Vikan


Vikan - 19.10.1989, Side 26

Vikan - 19.10.1989, Side 26
DULFRÆÐI ég verð að fara fram." Síðan fóru þau sam- an fram í bakherbergið og fluttu bænir sínar. „Við héldumst í hendur og þegar ég skoðaði hendur mínar voru þær löðrandi í blóði hennar. Stundum fór hún aftur inn í bekkinn og sýndi bekkjarsystkinum sínum hvemig komið var fyrir henni. Og þau stirðnuðu upp af ótta og skelfingu." Fyrstu einkennin fóru að láta til sín taka tveim árum áður. Og síðan gerðist það á hverju ári, þegar páskar tóku að nálgast, að Cloretta tók að kenna þessara furðulega stigmata-einkenna. Stundum voru það bara hendurnar en stundum komu fram á henni öll sex sár Krists: Á höndum, fótum, vinstri síðu og enni. Strax og þetta byrjaði fór móðir Clorettu með hana til læknis. Hann hreinsaði blóðið en fann engin merki sára í höndum hennar og var hún þá send aftur heim. Hún hefur síðan verið margrannsökuð, án þess að hægt væri að finna nokkra eðli- lega ástæðu til þessara blæðinga. Það var með öðmm orðum fjöldi lækna og hvers konar sérfræðinga sem rannsökuðu þessi undarlegu fyrirbæri Clorettu litlu en það eina sem þeir gátu sagt var: „Þetta er undarlegt. Mjög undarlegt." Sérfræðingar hafa borið saman vísinda- lega eðlilegt blóð Clorettu og það bióð sem frá henni rennur þegar blæðingarnar eiga sér stað og kom í ljós að það er sama blóðið. Þegar blætt hefur úr höndum hennar og blóðið þurrkað burt finnst ekk- ert sár, aðeins svolítill bláleitur blettur. Það var tekin kvikmynd af Clorettu strax árið 1974 og líf hennar athugað. Við þá rannsókn kom í ljós að hún hefur verið hamingjusamt barn. Hún er í góðum holdum, broshýr og aðlaðandi, dálítið feimin en hefur þó ekki komist hjá því að njóta þess að ýmsu leyti hvernig þetta furðulega fyrirbæri óskiljanlegra blæðinga Krists hefur vitanlega vakið sérstaka at- hygli á henni. Læknar fullyrða að fjölskylda hennar standi vel saman, þetta séu hlýjar manneskjur og jákvæðar, í góðu jafhvægi tilfinningalega og við ágæta heilsu. Cloretta hafði verið mjög trúuð þegar hún var tíu ára gömul. Lá hún þá stöðugt í lestri Biblíunnar, baðst fýrir á hverju kvöldi og stundum fannst henni sem bæn- um hennar væri svarað. Hún eyddi öllum sunnudögum í kirkjunni og söng í kirkju- kórnum. Viku áður en fýrstu einkennin um blæðingamar gerðu vart við sig sá hún kvikmynd af krossfestingu Krists og leiddi það til talsvert skýrra drauma hjá henni. Má ímynda sér að slíkt hafi haft sterk áhrif á telpu eins og Clorettu. Lifschutz læknir segir að það hafi hent ýmsa að dreyma krossfestingu sína eins og Krists en hvers vegna þetta henti Clorettu væri þó ekki hægt að útskýra. í fimmtán ár biæddi úr höndum hans og fótum Það var í september 1968 sem virtasti Kristsblæðari nútímans, Padre Pio, var Faðir Pio, virtasti Kristsblæðari nútím- ans. Úr höndum hans og fótum hafði stöðugt blaett í fimmtán ár þegar hann lést í september 1968. jarðaður við San Giovanni Rotondo á Suð- ur-ítaliu. Úr höndum hans og fótum hafði þá stöðugt blætt í meira en fimmtíu ár. Þetta hafði leitt til þess að litið var á hann sem „blessaðan" og hafriar voru fyrstu að- gerðir kirkjunnar til þess að gera hann að dýrlingi. Frásagnimar, sem myndast hafa um föð- ur Pio, em óteljandi. Sagt hefiir verið að hann hafi verið gæddur spádómsgáfu. Hann hafi til dæmis verið búinn að segja munki, sem nú ber nafhið Páll II., frá því að hann yrði kosinn páfi áður en til þess kom. Sagt hefur verið að hann hafi unnið flölda kraftaverka með lækningum. Þannig hafi hann gefið ungri stúlku, sem var fædd án lithimnu augans, sjónina, fengið lamaða til að ganga og læknað krabbameins- sjúklinga. Einnig hefur hann fengið viðurkenningu Vatikansins fyrir annan sjaldgæfan hæfi- leika, að hafa sést á tveim ólíkum stöðum samtímis. Hann var að því er virtist í senn og á sama tíma við beð sjúkrar konu í klaustri nokkm og birtist ítölskum her- mönnum í Norður-Afríku. Eins og nærri má geta varð faðirinn svo ffægur af þess- um undmm að fjöldi fólks streymdi stöð- ugt til hans í San Giovanni Rotondo. Stundum beið fólkið dögum saman eftir því að komast til skrifta hjá þessum góða manni. Padre Pio fæddist hjá bændafjölskyldu í Pietralcina nálægt Bevenuto. Hann gekk í reglu Capuchin-bræðra og var þegar orð- inn heilsuveill þegar hann tók vígslu. En brátt fór að fara af honum orð fyrir strang- ar föstur og bænir. Blæðingar Krists komu yfir hann í kap- ellu í San Giovanni Rutundo 20. septemb- Skómir voru stórir því umbúðimar utan um fótasárin vom fyrirferðarmiklar. Klefinn sem hann bjó í í þrjátíu ár af lífi sínu. Úr kirkjunni San Giovanni Rotondo, en þar byrjaði fyrst að blæða úr Padre Pio. Rúm Padre Pio. Skór hans í sýningar- kassa við rúmið. 26 VIKAN 21.TBL. 1989

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.