Vikan - 18.05.1989, Page 31
RAKAGEFANDI
NÆRANDI
STYRKJANDI
HYDRA2
RAKAGEFANDI HÚDMJÓLK
HYDRA 2 er mild húðmjólk sem veitir
húðinni allan þann raka sem hún þarf á
að halda og kemur henni aftur í jafn-
vægi. Yfirborð húðarinnar fær raka sem
hjálpar náttúrulegu varnarlagi hennar
að vera virku. Dýpri lög yfirhúðarinnar
fá einnig raka sem helst í húðinni í allt
að 8 klukkustundir.
Samsetning HYDRA 2 er nýjung. Örfín-
ar magnesíum-agnir-svífa um í fljótandi
léttu kremi. Húðin drekkur mjólkina
auðveldlega í sig og fínu púðuragnirnar
eiga þátt í því að yfirborð húðarinnar
verður mjúkt sem silki.
Berið HYDRA 2 daglega á líkamann.
SOINS SATIN
NÆRANDI LÍKAMSOLÍA
SOINS SATIN er líkamsolía frá Elancyl
sem hefur óvenjulega létta samsetn-
ingu. Hún bætir þurri húð upp skort á
fituefni og skilur eftir örþunna vernd-
andi himnu á yfirborði húðarinnar.
Nýbreytni í léttri samsetningu SOINS
SATIN gerir það að verkum að virku
efnin komast fljótt og örugglega á
áfangastað inn í húðina, þar sem þau
vinna verk sitt við að koma á hárfínu
jafnvægi milli raka og fitu.
Notið daglega og húðin fær aftur fyrri
mýkt og ferskleika.
FERMETE +
STYRKJANDI MEÐFERÐ
Elancyl hefur hannað styrkjandi og
mótandi meðferð, sérstaklega ætlaða
slökum svæðum líkamans eins og
maga, upphandleggjum eða innanlæris.
FERMETE + er frískandi létt hlaup,
sem fer undir eins inn í húðina. Hlaupið
flytur húðinni næringu og orku, sem
gerir vefjum húðarinnar kleift að starfa
eðlilega.
Strax og hlaupið er borið á húðina
finnst hvernig hún verður stinnari. Til
að ná varnlegum árangri er ráðlagt að
nota FERMETE + daglega í þrjár vikur.
Greinileg breyting sóst eftir þennan
tíma, húðin er orðin mýkri og stinnari
og hefur aftur öðlast fyrri þenslu.