Vikan


Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 20

Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 20
FYRR 0(5 MU „Líklega verð ég betri, þegar ég gifti mig. Það verðum við áreiðanlega allar hér í Reykjavík, ef við þá ekki fáum okkur vinnukonu úr sveit.“ Frh. af bls. 18 istar neftia svo. Samkvæmt þessari stöðu minni í þjóðfélaginu hefur náttúrlega ver- ið reynt að troða í mig einhverri menntun. Það hefði verið gert, hvort sem ég vildi eða ekki, en það vildi nú svo vel til, að ég hafði engar aðrar ambitionir en að fara í einhvern skóla og læra þar ákveðinn skammt af bóklegum fræðum, eins og pabbi, mamma og kennararnir vildu. SKÓLAR Ágætt dæmi upp á Reykjavíkurstúlkuna, flnnst ykkur ekki? Þær þyrpast svo í skól- ana, að fólki hefur þótt nóg um og hefur viljað útiloka þær alveg ffá sumum þeirra, vegna hættunnar, sem af þeim leiddi fyrir strákana. Ekki vegna þess, að við röskuð- um sálarró þeirra, heldur af því að við bol- uðum þeim burtu frá menntunarjötunni. En því að vera að reyna að troða í aum- ingja drengina, ef þeir geta ekki staðið okkur á sporði? Því ekki að fela okkur öll þeirra störf á hendur? Jæja! Ég er nú nítján ára, nýbúin að ljúka prófi frá einum af stærstu skólum landsins og er ágætlega að mér í öllum þeim grein- um, sem koma að engu gagni. Um hitt er ekki vert að tala. Vinnu hef ég enga, — en það er nú minn draumur að komast á skrif- stofu, eins og allra sannra Reykjavíkur- stúlkna. Þar er sá Ijóður á, að jafh margar skrifstofur eru ekki til í Reykjavík, eins og það eru margar stúlkur hér, sem langar til að komast þangað og hafa alla kunnáttu til þess, og því miður engin von til þess að það lagist, fyrr en við stúlkurnar höfúm fengið einhver ítök í stjórninni! í hvað ég eyði tímanum, fýrst ég hef ekkert að gera? Jú, ég á náttúrlega að hjálpa til heima. En það fara litlar sögur af húslegum hæfileikum mínum, og ég hef óljósar minningar um púðurdósina skilda eftir á kommóðunni, púðurkvastann á stofúborðinu og bókina, sem ég var að lesa í, áður en ég fór út, skilda eftir á sófanum. En allt er þetta mjög óljóst, enda smámun- ir, sem ég flýti mér að ýta undir hugarskör- ina. Skyldi ég ekki einmitt vera alveg typ- isk í þessu tilliti? Það sýnir, hve miklu meiri aðsókn af Reykjavíkurstúlkum er að öllum öðrum skólum en að Kvennaskólan- um, enda lítur út fyrir að hið háa Alþingi hafi þekkt þennan hæfileika okkar, því það hefúr sett á stofn húsmæðraskóla alls stað- ar annars staðar en í höfuðborginni. Kvennaskólinn er víst ekki talinn hús- mæðraskóli. Þetta getur auðvitað legið í því, að hið háa Alþingi hafi álitið okkur al- veg ferar í þeirri grein, og ef svo er, þá þakka ég því traustið. En á móti þessu mælir, að allar aristokratiskar frúr biðja um vinnukonur úr sveit, en eins og kunn- ugt er tilheyra allar þingmannafrúr aristo- kratíinu, ég vil ekki segja kapitalistum, því að þingmannalaunin eru svo lág, ef engir bitlingar fýlgja. Þetta var nú um mínar kvenlegu dyggðir, sem eins og áður er sagt, eru heldur fáar. Líklega verð ég betri, þegar ég gifti mig. Það verðum við áreiðanlega allar hér f Reykjavík, ef við þá ekki fáum okkur vinnukonu úr sveit. ANDLEGA HLIÐIN En þá er nú það, sem snýr að andlegu hliðinni. Hvernig ávaxta ég mitt andlega pund, síðan ég kom úr skóla? Ég les nú allt- af Familie Journal, Hjemmet og svo nátt- úrlega Vikuna, síðan hún kom. Þar fe ég ýmsar fréttir um hvað gerist út í heimi, t.d. í Hollywood, — annars skal ég taka það ffam, að ég er hætt að safna leikurum. Ég fýlgist Iíka með framhaldssögunum í þess- um blöðum og les smásögurnar, þ.e.a.s. ástarsögurnar, en kriminalsögunum sleppi ég. Svo les ég enska rómana bæði til að æfa mig í enskunni og fylgjast með í bókmenntunum. Pólitík les ég lítið, en fýrirsagnirnar í Mogga og Alþýðublaðinu leg ég náttúrlega alltaf. Mér finnst það al- veg nóg. Svo skoða ég myndirnar af ensku stjórnmálamönnunum, mér þykir Eden sætari en Chamberlain og skil ekkert í því, að Englendingar skuli ekki heldur vilja hann fýrir ráðherra. LES UÓD Þetta er nú óbundið mál, en ég les líka dálítið ljóð. Ég hef miklar mætur á Davíð Stefánssyni. Hann er svo rómantískur og svo hefur mér verið sagt, að hann sé ákaf- lega lyriskur. Ég er svo rómantísk í mér. Það held ég að við séum yfirleitt hérna í Reykjavík. Skyldi það ekki einmitt vera merki um þessa lyndiseinkunn okkar, hvað við erum spenntar fyrir útlendingum eftir því, sem sagt er; en vel getur verið, að þau ummæli um okkur séu aðeins sprottin af afbrýðisemi íslensku karlmannanna. Listrænir hæfileikar mínir eru ekki neitt áberandi, en mér þykir gaman að léttri músik og svo er náttúrlega alltaf gaman að heyra fræga menn spila og sjá þá. Þá held ég að flest sé upp talið, sem get- ur varpað Ijósi yfir andlega eiginleika mína, en þó getur verið að Reykjavíkur- stúlkan hafi þá fleiri og í ríkari mæli. Nema ef kvikmyndaáhugi getur talist til andlegra hæfileika. Mér þykir mjög gaman að fara í bíó og skemmtilegastar þykja mér sögu- legar kvikmyndir, t.d. Rauða akurliljan og dansmyndir með Fred Astaire og Ginger Rogers, sem ég veit aldrei, hvernig á að bera fram, mér til mikillar raunar, því að ekkert er eins kompromitterandi eins og að bera vitlaust fram leikaranafh. Fólk gæti haldið að maður væri vita ómenntaður. SKEMMTANIR Þá er það, hvernig ég eyði tómstundum, eða réttara sagt, hvernig ég skemmti mér, því að eiginlega eru allar mínar stundir tómstundir. Það eru nú t.d. skíðaferðir. Þær iðka ég af miklu kappi. Það gerir hver einasta stúlka, sem vill eitthvað heita hér í Reykjavík. Ég tel auðvitað sjálffi mér trú um, að þetta sé allt af einskærum áhuga fyrir íþróttum og held auðvitað, að ég sé mjög leikin á skíðum, en einstöku sinnum gægir dálítill efi upp kollinum í hug mínum, eikanlega, er ég minnist affeka minna í öðrum greinum íþróttanna, þegar ég var í barnaskóla! Mér þykir einnig mjög gaman að dansa og dansa náttúrlega að- eins vegna dansins sjálfs. Ég vona, að það sé eins fyrir öðrum bæjarsystrum mínum. Vegna dansins fer ég oft á Borgina, en eig- inlega þykir mér hljómsveitin á Landinu betri, en það er oftast penna fólk á Borg- inni á kvöldin. Á eftirmiðdagshljómleikun- um á Landinu er mjög huggulegt fólk. Ég fer einnig töluvert á böll. ÚTLITIÐ Þetta var um skemmtanirnar, og þá er það útlitið, en það er nú mín veika hlið, því að þegar ég tók sjálfa mig sem dæmi upp á typiska Reykjavíkurstúlku, þá gleymdi ég, að ég hef ekki þessa annáluðu Reykjavíkurstúlknafegurð. Ég held samt, þó ég segi sjálf ffá, að ég sé ekki svo mjög afleit, þegar ég er búin að mála mig dálítið, svo hef ég bara penar lappir, — náttúrlega hef ég ekki uppgötvað það sjálf. Ég geng líka bara fikst klædd, eftir því sem ástæður og efni leyfa. Mér þykir mjög gaman að fal- legum höttum og sérstaklega, ef ég get verið dálítið öðru vísi en aðrar. En það er nú erfitt hér í Reykjavík, því undir eins og maður kemur með sérkennilegan hatt, jafnvel þó það sé model, sem kostaði - nei ég sleppi því nú - þár er hálfúr bærinn kominn með eins hatt daginn eftir. Þetta er sérstaklega hvimleitt, þegar kannski besti vinur manns fullyrðir, að hafa séð mann með þessum eða hinum eitthvert ákveðið kvöld. Allir hljóta að sjá, hve al- varlegar afleiðingar þetta getur haft. Nú er ég búin að telja upp alla mína kosti og lesti og á það jafnvel á hættu, að enginn vilji eiga mig fyrir bragðið. Legg ég það undir dóm lesandans, hvort Reykja- víkurstúlkan 1939 er ekki töluvert lík mér, eða ég lík henni. □ 20 VIKAN 10.TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.