Vikan - 18.05.1989, Side 66
Dúskahár
Ertu til í hvað sem er? Hér
er þá ný hugmynd að hár-
greiðslu fyrir þig. Hárið er
fléttað í fjölmargar, agnar-
smáar fléttur og á endana
er fest dúskum. Árangur-
inn verður þá vaentanlega
eitthvað í líkingu við hárið
á stúlkunni á myndinni.
Michael Jacksons
ilmvatn með heilmynd
TEXTI OG MYNDIR:
ACTION PRESS
ÞÝÐING:
BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
Stuttu eftir að mynd
Michael Jacksons Moon-
walker hafði slegið í gegn,
var kynnt á markaðinn ilm-
vatnið „Michael Jackson
Eau de Toilette“. Kynning-
in átti sér stað á lúxushótel-
inu Beau Rivage sem er í
Genf í Sviss.
Margt af þekktasta fólki
Þýskalands var mætt á stað-
inn og meðal gesta var
„Heimsdrottningin" sem er
einnig ungfrú Þýskaland
og heitir hún Susann Stoss.
Það sem er alveg nýtt við
þetta ilmvatn er að á flösk-
unni er mjög sérstök mynd
af hetjunni; heilmynd.
Þannig myndir eru þrívídd-
armyndir sem gerðar eru
með aðstoð geisla. Andlit
Michaels á flöskunni virkar
þá næstum raunverulegt,
aðdáendum hans eflaust til
mikillar ánægju. Vikunni
er ekki kunnugt um það
hvort ilmvatnið er komið á
markaðinn, en þess verður
þá varla langt að bíða.
EXF
5NYRTIMC5
GF.L DE GOMm ,
EXFOLIATl^m
OKrislian Dj0r
>
TOUTF.S peaux
ALL SKINTYPES
TOUTES PEAL’X
all skin types
Hluti af umhirðu húðarinnar þarf að vera hreinsun þar sem
dauðar húðfrumur eru fjarlægðar um leið og óhreinindin.
Exfoliant Rose hlaupið gerir það, auk þess sem það mýkir
húðina.
Húðin skrúbbuð
tandurhrein og
mýkt um leið
TEXTI:
BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
Til að umhirða húðarinnar
væri eins og best yrði á
kosið, þá þyrfti að nota reglu-
lega það sem konur kalla sín á
milli „skrúbbkrem". í Þannig
kremi eru vanalega örlitlar,
sandkenndar örður sem gera
það að verkum að um leið og
húðin er hreinsuð með krem-
inu, þá hreisnast um leið í
burtu allar dauðar húðfrumur.
Exfoliant Rose heitir ný
vörutegund ffá Dior. Hér er
um hlaup að ræða sem ætlað
er öllum húðgerðum. Hlaupið
virkar einmitt eins og umrætt
„skrúbbkrem", en hefúr einnig
aðra virkni.
Auk þess sem hlaupið losar
húðina við dauðu frumurnar
og óhreinindi, þá fær það húð-
ina til að virka sléttari, mýkir
hana og undirbýr þannig að
hún verður móttækilegri fyrir
virkni annarra Dior snyrtivara
— og síðast en ekki síst þá er
gott að nota hlaupið áður en
farið er í sólarfríið því það
undirbýr húðina þannig að
hún tekur betur lit.
Hverjum hæfir Exfoliant
Rose best? í raun öllum kon-
um því að húð sem er mjúk og
ffískleg finnst öllum ákjósan-
leg. Hvenær á að nota það?
Fyrst og fremst reglulega; einu
sinni til tvisvar í viku er hlaup-
ið sett á vott andlitið, sem
áður er búið að fjarlægja allan
farða af. Andlitið er nuddað
létt og síðan er hlaupið þvegið
af með volgu vatni.
Um leið og kornin í ljós-
bleiku hlaupinu gera húðina
tandurhreina, þá mýkist hún af
hreinni olíu sem í hlaupinu er.
í einu vetfangi virkar húðin
því endurnýjuð, mjúk og
áferðarfallegri en áður. □