Vikan


Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 47

Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 47
DULFRÆÐI mín var aðeins ein vika. En hvað um það. Út úr bókabúðinni fór alsæl stúlka með stílabókina sína og pennan góða. En til hvers, skipti ekki máli. Henni fannst bara hún hafa höndlað eitthvað, sem yrði henni mikils virði, og myndi skýrast seinna. Og svo um nóttina, þegar ég var búin að eiga yndislegt kvöld með gestrisnum vin- um mínum, finn ég allt í einu ótrúlega sterka löngun til að skrifa. Og þarna um nóttina byrja ég, og sjálfri mér til mikillar undrunar skrifa ég drög að útvarpsleikriti. Síðan skrifaði ég á hverri nóttu, þangað til dvöl minni á ísafirði lauk. Þessu hélt ég áfram á leiðinni heim og losaði með því sjálfa mig við óskiljanlega flughræðslu. Leikrit þetta var síðan flutt í útvarpi, og því ekki furða þótt ég hugsi stundum með þakklæti til Vestfjarða og vina minna þar. Það er alveg Ijóst, að í þessari ferð sköpuð- ust einhver þau skilyrði innra með mér, sem gerðu tákndrauminn að veruleika. Þarna var flíkin komin fram. Síðan liðu mörg ár án þess ég skrifaði nokkuð. Á þessum árum hef ég að vísu flutt erindi víðsvegar um land, en þau voru öll flutt blaðalaust. Svo var það, að ég þurfti í nokkra mán- uði að vera mikið rúmliggjandi, og því fátt hægt að gera sér til afþreyingar annað en lesa eða hugsa. Ekki hvarflaði að mér að skrifa. En svo tók ég smám saman að rifja upp ýmis atvik, sem hent höfðu mig á dulræna sviðinu. Þá datt mér í hug, hvort ekki væri í heilsu- leysinu hægt að stytta sér stundir með því að skrifa eitthvað af þessu niður. Ekki var neitt hugsað um það til hvers það væri, heldur byrjað að vinna þarna í rúminu. Það þarf tæplega að taka það fram að tím- inn bókstaflega flaug áfiram og ég varð undrandi á því hve gaman ég hafði af þess- um skrifum. Ég lít svo á núna, að ég sé að taka við annarri flík, það er að segja, að enn sé draumurinn góði að koma fram. Hvað ger- ist í framtíðinni læt ég ósagt, en rétt er þó að minnast þess, að rithöfundurinn í draumnum lofaði mér fleiri flíkum seinna. Hvað varðar ráðningu móður minnar á þessum draumi, þá sagði hún, að ég myndi skrifa eitt verk nánast strax, enda leið ekki mánuður þangað til fýrstu drög þeirra skrifa urðu til. Auk þess fullyrti móðir mín, að líða myndi þó nokkuð langur tími, þangað til meira yrði skrifað. Það liðu mörg ár og ég var löngu hætt að minnast þessa draums, þegar móðir mín einn daginn segir við mig: ,Jóna, manstu drauminn, sem þig dreymdi áður en þú skrifaðir PÁFAGAUKANA fyrir út- varpið?" Ég skildi hvað hún átti við, en ég hafði þá þegar lesið fyrir hana þó nokkuð af því, sem ég hafði verið að skrifa, áður en það rann upp fyrir henni, að það var draumur- inn um fötin í fangi rithöfundarins, sem þarna var að rætast. Ég er alveg viss um, að í þessum táknræna draumi, löngu fyrir- fram, er eins og búið sé að leggja drög að ákveðnu lífshlutverki, þótt vitanlega fáist ekkert án mikillar fyrirhafhar og þrotlausr- ar vinnu. Eins og þið munið var konan í draumn- um ekki aðeins rithöfundur, heldur líka í ábyrgðarstöðu, sem tengdist almanna heill. Það skýrði móðir mín sem tákn líka og sagði að ég myndi með einhverjum hætti hafa áhrif á líf ókunnugs fólks, og því fylgja mikil og erfið vinna og auk þess ábyrgð. Þetta hefur einnig komið ffarn þannig, að árum saman hef ég með beinum og óbeinum hætti verið áhrifavaldur í lífi ótrúlega margra; fólks sem mér er með öllu óskylt. „Hvað varðar nekt þína í þessum draumi," sagði móðir mín, „er verið að undirstrika, að lífshlutverk þitt er fróbrugðið því, sem venjulegt getur talist.“ „Hvað varðar nekt þína í þessum draumi," sagði móðir mín, „er verið að undristrika, að lífshlutverk þitt er ffá- brugðið því, sem venjulegt getur talist. I gegnum þennan kafla í lífi þínu muntu fara án teljandi áreitni, og ekki vera háð áliti annarra á því lífi sem þú kýst þér.“ Þannig var í stórum dráttum ráðning móður minnar á þessum draumi, skömmu eftir að mig dreymdi hann. Þegar ég lít um öxl þykir mér hún hafa verið furðulega nákvæm í ráðningu hans. Einnig er hugs- anlegt, þar eð hún er forspá og gædd dul- argáfum í óvenjulega ríkum mæli, að for- spárhæfileiki hennar hafi einfaldað henni að ráða táknin, og jafhvel ráðið einhverju um það, sem hún sagði um framtíð mína. Hvort heldur sem er, verður ekki annað sagt en að hún hafi reynst ótrúlega sannspá, og þeir, sem mér eru kunnugir munu vart efast um, að nákvæmar getur varla nokkur manneskja vænst að slíkir hlutir komi fram. Ekki er óeðlilegt að álykta, að ber- dreymi sé hæfileiki, sem sé meira ríkj- andi í vissum ættum en öðrum. í minni fjölskyldu er þessi gáfa mjög áberandi þáttur í fari minna nánustu. Móðir mín tel- ur til dæmis, að sig hafi dreymt flesta mikilsverða kafla Iífis síns. Hún virðist bæði ber og táknrænn dreymandi, og að auki geta ráðið táknmál sinna drauma og einnig annarra. Flest systkina minna hafa draum- gáfu, og eru ýmis ber- eða tákndreymin. Sum geta lesið úr draumum sínum, en þó ekki öll. Undanfarin tvö ár hefur mig dreymt á táknrænan hátt flest það, sem haft hefur af- gerandi áhrif á dagfar mitt þennan tíma. Sjálf hef ég lesið táknmál þeirra drauma, og þeir orðið að þeim veruleika, sem tákn- in gáfu tilefni til að álykta. Mér gekk ekki sérlega vel við það hérna áður fyrr. Ég hygg að þessi hæfileiki hafl smám saman áunnist við endurteknar tilraunir og ef til vill með vaxandi þroska. Auðvitað er alltaf eitthvað sem manni sést yfir, og er það ekki nema eðlilegt. En undanfarin tvö ár virðist mér þó hafa tek- ist að skilja öll aðalatriði rétt. Þeir sem áhuga hafa á því að skoða drauma sína geta á einfaldan hátt þreifað sig áfram til ríkari skilnings á draumlífi sínu. Þá er best að skrifa reglulega niður þá drauma, sem skýrastir eru í huga við- komandi, þegar hann vaknar. Síðan má bera slíkan draum undir fólk, sem maður trúir að hafl vit á slíku, og skoða þær niðurstöður í Ijósi eigin athugana þannig, að samanburður skapist, sem getur opnað gleggri skilning, og jafhvel orðið kveikja að réttri túlkun táknmáls. Vitanlega þarf ekki mikil heilabrot yfir berum draumum, því þeir bera yfirleitt með sér upplýsingar, sem eru augljósar og einfaldar án nokkurr- ar táknrænu. Athugun drauma getur verið mjög at- hyglisverð, og flestir, sem fá áhuga á slíku telja tíma sínum vel til þess varið. Þekking á eigin draumlífi kann að gera fólk ham- ingjusamara og öruggara í mannlegum samskiptum. Sumir halda því jafnvel fram, að draumar sínir hafi létt mótlæti og þyngri byrðar lífsins. Hvað sjálfa mig snertir er ekki vafi á því, að sérkennilegt draumlíf mitt hefur oftar orðið mér styrkur en hnekkir. Hitt er annað, að auðvitað er stundum samfara sterkri vitund um það sem koma skal, tals- verð þjáning. Það þekkja allir, sem búa yfir hæfileikum til framtíðarsýna. En kostir slíkra hæfileika, sé þeim beitt á kærleiks- ríkan og jákvæðan hátt, eru vitanlega miklu fleiri, og því full ástæða til þess að þakka guði slíkar náðargáfur, hvort sem þær eru tengdar ytri eða innri hliðum mannlífsins." Hér lýkur frásögn konu minnar, Jónu Rúnu, af reynslu sinni og þekkingu á eðli drauma. Getur hver sem er Iáð mér að hafa vitnað svona rækilega í þessa reynslu. En þó er það von mín að lesendur telji hana það óvenjulega og merkilega að ým- islegt megi almennt af henni læra um drauma. Eins og lesendur hafa orðið varir við, hafa ráðningar móður Jónu átt ríkan og merkilegan þátt í frásögn hennar. Tel ég því ekki nema sanngjarnt að geta hér að lokum nafhs hennar, sem hingað til hefur ekki verið nefht. Hún heitir Rúna Guð- mundsdóttir. Hún er því tengdamóðir mín, sem ég þekki vel og met mikils, enda er hún auk þeirra hæfileika, sem hér hefur veirð getið mjög andlega þroskuð kona, óeigingjörn og kærleiksrík. 10.TBL. 1989 VIKAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.