Vikan - 19.10.1989, Blaðsíða 29
BALLETT
Tilkoma íslenska dans-
flokksins skipti sköpum
Hvencer hófst starfsemi Listdansskóla
Þjóðleikhússins?
„Hún hófet 1952 þegar sjálft Þjóð-
leikhúsið var tveggja ára gamalt. Áður
höfðu verið reknir einkaskólar í tíu til
fimmtán ár þannig að þegar Listdansskól-
inn kom til var í honum fólk sem áður
hafði fengið töluverða þjálfun í einhverj-
um af einkaskólunum. Ég er búin að kenna
við skólann síðan 1964 og hef verið skóla-
stjóri síðan 1977. Til að byrja með var
þetta embætti kallað „ballettmeistari
Þjóðleikhússins“. Það var sá sem stjórnaði
skólanum og setti upp dansatriði í ýmsum
sýningum Þjóðl^ikhússins. Á hverju ári
voru nemendasýningar og yfirleitt á nokk-
urra ára fresti voru settar upp stórar ball-
ettsýningar þar sem glímt var við ífæg
verk. 1973 verður mikil breyting þegar fs-
lenski dansflokkurinn er stofnaður. Fram
að því höfðu efnilegustu nemendurnir allt-
af farið til útlanda og komu ekki til baka
þar sem engir atvinnumöguleikar voru hér
á íslandi. Margt af því fólki er jafhvel enn
starfandi, svo sem Helgi Tómasson, Svein-
björg Alexanders og María Gísladóttir en
þau hafa öll átt glæsilegan dansferil."
Sjpum yfirleitt út
hverjir eiga heima I ballett
Hver eru helstu inntökuskilyrði í List-
dansskólann?
„Við viljum helst ekki fá börnin fyrr en
þau eru orðin níu ára gömul, þannig að
þau séu búin að fá vissan þroska. Síðan eru
það líkamlegir eiginleikar sem hafa mjög
mikla þýðingu fýrir börnin sem dansara.
Þar kemur inn í hvort hlutföllin í líkaman-
um eru tiltölulega góð og hvernig tilfinn-
ingu þau hafa fýrir tónlistinni sem þau
fýlgja í dansinum. Við látum börnin hreyfa
sig þannig að við getum fundið út gæðin
sem eru í hreyfingunum hjá þeim. Við tök-
um fljótt eftir hvort um er að ræða klaufa-
legar hreyfingar eða mjúkar og ljóðrænar
hreyfingar. Oft rennum við blint í sjóinn
með þessum inntökuprófum. Við verðum
bara að finna út þau börn sem komast inn
og vissulega eru ákveðnar formúlur sem
við förum eftir þegar við gerum það. Við
sjáum strax út hvaða líkamar duga í svona
klassískan dans. í raun þurfa bömin að
vera mjög sterk líkamlega til að þola æf-
ingaálagið. Það er líka grundvallaratriði
fyrir dansara að hafa almennt góða heilsu.“
Um leið og aðstaðan batnar
getum við boðið
fjölbreyttari kennslu
Hvemig er náminu háttað í Listdans-
skólanum?
„Hingað til höfum við verið með stig-
skipt nám. Fyrst er það forskólinn sem
yngstu börnin fara í og þau eru bara tvisv-
ar í viku í skólanum. Yngstu börnunum
er bara kenndur klassískur ballett og
eitthvað örlítið annað. í forskólanum fer í
rauninni allur tíminn í að finna út hvort
þau hafi eitthvað í þetta að gera, einnig
hvort þau hafi andlega hæfileika til að geta
tekið öllum þeim aga sem fylgir náminu
og hvort þau láti vel að stjórn. Við reynum
líka að komast að því hvort þau dansa
dansins vegna en ekki kennarans vegna.
Þau verða líka að finna sjálf að það er ekki
verið að skemmta þeim heldur er þetta
erfið vinna. Eftir forskólann fjölgar tímun-
21.TBL.1989 VIKAN 29