Vikan


Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 22

Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 22
KEHM5LA HUÓDSETNING og yfirfœrsla a kvikmyndum, skyggnum og tölvuefni UMSJÓN: MARTEINN SIGURGEIRSSON Ef þú leggur þig augnablik með aug- un aftur og hlustar á öll þau hljóð sem eru í umhverfinu verður þú ef til vill undrandi á því hvað þau eru mörg og margbreytileg. Hljóðnemi myndavélar- innar tekur upp öll hljóð í umhverfinu, hvort sem þau eru æskileg eða ekki. Við sem einstaklingar getum aftur á móti ein- beitt okkur að ákveðnum hljóðum og úti- lokað önnur í dagsins önn. Við frekari hljóðvinnu í þáttagerð reynum við að stjóma upptöku á hljóðinu með lausum stefriuvirkum hljóðnema eða setjum ný hljóð við myndina þar sem það á við. Myndin getur ekki verið hljóðlaus þar sem við viljum sýna rólegt og kyrrt umhverfi. Það virkar hjákátlega, betra er að heyrist tíst í fugli eða niður í lækjarsprænu. Gallar við upptöku Þegar við komum heim að lokinni myndatöku koma oft í ljós gallar á hljóði myndarinnar. Þetta geta verið óþarfa framí köll ffá þeim sem augu myndatökumanns- ins beinast að. Einnig geta verið óþægileg hljóð í umhverfinu, firá umferð eða ís- lensku roki. Þessi hljóð er hægt að þurrka út og setja inn þulartexta, músík eða um- hverfishljóð (leikhljóð). Einnig eru mynd- ir oft hljóðsettar eftir klippingu. Hljóðsetning Lykillinn að hljóðsetningu er takkinn „audio dub“ sem er á vandaðri myndavél- Best er að máta textann sem lesinn er inn, áður en upptaka á hljóðinu hefst. 5. ÞÁTTUR Ljósmyndir er hægt að „skanna" inn á tölvur þar sem bæta má við textum o.fl. sem síðan er yfirfært á myndbandið. Ef þú gerir kápu utan um hylkin verða þau mun eigulegri. um og myndbandstækjum. Þegar við hljóðsetjum tengjum við hljóðnema við „mic“ eða „audio in“ á tækjunum. Næst finnum við staðinn á bandinu þar sem nýtt hljóð á að byrja, ýtum á „play-paus-audio dub“. Tækið er tilbúið til upptöku þegar „paus“takkanum hefur verið sleppt. Nú fer bandið af stað, við sjáum myndina á skján- um og getum lesið inn texta sem passar við myndirnar um leið og allt hljóð, sem fýrir var á bandinu, þurrkast út. Ef þú vilt láta ákveðinn hluta myndarinnar halda upprunalegu hljóði er best að finna byrjun á þeim hluta myndarinnar, setja teljarann á 000 og bakka að þeim stað þar sem nýtt hljóð á að byrja. Síðan hljóðsetur þú þann hluta sem fær nýtt hljóð og fýlgist grannt með teljaranum til þess að stöðva upptök- una í tíma áður en teljarinn kemur á 000. Hljóðblöndun Ef þú átt kost á því að tengja hljóðið við „mixará' getur þú samtímis lesið inn nýtt hljóð og sett inn músík með leikhljóðum. Einfaldara er að lesa inn textann þar sem músíkin kemur firá hátalara rétt við þular- borðið en gæðin verða lakari. Það getur tekið smátíma að prófa sig áfiram svo jafn- vægi verði milli hinna ýmsu hljóða. Sum vandaðri tæki hafa tvær hljóðrásir. Þá er hægt að setja nýtt hljóð inn á aðra rásina sem blandast við hljóðið sem fýrir er. Sá galli er á gjöf Njarðar að ekki er hægt að stýra styrknum á upprunalega hljóðinu. Til þess að leysa þann vanda verður að kópera upprunalega hljóðið yfir á aðra spólu og spila það svo aftur inn á réttum styrk með nýja hljóðinu með því að tengja saman tvö myndbandstæki. 22 VIKAN 21.TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.