Vikan


Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 34

Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 34
LEIKLI5T TEXTI: ÞÓRDlS BACHMANN Stjarna Lethal Weapon I og II talar um frægðina og fylgikvilla hennar. Kynþokkafyllsti maður í heimi? „Nah,“ segir Mel Gibson. „Þetta er sagt um svo að segja alla. Það er bara markaðssetning." Þessi eilífðartán- ingur ætlaði sér aldrei annað en að vera bara einn af strákunum en guðirnir sköp- uðu hann í líki kærasta alls heimsins. Það er augljóst að fullkomnun hans er falin í sæbláum augum, dökkum augnaumbúnaði og þéttum augnahárum en það er jafn augljóst að Mel leggur mikla vinnu í að virka ekki á fólk eins og kvikmyndastjama. Útlit hans minnir meira á pottorm sem búið er að þvo í framan og vatnsgreiða áður en haldið er í sunnudagsíjölskyldu- boð. Það er þetta útlit sem gerir að menn vilja vera bestu vinir hans og konur vilja meira. „Fyrst í stað fannst mér frægðin óþægi- leg,“ segir Mel í matarhléi meðan á töku Lethal Weapon II stendur. „En nú hugsa ég ekki þannig lengur. Ég var sá eini sem fór í hnút og nú er mér fjárans sama. Ég var óöruggur með mig og í mikilli vörn eins og flest ungt fólk er.“ Hann kyngir og lýsir síðan yfir nýjustu sannferingu sinni: „Lyk- ilatriðið er að skemmta sér en ekki að hafa áhyggjur af því hvernig maður kemst af.“ Hann var orðinn eiginmaður og fáðir fyrir þrítugt, margmilljónamæringur og tímaritið People útnefndi hann kynþokka- fyllsta mann í heimi. En Gibson hefur átt sínar erfiðu stundir. Árið 1984 lék hann í fjórum myndum - The Bounty, Mrs. Sofíel, The River og Mad Max Beyond Thunderdome og eitthvað gaf sig hjá hon- um af of mikilli vinnu og álagi. People sendi blaðamenn til Ástralíu þegar hann var að leika í Mad Max III og var Gibson harðorður í þeirra garð. Útkoman var sú að í blaðagreininni, sem fylgdi á eftir, var Mel Gibson er nýbúinn að kaupa hús í Malibu í Kalifomíu fyrir fjölskylduna - sem fer ört stækkandi. Gibson-bömin em orðin fimm talsins. GOSINN IVIEL GIBSON Mel lýst sem skapillum manni sem væri einkar vondur með víni. Leikarinn kallar slíkar sögur nú „þvætting" og það er auðvelt að leggja trúnað á orð hans. Síðan þetta var hefur hann skilað sínum besta leik fram að þessu í myndinni Tequila Sunrise og keypt sér hús í Malibu í Kaliforníu fyrir fjölskylduna sem sífellt fer vaxandi. Gibson trúir ekki á getnaðarvarnir frekar en aðrir sem aldir eru upp í írsk-kaþólsku kirkjunni og þar eð Robyn kona hans er á sama máli eru litlu Gibson-börnin orðin fimm. Robyn segir í hálfkæringi að hann haldi vöðvunum við með því að lyfta ungbörnum. Gibson er sjötti í röðinni af ellefu systkinum og seg- ist ungur hafa lært að deila með öðrum. Fjölskylda hans er í fyrsta sæti hjá honum og hann segir sínar mestu hamingjustund- ir hafa verið þegar börnin komu í heiminn. Svo var það síðla ársins 1986 þegar Gib- son sneri aftur til Hollywood til að leika í Lethal Weapon að hann ákvað að gefa á- fengi upp á bátinn í eitt skipti fýrir öll. í dag segist hann aldrei hafa drukkið mikið. „Ég hef séð fólk hella í sig og fara vel með það. Ég er bara ekki þannig." Hvernig vissi hann þá að hann væri farinn að ofgera sér? „Maður veit það þegar maður dettur á hausinn. En það var auðvelt að hætta. Ég býst við að mig hafi bara ekki langað til að reka mig á lengur." Svo þagnar hann. Eng- in Betty Ford, ekkert mál. Þótt Gibson vinni af eins miklum fítons- krafti nú og hann gerði vandræðaárið 1984 hefur hann þróað með sér óvenju- legt jafhaðargeð hvað varðar líf sitt og starf. Það er sjaldgæft að finna kvikmynda- leikara sem er svo fús til að játa, eins og Gibson gerir, að oft „blöffar maður sig bara í gegnum þetta. Ef hlutfallið er meira af góðum hlutum en slæmum þá er þetta í lagi“. Og þó mörgum viðkvæmum leikaranum finnist hreinlega sársaukafullt að skoða sína eigin frammistöðu finnst Gibson gam- an að sjá sjálfan sig. „Það er ekki sárt. Kannski dálítið kjánalegt. En það getur ekki verið sárt - til þess er það ekki nógu mikilvægt. Sé frammistaðan ekki nógu góð er ekki annað að gera en að sjá til þess að hún verði betri næst.“ Það er á vissan hátt þetta sem gerir Gib- son að jafhgóðum leikara og raun ber vitni — að hann neitar að taka leiklistina alvar- lega. Allt í lagi, en getur hann leikið Hamlet? Því komumst við að bráðlega. Eft- ir að tökum á tveimur næstu myndum hans lýkur ætlar hann að leika hinn ódauð- lega Danaprins fýrir Franco Zeffirelli. Gib- son lofar því að hann muni ekki leika Ham- let í svartri rúllukragapeysu með haus- kúpu í hendi sem er svo sem gott og bless- að ef hann ekki kemur með Mad Max á Helsingjaeyri! En hvemig ætlar Mel Gib- son að ráða við eitt þyngsta hlutverk leikbókmenntanna? Ekkert af því sem hann hefur áður gert á hvíta tjaldinu bend- ir til þess að hann ætti að reyna að takast á við þetta. Hann viðurkennir að það sé svo- lítið ógnvekjandi. „En þú veist hvað gerist taki maður ekki áhættu. Ekkert. Ég ætla að undirbúa mig vel — líkamlega og andlega." Og verði hann sér til skammar? Manni kemur helst í hug það sem Billy litli Kwan segir við Guy Hamilton sem Gibson leikur í Year of Living Dangerously: „Það sem ég kann best við í þínu fari, Guy, er það að þér er nákvæmlega sama.“ Gibson segist sjálfur alltaf hafa skemmt sér vel við tökur og leggur mikið upp úr því. „Ég get ekki verið frjáls og skapandi nema ég sé hamingjusamur svo það skiptir mig miklu máli að líka vel við alla. Ég hef alltaf skemmt mér vel við tökur. Þetta er ekki eins og vinna. Ég finn stundum til sektarkenndar, eins og ég ætti að fá mér fullorðinsvinnu." Hann var orðinn eiginmaður og faðir fyrir þrítugt, hafði hlotið útnefninguna kynþokkafyllsti karlmaður heims - og milljónimar streymdu inn á bankareikn- inginn. 34 VIKAN 21.TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.