Vikan


Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 31

Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 31
...íslendingar eru bara svona! RA<;A QkRIPAP ...og ég sá í hendingskasti fyrir mér með hryllingi að með svona áframhaldi væri þessari skóbúð alveg trúandi til þess að koma fyrir stórum nuddpotti í versluninni svo viðskiptavinirnir gætu nú slappað al- mennilega af á meðan verið væri að pakka skótauinu inn... Ef eitthvað nýtt kemur á markaðinn hér heima, en það skeður á hverju ári, þá er ekkert sem heitir, enginn telst maður með mönnum nema eiga svo sem eins og eitt ein- tak af tilfellinu eða í svæsnustu tilfellunum, eitt eintak á fjöl- skyldumeðlim, en það getur nú verið ansi teygjanlegt hugtak, þar sem venjuleg ís- lensk fjölskylda getur saman- staðið af svona einum og upp í sex til sjö manns. En hvemig sem það nú er, þá líður mér ekki úr minni sú einkennilega og undurfurðu- lega græðgi sem greip um sig hér á landi fyrir nokkrum árum þegar bláu Clairol-fóta- nuddtækin fóm að sjást í búð- argluggum víða um land. Ég gat ekki betur séð en tryllings- legum glampa brygði fyrir í augum fólks er talið barst að þessari bláu himnasendingu. Fólki fannst einhvem veginn eins og það hefði gripið Guð í fótinn! Tilvalið þótti að staðsetja gripinn fyrir ffaman hæginda- stólinn og setja svo sem eins og einn til tvo lítra af ylvolgu Gvendarbrunnavatni í og duggunarlítið af baðsalti eða öðmm ilmsöltum. Þar næst átti að dýfa þreyttum og þvældum fótunum ofan í og setja í samband. Þá heyrðust dmnur miklar, ekkert ósvipaðar og í ryksugu eða hrærivél og Gvendar- bmnnavatnið fór að krauma og sjóða, ekkert ósvipað því þegar maður stendur hjá Grýtu í Hveragerði sem búið er að setja grænsápu ofan í... nema hvað ekkert gos mynd- aðist. Þó nú ekki væri! Skárri hefði það nú verið bölvaður dónaskapurinn í framleiðendunum að láta sér detta þvílíkt og annað eins í hug og sulla þannig út bæði stofuna og sjónvarpsholið! Nú, en síðan bættist titring- ur við þetta allt saman, ekkert ósvipaður titringnum í Grohe- tækjunum, þannig að það heyrðist ekki mannsins mál fýrir dmnum og frussi. Þar fýrir utan eyddi þetta tæki víst miklu rafmagni, og þó nokkuð margar sögur fóm af blöðmbólgu er hefði stungið sér niður vítt og breitt um landið, því sumir höfðu víst sofnað í öllum herlegheitun- um, vatnið kólnað og kaldan gust leitt upp eftir fótleggjun- um, alla leið upp í allra heilag- asta, að ekki sé nú minnst á þá er hreinlega fengu rafstraum í allri græðginni og óðagotinu. Nei! Clairol-nuddtæki skyldi það vera, hvað sem það kost- aði! Svona gekk þetta um tíma, hvar sem maður var staddur í heimsókn, þá blasti hvarvetna bláa himnasendingin við aug- um, og svei mér þá ef maður rakst ekki einnig á þau undir skrifborðum og sófaborðum á vinnustöðum í matar- og kaffi- tímum. En alveg gekk nú fram af mér þegar ég einn eftirmiðdag rakst á fýrirbærið inni í einni af skóverslunum hér á höfuð- borgarsvæðinu. Hjón komu inn í verslunina, konan var að leita sér að samkvæmisskóm, og á meðan hún grúskaði í hill- unum og mátaði var mannin- um „Veskú“ boðið sæti „ganske pænt“ og að draga af sér bæði sokka og skó, og smeygja fótunum ofan í yl- volgt vatnið! Og ég sá í hendingskasti fyr- ir mér með hryllingi að með svona áframhaldi væri þessari skóbúð alveg trúandi til þess að koma fýrir stórum nudd- potti í versluninni svo við- skiptavinirnir gætu nú slappað almennilega af á meðan verið væri að pakka skótauinu inn í smekklegan pappír með til- heyrandi slaufum og krúsin- dúlli. Síðan myndi þetta þróast svona koll af kolli, og að lokum myndi sundlaug bætast við og að sjálfsögðu sundnámskeið, sem gæti náttúrlega þýtt það að Sundhöll Reykjavíkur og Sundlaugarnar í Laugardal færu í mál, Verslunarmanna- félag Reykjavíkur yrði að sker- ast í leikinn og verslunarleyfið tekið af skókaupmanninum. En svona eru íslendingar! Þeir hreinlega umturnast ef eitthvað nýtt í ætt við bláu raf- væddu himnasendinguna berst hingað til lands. En svo allt í einu einn góðan veðurdag datt allt í dúnalogn! Hrærivéla- ryksugusullumbull - hljóðið, sem fór sigurför um allt ísland á methraða, steinþagnaði! Fólk tók upp fyrri siði og settist fyrir framan sjónvarpið og í matar- og kaffitímum í skótauinu eins og ekkert hefði í skorist. Og nú var annað hljóð komið í strokkinn þegar maður skrapp í heimsókn til kunningjanna, þá blöstu Clairol-fótanuddtækin við aug- um hátt uppi í forstofuskáp, ekki 1 eða 2 heldur 3 eða 4. En þegar þetta æði var geng- ið yfir tók nú ekki betra við, því þá tók „Litli ljósálfurinn" með 7 vatta perunni við, og allir hömuðust sem mest þeir máttu við að lesa uppáhalds- bókina á kvöldin þegar þeir voru komnir upp í, með ljós- álfinn festan við kjölinn á bók- inni, svo betri helmingurinn gæti nú sofið í friði. Það var ekkert verið að hafa áhyggjur af því þótt þessi „álfur" hefði slæm áhrif á sjón- ina. Þetta var „In“, það var heila málið! En nú, þegar þessi orð eru töluð, eru það farsímamir sem hafa tekið völdin og símsvar- arnir og farsímar með sím- svara... Allir eru með sím- svara... vitið þið það, að... Það er best að segja ekki meir! 21.TBL. 1989 VIKAN 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.