Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 17
SKEMMTAHIR
- og íög úr fleírí vínsæíum söngleíkjum á
stórsýníngu Hóteí Ísíands
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Aðdáendur söngleikja geta átt ein-
staklega Ijúfa kvöldstund á Hótel
i íslandi en þar rifja úrvals söngvar-
ar, hljóðfæraleikarar og kattliðugir dans-
arar upp brot af því besta úr þekktum
söngleikjum. I hálfan annan tíma rennur
lipurlega í gegn flétta af lögum úr Evitu,
Chess, Hárinu, Jesus Christ Superstar,
West Side Story, Rocky Horror, Tommy,
Grease, Cats og jafnvel Sound of Music.
Kynningar eru í höndum Rósu Ingólfs-
dóttur, sem leikur við hvern sinn fingur.
Bregður sér úr hverjum búningnum á fæt-
ur öðrum og margur karlmaðurinn hrekkur
næstum fram af stól sínum þegar hún
kemur fram í efnislitlum undirkjól svo eitt-
hvað sé nefnt. Húmorinn er aö sjálfsögöu
í lagi og á sinn þátt í þeirri stemmningu
sem ríkir í salnum.
Hugmyndina að stórsýningu þessari
átti Jón Ólafsson Bítlavinur, sem hefur
lengi verið haldinn mikilli ást á söngleikj-
um. Fer hann gjarnan í pílagrímaferðirtil
stórborga heims til að flandra á milli söng-
leikjasýninga. Þegar hann svo hafði feng-
ið grænt Ijós hjá Hótel íslandi fékk hann til
samstarfs við sig þá ágætu Tracy Jack-
son frá New York, en hún hafði áður unnið
með honum að uppsetningu á Hárinu í
Verslunarskólanum.
Hljómsveitina skipa, auk Jóns, Stefán
Hjörleifsson úr Bítlavinafélaginu, allir liðs-
menn Stjórnarinnar og blásararnir Snorri
Valsson og Össur Geirsson að auki. Ein-
valalið, sem skilarsínu hlutverki óaöfinn-
anlega.
Eins eru söngvararnir á meðal þeirra
bestu sem völ er á í dag. Þau Sigga Bein-
teins, Eyjólfur Kristjánsson, Karl Örvars-
son, Andrea Gylfadóttir, Reynir Guð-
mundsson og Cerise Jones, sem kemur
frá Bandaríkjunum.
Sandy, Memory, I don’t know how to
love him, Aquarius og allt aftur til Singing
in the Rain. Það er komið víða við og klárt
mál að allir heyra eitt eða tvö lög úr sínum
uppáhalds söngleik.
Og ekki spillir það fyrir góðri kvöld-
skemmtun að hafa látið það eftir sér að
borða þann Ijúffenga mat sem snillingarn-
ir í eldhúsinu tilreiða undir stjórn Olafs
Reynissonar matreiðslumeistara. □
Tommy, Háríð,
Grease, Evíta,
Cats...