Vikan - 18.05.1989, Page 24
inni. Það getur verið óþægileg tilfinning
að sjá vélina á hreyfingu ef maður situr
aftarlega. Við vorum eins og drottningar á
Saga Class, það er eins og að sitja heima í
stofu. Ég vil líka benda öllum þeim 10.000
flughræddu einstaklingum á íslandi á að ef
þeir fara upp í flugvél að láta flugfreyjurn-
ar vita af hræðslutilfinningunni. Þær hafa
mjög mikið að gera, en gefa sér alltaf tíma
til að koma og spjalla við mann og þú
virkilega flnnur fyrir því að þeim er ekki
sama um þig.“
„í flugtakinu leið mér hræðilega, ég
svitnaði í lófúnum og hjartslátturinn hefúr
eflaust náð nokkur hundruð slögum á mín-
útu. Það var ekki fyrr en nokkru eftir flug-
tak sem mér fór að líða betur og þá gat ég
í fyrsta skipti í fjóra daga borðað eitthvað.
Ég þurfti meira að segja að fá tvöfaldan
skammt."
„Eins og brúðkaupsferð“
Þetta var í fyrsta sinni sem þau hjónin
Anný og Óli fara saman tvö í ferðalag.
„Þetta var eins og brúðkaupsferð," segir
Anný. Og um stórborgina sagði hún: „Ég
hefði aldrei trúað því að fátæktin og ríki-
dæmið væru svona samtvinnuð í sömu
borginni. New York er mjög heillandi
borg. Það var gaman að sjá hvar Yoko Ono
býr og við stóðum á stéttinni fýrir utan þar
sem Lennon var myrtur. Þegar við svo vor-
um að borða eitt sinn í hádeginu sat Eric
Clapton við næsta borði og einnig einn
meðlimur Iron Maiden hljómsveitarinnar.
Það versta var að ég mátti ekki taka mynd
af Clapton.
Ég skoðaði margt í New York, meðal
annars Empire State bygginguna og fannst
mér það þrekvirki að fara upp í lyftu, en
svoleiðis farartæki hafði ég ekki notað í
mörg ár.“
Ertu búin að ákveða næstu flugferð?
„Nei, en ég þarf að fara fljótlega til að
nota þessa reynslu. Mig er satt að segja
strax farið að langa upp í flugvél aftur. Ég
veit að ég á eftir að ferðast víða í ffamtíð-
inni og mun njóta þess sem ég hef farið á
mis við. Ég skil það núna að hræðslan var
gersamlega óþörf.
Ég vil að lokum nota þetta tækifæri til að
þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn við
að gera þessa ferð mögulega, ekki síst
Bylgjunni fyrir að hleypa þessum leik af
stað og flugfólkinu sjálfu,“ sagði Anný.
Námskeið fyrir flughrædda
Að sögn Unu Eyþórsdóttur, deildar-
stjóra þjálfúnar og ffæðslu hjá Flugleiðum,
var í vor reynslunámskeið fyrir þá sem
vilja sigrast á flughræðslu og tókst það
mjög vel. Það verður svo haldið almennt
námskeið í haust og verður uppbyggingin
tvenns konar: Fælni þar sem verður fjallað
um hvers vegna fólk er flughrætt og síðar
Qugeðlisfræði, þar sem fjallað er um hvers
vegna flugvélar geta flogið. Námskeiðið,
sem verður 20 klst., endar svo með flug-
ferð til einhvers áætlunarstaða Flugleiða.
Þessi námskeið verða opin öllum sem telja
sig þurfa á þessari aðstoð að halda. □
24 VIKAN 10. TBL. 1989
Anný ásamt Magnúsi Jónssyni flugstjóra í flugstjómarklefanum. „Ég komst að því að
þeim er vel treystandi," sagði Anný eftir að hafa kynnst starfinu frammí.
Fyrir utan Macy’s, sem er eitt af stærri verslunarhúsunum í New York.
Anný og Óli fyrir utan veitingastaðinn
þar sem þau sáu Eric Clapton. Á mynd-
inni til hægri sjást Anný og Valdís fyrir
framan Dakota, þar semjohn Lennon var
myrtur.
DRAUMUR