Vikan


Vikan - 07.03.1991, Síða 19

Vikan - 07.03.1991, Síða 19
BÆTIEFNIN SEM KONUR ÞARFNAST MEST Ertu orkulítil? Þreytt? Uppstökk eða döpur? Færðu oftar kvef upp á síðkastið eða ertu svolítið guggin? Ekki skella skuld- inni á streitu eða of lítinn svefn því vandinn gæti verið sá að þig - svipað og milljón- ir annarra kvenna - vanti eitt eða fleiri þessara lífsnauð- synlegu bætiefna. RÍBÓFLAVÍN Hvers vegna? Það er ekki nóg með að þetta vítamín (einnig kallað B-2 vítamín) hjálpi lik- amanum að breyta fæðu í orku heldur stuðlar það einnig að framleiðslu rauðra blóð- korna og heldur húð og augum heilbrigðum. Þó er staðreyndin sú að aðeins um helmingur kvenna á Vesturlöndum tekur inn ráðlagðan dagskammt af ríbóflavíni. Ofneysla áfengis, sýklalyfið tetrasyklín og lang- varandi matarkúrar við magasári eða sykursýki valda skorti á þessu bætiefni. Hörgulsjúkdómar eru sár í munni, á vörum, húð og kyn- færum. Bestu uppsprettur: Kjöt, fuglakjöt, fiskur, mjólkurafurð- ir, aspas, spínat, egg, maís, heilhveitibrauð. B-6 VÍTAMÍN Hvers vegna? B-6 vítamín (pýridoxín) hjálpar líkamanum að nýta hvítuefni og fitu og stuðlar að því að ónæmis- og taugakerfið starfi mjúklega. B- 6 stuðlar einnig að framleiðslu blóðrauða sem flytur súrefni um likamann auk þess sem það myndar efnaboðberann serótónin, róandi efni í heila. Þó fá 94 prósent allra vestur- lenskra kvenna ekki ráölagða dagskammta. Megrun, áfeng- isneysla og reykingar geta líka valdið skorti sem leiðir til vandamála á borð við þung- lyndi, ógleði, vöðvakrampa og taugabólgu í útlimum. Bestu uppsprettur: Kjúkl- ingabringa, nýru, lifur, svína- kjöt, egg, sojabaunir, heil- hveitiafurðir, hnetur, valhnet- ur, bananar, kartöflur, lárper- ur, lax, túnfiskur. FÓLÍNSÝRA Hvers vegna? Fólínsýra - sem 96 prósent allra vestur- lenskra kvenna fá ekki nóg af - stuðlar að frumuþroska og frumuskiptingu um allan lík- amann. Áfengisneysla, P- pillur, krampalyf og þvagræsi- lyf ganga öll á fólínsýruforða líkamans. Fólínsýruskortur getur valdið niðurgangi og blóðleysi og getur aukið hætt- una á krabbameini. Á með- göngu getur fólínsýruskortur orsakað fæðingargalla eða of lága fæðingarþyngd barns. Bestu uppsprettur: Lifur, eggjarauða, ger (einnig bök- unarvörur er innihalda ger), hveitiklíð, hveitikim, spínat, laufgað grænmeti, appelsínur, appelsínusafi. KALK Hvers vegna? Kalk er best þekkt fyrir þýðingarmikið hlut- verk í uppbyggingu sterkra beina og tanna en það heldur einnig hjartslætti reglulegum, stuðlar að heilbrigðri vöðva- og taugastarfsemi og því að blóð storkni eðlilega. Mögulegt er að kalk sé einnig forvörn gegn háum blóðþrýstingi og ristilkrabbameini. Þó sjá átta af hverjum tíu konum ekki til þess að fæða þeirra innihaldi nægilegt kalk. Meðganga, brjóstagjöf, tíðahvörf, áfeng- isneysla og mikið magn af koffíni geta gert illt verra með því að ganga á kalkforða lík- amans. Sérfræðingar telja að of lítil kalkneysla stuðli að beingisnun. Bestu uppsprettur: Mjólk og mjólkurafurðir, allir ostar, lax, sardínur, sólblómafræ og grænt grænmeti. MAGNÍUM Hvers vegna? Um 84 prósent kvenna fá ekki ráðlagt magn magníums en það hefur hlut- verki að gegna í svo að segja allri mikilvægri líkamsstarfs- semi. Það er ekki nóg með að magníum stuðli að framleiðslu hvítuefna heldur sér það til þess að vöðvar og taugar starfi rétt. Hættan á magníum- skorti er mest hjá fólki í megrun, drykkjufólki og öldr- uðum en magníumskortur get- ur valdið lystarleysi, þung- lyndi, svima, ógleði og önug- lyndi. Bestu uppsprettur: Hnetur, grænmeti, fíkjur, greipaldin, maís, möndlur og sítrónur. JÁRN Hvers vegna? Járn er ómiss- andi frumefni sem myndar blóðrauða og vöðvarauða er bera súrefni um allan líkam- ann. 80 prósent kvenna fá ekki ráðlagða dagskammta járns úr fæði sinu og tíðablæðingar og meðganga ganga á þann járn- forða sem þær hafa. Einnig er hætta á að grænmetisætur, fólk í megrun og aldraðir fái ekki nægilegtjárn. Járnskortur veldur blóðleysi sem aftur veldur súrefnisskorti í vefjum líkamans. Þó aðeins sé um smávægilegan járnskort að ræða getur hann valdið þreytu, fólk verður fölt yfirlitum og fær oftar umgangspestir. Bestu uppsprettur: Lifur, mag- urt kjöt, fuglakjöt, skelfiskur og fiskur, þurrkaðir ávextir, eggja- rauða og grænt grænmeti. SINK Hvers vegna? Sink er ómiss- andi svo ónæmiskerfið haldist heilbrigt, svo að sár grói, sjón haldist góð og fyrir allan þroska æxlunarlíffæra. Þó fá 96 prósent kvenna ekki ráð- lagða dagskammta. Sykur- sjúkir, aldraðir, drykkjufólk, grænmetisætur og fólk með nýrnasjúkdóma er líklegra en aðrir til að líða af sinkskorti. Sinkskortur getur gert fólk næmara fyrir öllum sýkingum og minnkað bæði bragð- og lyktarskyn. Bestu uppsprettur: Rautt kjöt, lifur, egg, ostrur, rækjur, heilkornsafurðir, grænar baun- ir, hnetur. Ráðlagðir dagskammtar: Ríbóflavín 1,3 mg (1,6 mg á meðgöngu, 1,8 mg við brjósta- gjöf). B-6 vítamín 1,6 mg (2,2 mg á meðgöngu og við brjóstagjöf). Fólínsýra 180 míkrógrömm (400 mikrógrömm á með- göngu). Kalk 800 mg (1200 mg á meðgöngu og við brjóstagjöf). Magníum 280 mg (350 mg á meðgöngu og við brjóstagjöf). Járn 15 mg (30 mg á meðgöngu). Sink 12 mg (15 mg á meðgöngu, 19 mg við brjóstagjöf). 5.TBL. 1991 VIKAN 19 TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.