Vikan - 19.10.1989, Síða 19
HUC5LEIÐINC5AR
(sem er ímynd hinnar vondu móður) sett
í það hlutverk að fyllast afbrýðisemi út í
Mjallhvíti. Vegna afbrýðisemi reynir síðan
móðirin að losa sig við hana. Eins og áður
segir getur bamið, sem hlustar hugfangið
á söguna, samkennt sig við Mjallhvíti og
upplifað um leið hinar neikvæðu tilflnn-
ingar sem það geymir ómeðvitað í brjósti
sér. Á þann hátt á sér stað tilfinningaleg
útrás, stundum neftid geðlausn. Geðlausn
er úthreinsun og upplifun bældra tilflnn-
inga. Slík reynsla veitir viðkomandi ákveð-
ið frelsi og lausn á sálarflækjum.
Föðurímyndin:
Raggeitin og hetjan
Hlutverk föðurins er tvískipt. Faðirinn
er annars vegar viljalaus aðili og hins veg-
ar bjargvættur. Sú staðreynd að faðirinn
ver dóttur sína ekki fýrir afbrýðisemi jarls-
frúarinnar gerir hann að raggeit. Síðar
meir birtist hann sem hetja. Hann birtist í
gervi veiðimannsins. Hann verður hetja
sem bjargar lífi Mjallhvítar þó að honum
hafi verið skipað að drepa hana í skógin-
um. Á þann hátt brýtur hann í bága við
vilja hinar afbrýðisömu móður en hefúr á
sama tíma ekki bjargað henni til fúlls.
Mjallhvít verður þess vegna að ráða ffam
úr eigin vandamálum. Ástæðan er einfald-
lega sú að vandamál hennar eru persónu-
legs eðlis, af tilfinningalegum og kynferð-
islegum toga spunnin.
Hlutverk dverganna
Sá tími er Mjallhvít eyðir með dvergun-
um táknar það tímabil í ævi barnsins er
það lærir og þroskast, bæði vitrænt og til-
finningalega. Dvergarnir kenna henni
skyldurækni og vinnusemi. Hún tekur að
sér heimilisstörfin sjö daga vikunnar og
lærir fljótt að verða góð húsmóðir eins og
margar ungar stúlkur enn þann dag í dag.
Áður en Mjallhvít hittir dvergana sýnir
hún og sannar að hún hefur öðlast vald á
þörfum oral-stigsins (munnstigsins) með
því að borða aðeins smávegis af hverjum
disk og drekka lítið úr hverju glasi. Þetta
undirstrikar að hún hefur vaxið upp úr
einkennum þessa tímabils og að hún er
farin að hugsa um aðra en sjálfa sig.
Það sem er þó eftirtektarverðast við
dvergana góðu er hversu gott dæmi þeir
eru um lægðarstigið í persónuþroska
barnsins en það er einmitt það tímabil
sem tekur við af ödipusarstiginu í kynferð-
isþróun einstaklingsins. Dvergarnir og
dvöl Mjallhvítar hjá þeim eftir að hún hef-
ur flúið frá stjúpmóður sinni og föður (þ.e.
ödipusarstiginu) einkennist af vinnusemi
og ábyrgðartilfinningu. Dvergarnir vinna
öllum stundum við námugröft í iðrum
jarðar á meðan Mjallhvít er húsmóðirin á
heimilinu. Dvergamir eru þar að auki
gjörsamlega kynlausar verur, þeir njóta
ekki kynlífs, giftast ekki og eignast ekki
börn. Þeir eru með öðrum orðum börn
.ÍÞegar allar óstiir barnsins bafa
iefíió á sý mynd áífkonunnar góÓu,
allar illar ósHir þess líkamnasl í
vondri norn, allur ótti þess orÓinn aÓ
cjrimmum úlfi, allar Hröfur
samiiskunnar aÓ litrum manni sem
fjaci hittir á œiintýraferó sinni og öll
aþrf’Óisemi og reíði orÓin aó skepnu
sem kroppar auqun úr beppinautum
sínum - fpá getur barníó loksins
farið aÖ cjreih úr þverstœhm buga
síns. rÞegar svo er komíÓ eruflœkjur
sálarlífsins ekki lenqur eins
óviháhnlecjar,
barníó lœtur ekki bucjast."
‘Bruno ‘Bcttclíicim
- úr bókinni The Uses of Enchantment.
sem neita að verða fullorðin, verur sem
hafa staðnað á lægðarstiginu og aldrei tek-
ið út fullan kynþroska.
Eplið og lystisemdir holdsins
Það segir sig sjálft að Mjallhvít getur
ekki verið endalaust hjá dvergunum, jafh-
vel þótt þeir séu hjálpsamir og góðir. Hún
verður að verða fúllvaxta og næsta skrefið er
kynþroskaskeiðið. Kynþroskaárin og þó
sérstaklega aðdragandi þeirra og sú tog-
streita sem þeim fylgir er táknuð með
ffeistingum stjúpmóðurinnar sem notar
ýmsar leiðir til þess að tæla hana. Sagan
gefúr í skyn að tilgangur hinnar vergjörnu
stjúpmóður sé að tortíma Mjallhvíti. í raun
og veru er hún að tortíma eða raska ró
lægðartímabilsins, það er að vekja úr
dróma blundandi kynhvöt. Ein af aðferð-
um hennar til að tæla Mjallhvíti er að gefa
henni eitrað epli. Eplið hefur, eins og flest-
ir kannast við, verið tákn fyrir lystisemdir
holdsins. Eplið gegnir þessu hlutverki
hvort sem um er að ræða ástarepli Afr-
ódítu eða viskueplið sem snákurinn
(getnaðarlimur karlmannsins) narraði ofan
í Evu forðum. Með því að borða bita af epli
móður sinnar er hún að bragða þann
ávöxt sem móðir hennar þekkir, það er
kynhneigðina.
Þessi samlíking skýrist enn betur ef
ýmis önnur atriði eru tekin inn í myndina.
Sem dæmi má nefna að sá hluti eplisins
sem Mjallhvít borðaði var rauði hluti þess.
Rauði liturinn er að sjálfsögðu tákn fyrir
blóð, blóð í merkingunni tíðir eða blæð-
ingar. Þegar stúlka hættir að vera einfald-
lega stúlka og missir meydóminn kynnist
hún blóði kynlífsins, það er rauða hluta
eplisins. í upphafi sögunnar eru þessi
tengsl milli blóðs og blæðinga kynnt. Móð-
ir Mjallhvítar, í þeirri útgáfú er við þekkj-
um best, stingur sig á nál og þrír dropar af
blóði falla á snjóinn. Talan þrír er ómeð-
vitað tákn fyrir kynþroska (kynlíf) og kyn-
færi sem standa saman af þremur hlutum
bæði hjá karli og konu. Hérna býr sögu-
maður barnið undú: það tímabil er stúlkur
byrja að fá blæðingar. Höfúndurinn leysir
með þessu ákveðna togstreitu. Kynferðis-
legt sakleysi er táknað með hvítum lit og
kynferðisleg löngun tekur á sig rauðan lit
blóðsins.
Ævintýrið býr barnið undir að sam-
þykkja mjög afdrifaríkan atburð: blæðingu
eins og í tíðum og síðar í samförum þegar
meyjarhaftið er rofið. í upphafi sögunnar
lærir barnið að lítið magn af blóði (þrír
dropar) er undanfari getnaðar, það er
sköpun Mjallhvítar. Barnið lærir þess
vegna að blæðingar eru jákvæðir atburðir
því án þeirra væru ekki til nein börn, ekki
einu sinni það sjálft.
Kistulagningin og
kynferðisleg endurfæðing
Þegar Mjallhvít borðar bita af epli móð-
urinnar fellur hún í dá og liggur sem dauð
væri. Þennan hluta sögunnar má skilja sem
táknrænan umhugsunartíma fyrir Mjall-
hvíti. Hér er um að ræða tíma úrvinnslu,
svefn athafha en ekki tilfinningalegs
uppgjörs. Þegar ungur og myndarlegur
karlmaður á sama reki og Mjallhvít sér
hana í kistunni og kyssir hana kossi ungl-
ingsins vaknar hún af værum blundi.
Mjallhvít vaknar til meðvitundar um sitt
eigið kyneðli. Mjallhvít hefúr loksins fúnd-
ið maka sem er henni samboðinn. Hún
21.TBL. 1989 VIKAN 19