Vikan - 02.11.1939, Blaðsíða 6
Bette Davis, bezta kvikmyndaleikkonan, í hlut-
verki sínu „Judith" í kvíkmyndinni „Dark
Victory". Á myndinni fyrir neðan sést hún með
Geraldine Fitzgerald, ung, greind leikkona frá
Gate-leikhúsinu í Dublin, sem leikur einkaritara
Judiths í kvikmyndinni.
BETTE M
bezta kvikmynda-
leikkonan ?
Bette Davis, sem fékk verð-
laun 1935 og 1938 sem bezta
kvikmyndaleikkonan, leikur
nú í nýrri kvikmynd.
D ette Davis er enn vinsælasta kvik-
myndaleikkonan. Hún er ekki beint
falleg, en það er eitthvað við hana, sem
bæði konum og körlum geðjast að. Sam-
kvæmt fregnum erlendra blaða hefir hún
aukið frægð sína í nýju kvikmyndinni
„Dark Victory“.
Þetta er kvikmynd, sem er athyglisverð
vegna þess, að hún endar ekki vel. Venju-
lega eru gerðar slæmar myndir eftir góðum
leikritum, en þessi kvikmynd er eftir leik-
riti, sem gekk stuttan tíma í New York,
og er prýðileg í alla staði. Þetta er mest
að þakka leik Bette Davis.
Leikritið f jallar um unga stúlku, sem er
milljónamæringur og hugsar ekki um ann-
að en veizlur, leikhús og veðhlaup. Þegar
hún hefir kvalizt af höfuðverk í marga
mánuði, játar hún loksins fyrir einkaritara
sínum, að hún sé veik. Einkaritarinn, sem
er ung stúlka, getur fengið hana til að
leita sérfræðings í heilasjúkdómum. —
Læknirinn sér strax, að hún hefir ólækn-
andi sjúkdóm. Hún getur aðeins lifað stutt-
an tíma, en samt getur uppskurður lengt líf
hennar um nokkrar vikur eða mánuði.