fólk með sterklega höku og leit út eins og það hefði gefið sér bara eitt augnablik til þess að sitja fyrir hjá Ijósmyndaranum, svona rétt á meðan hesturinn hafði verið járnaður eða meðan sultan var að sjóða. Því næst benti hún á einhvers konar veggteppi, sem hékk uppi á vegg í ramma bak við gler. „Þetta saumaði ég sjálf, þegar ég var nýgift," sagði hún og las rauðu krosssaumsstafina hátt: „Hvernig notar litla býflugan sérhverja mínútu á daginn?" Að vísu hafði ég aldrei eytt tíma í að hug- leiða hvernig þessi duglega, litla býfluga vann á daginn, en það hafði tengdamóðir mín greinilega gert. Hún hafði svarið reiðubúið í bláum krosssaum: „Morgun- stund gefur gull í mund.“ Ég uppgötvaði fljótlega, að dagur Philips-fjölskyldunnar leið áffam í potta- skrölti og þvottavélahávaða. Frú Philips var ein af þeim húsmæðrum, sem telja, að þegar nýr dagur er genginn í garð, verði að rjúka til og sópa eftir hinn. Ég reyndi eins og ég gat til þess að læra og setja mig í spor þessa fólks. Á því hálfa ári, sem við Hans höfðum verið gift, hafði ég með vís- indalegri nákvæmni vegið kaffið í litlu raf- magnskönnuna á hverju kvöldi, til þess að það væri tilbúið að morgni, og þá þurfti ég einungis að setja í samband. Ég hafði einn- ig tekið á mig þær húsmóðurlegu skyldur Eg skildi það mœtavel að œtlast var til að Hans kœmi manna fyrstur í vinnuna, vegna þess að hann var nýr í fyrirtœkinu, en að hann kynni jafnframt vel við það var ofar mínum skilningi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.