Vikan - 16.12.1943, Síða 19
19
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1943
Fjalíræðan
En er hann sá mannf jöldann, gekk
hann upp á fjallið, og er hann var
seztur niður, komu lærisveinamir til
hans. Og hann lauk upp munni sín-
um, kenndi þeim og sagði:
Sælir eru fátækir í anda, því þeirra
er himnaríki.
' Sælir eru syrgjendur, því að þeir
munu huggaðir verða.
Sælir em hógværir, því að þeir
munu landið erfa.
Sælir eru þeir, sem hungrar og
þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir
munu saddir verða.
Sælir eru miskunnsamir, því að
þeim mun miskunnað verða.
Sælir em hjartahreinir, því að þeir
munu Guð sjá.
Sælir eru friðflytjendur, því að þeir
munu Guðs synir kallaðir verða.
Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða
fyrir réttlætis sakir, því að þeirra
er himnaríki.
Sælir eruð þér, þá er menn atyrða
yður og ofsækja og tala ljúgandi allt
illt um yður mín vegna. Verið glaðir
og fagnið,því að laun yðar em mikil
á himninum, því að þannig ofsóttu
þeir spámennina, sem voru á undan
yður.
Þér eruð salt jarðarinnar, en ef
saltið dofnar, með hverju á þá að
salta það ? Það er þá til einskis
framar nýtt, heldur er því kastað
út og það fótum troðið af mönnum.
Þér eruð ljós heimsins; borg, sem
stendur uppi á fjalli fær ekki dulizt.
Ekki kveikja menn heldur ljós og
setja það undir mæliker, heldur á
ljósastikuna, og þá lýsir það öllum,
sem eru í húsinu. Þannig lýsi ljós
yðar mönnunum, til þess að þeir sjái
góðverk yðar og vegsami föður yðar,
sem er í himnunum.
Ætlið ekki, að ég sé kominn til að
niðurbrjóta lögmálið eða spámennina;
ég er ekki kominn til þess að niður-
brjóta, heldur til þess að uppfylla;
því að sannlega segi ég yður; þangað
til himininn og jörð líða undir lok,
mun ekki einn smástafur eða einn
stafkrókur lögmálsins undir lok líða,
unz allt er komið fram. Hver sem
því brýtur eitt af þessum minnstu
boðorðum og kennir mönnum það,
hann mun verða kallaður minnstur
í himnaríki; en hver sem breytir eftir
þeim og kennir þau, hann mun kall-
aður verða mikill í himnaríki.
Því segi ég yður, að ef réttlæti
yðar tekur ekki langt fram réttlæti
fræðimannanna og Faríseanna, kom-
ist þér alls ekki inn í himnaríki.
Þér hafið heyrt, að sagt var við
forfeðuma: Þú skalt ekki morð
fremja, en hver sem morð fremur
verður sekur fyrir dóminum, en ég
segi yður, að hver sem reiðist bróður
sínum, verður sekur fyrir dóminum;
og hver sem segir við bróður sinn:
' *
Afmæli systkina: Ólafur Jónsson, Hvalskeri í Patreksfirði, verður 90 ára
26. des. og Guðrún Jónsdóttir, Vatneyri í Patreksfirði, verður 89 ára 20. des.
Bjáni! verður sekur fyrir ráðinu, en
hver sem segir: Þú heimskingi! á
skilið að fara í eldsvítið. Ef þvi þú
ert að bera gáfu þína fram á altarið,
og þú minnist þess þar, að bróðir
þinn hefir eitthvað á móti þér! Þá
skil gáfu þína þar eftir fyrir framan
altarið og far burt, sæztu fyrst við
bróður þinn, og kom síðan og ber
fram gáfu þína. Vertu skjótur til
sætta við mótstöðumann þinn, meðan
þú ert enn á veginum með honum,
svo að mótstöðumaðurinn selji þig
eigi dómaranum í hendur, og dómar-
inn selji þig þjóninum í hendur og
þér verði varpað í fangelsi. Sannlega
segi ég þér: Þú munt alls ekki kom-
ast út þaðan, fyrr en þú hefir borgað
hinn síðasta eyri.
Þér hafið heyrt, að sagt var: Þú
skalt eklti drýgja hór; en ég segi
yður, að hver sá sem lítur á konu
með girndarhug, hefir þegar drýgt
hór með henni í lijarta sínu. Ef
hægra auga þitt hneykslar þig, þá
rif það út og kasta því frá þér, þvi
að betra er þér, að einn lima þinna
tortímist, en að öllum Iíkama þinum
verði kastað í helvíti. Og ef hægri
hönd þín hneykslar þig þá sníð hana
af og kasta henni frá þér, því að
betra er þér, að einn lima þinna tor-
tímist, en að allur líkami þinn lendi
í helvíti. Það hefir einnig verið sagt:
Hver sem skilur við konu sína, skal
gefa henni skilnaðarskrá. En ég segi
yður, að' hver sem skilur við konu
sína, nema fyrir hórsök, verður þess
v
v
*
*
$
V
V
$
*
V
V
V
V
*
V
v
v
V
v
♦
V
V
V
V
V
V
V
V
v
V
V
>:<
♦
V
V
V
v
V
V
V
General Foods Sales Co. I NC.
NEW YORK
Frá þessu heimsþekkta firma höfum við
venjulega íyrirlsggjöndi:
Bakers Cocoa
Jell-o Búðinga
Minute Gelatine
Minute Tapioca
Log Cabin Syróp
Calumet Gerduft
Post’s Corn Flakes
Post’s Whole Bran
Diamond Borðsalt
Satina Strauvax. /
La France sápuspænir með blákku
Einka-umboðsmenn: ft'
BERNHÖFT Reykjavík.
V
V
kTi
*
$
V
V
*
V
V
V
l>;<
v
V
❖
V
$
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
V
v
V
V
V
v
V
V
V
V
>♦•
V
V
V
V
V
V
y