Vikan


Vikan - 07.03.1991, Side 56

Vikan - 07.03.1991, Side 56
TEXTI: HELGA MÖLLER /UÓSM.: RAGNAR TH, SIGURÐSSON UPPAKOMUR A ARGENTINU Argentína steikhús er löngu þekkt fyrir úr- vals nautakjötsrétti og góöan viðurgjörning. Á dögun- um efndu aðstandendur Arg- entínu, nautgripabændur og útvarpsstöðin Bylgjan til keppni meðal hlustenda Bylgj- unnar um nautakjötsrétti, sem kunnugt er. Metþátttaka var f keppninni og á annað hundrað uppskriftir bárust í keppnina. Óskar Finnsson, matreiðslu- maður á Argentínu, valdi tíu bestu réttina til að keppa til úrslita en tíu manna dómnefnd, skipuð ýmsu mætu fólki, bæði fagmönnum í mat- reiðslu svo og leikmönnum og sælkerum, skar úr um hver hljóta skyldi fyrsta sætið og ferð um ísland með Ferða- þjónustu bænda, að verðmæti eitt hundrað þúsund krónur, ásamt feikistórri matarkörfu, í verðlaun. ( hófi á Argentínu miðviku- daginn 20. febrúar sl. voru samankomnar tíu konur, höf- undar réttanna er keppa skyldu til úrslita, ásamt fleira góðu fólki og úrskurður dóm- nefndar var kynntur. Keppendur og réttir þeirra voru sem hér segir: Sigurbjörg Jónsdóttir - nautasteik í ofni, Sigfríður Sophusdóttir - ind- verskur hakkréttur, Valgerður Gunnarsdóttir - nautakjöt í krydddeigi, Margrét Þórðar- Listakokkarnir tíu við hlaðið borð af krásunum góðu. Valgerður Gunnarsdóttir, sem hlaut fyrstu verðlaun, er lengst til hægri. dóttir - smábollur úr nauta- hakki, Ellý Sigfúsdóttir - kjötrúlla með sveppafyllingu, Sigríður María Sigmarsdóttir- steikt nautalifur, Guðrún Jó- hannsdóttir - nautarúlla sæl- kerans, Inga Karlsdóttir-fersk nautatunga, Arndís Hilmars- dóttir - sirloin-steik, Lára Halla Snæfells - nautakjöt í pönnu- kökum. Að loknum Ijúfum söng bóndans og söngvarans Jó- hanns Más Jóhannssonar til- kynnti Ingi Björn Albertsson al- þingismaður, formaður dóm- nefndar, að eftir að dómnefnd hefði setið að áti í tvo klukku- tíma og notið þessara Ijúf- fengu rétta, hvers á fætur öðrum, væri niðurstaða fengin. (fyrsta sæti varð réttur Val- gerðar Gunnarsdóttur, nauta- kjöt í krydddeigi. ( öðru sæti varð nautarúlla sælkerans eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur og í því þriðja uppskrift Sigurbjarg- ar Jónsdóttur, nautasteik í ofni. Ennfremur voru tvær uppskriftir (viðbót verðlaunað- ar. Inga Karlsdóttir hlaut fjórðu verðlaun fyrir ferska nauta- tungu og Arndís Hilmarsdóttir fimmtu verðlaun fyrir sirloin- steik. Þær voru leystar út með vænum matarkörfum, auk þess sem Guðrún Jóhanns- dóttir, sem eins og áður sagði varð í öðru sæti, fékk helgar- w ferð til Dublin í verðlaun. Aö ? verðlaunaafhendingu lokinni > fengu gestir að bragða á góð- | gætinu sem rann Ijúflega niður 33 með afar góðu argentínsku 3 rauðvíni. Réttirnir, sem bárust í sam- keppnina, voru af ýmsum toga margir allnýstárlegir. Við Jónas Þór afhendir Valgerði matarkörfuna. Ingi Björn Albertsson, formaöur dómnefndar, fylgist með ásamt Reyni Jónassyni harmóníkuleikara. £2 n c 1 og o fréttum af einum slíkum sem hljómar vægast sagt sérkenni- lega en við fullyrðum ekkert um hvernig hann bragðast. Aðferðin var eitthvað á þá leið að mintubrjóstsykur og seríós var brætt saman í örbylgjuofni og nautakjöti síðan dýft i. Ein- hverjir kunna ef til vill að vilja reyna þetta. Einn dómnefndarmanna, argentínski matreiðslumaður- inn Neddest Kul, steig á stokk og fullyrti að munurinn á ís- lensku nautakjöti og argent- ínsku væri ekki mikill. (slend- ingar hefðu löngum sóst eftir argentínsku kjöti fremur en því íslenska en gæði hráefnisins væru svipuð. Aðalatriðið væri að fá feitt kjöt til að bragðið væri betra og munurinn væri frekar fólginn í aðferðinni við að glóðarsteikja kjötið. Jónas Þór kjötverkandi tók undir orð Kuls. Hann sagði að bændur ættu að gefa gripum sínum fóður sem inniheldur maís, svo þeir yrðu feitari og bætti því við að kjötverkunin væri einnig mikilvægur þáttur í því að ná fram gæðum. Óskar Finnsson matreiðslu- maður sagði starfsfók sitt hafa farið á námskeið hjá Jónasi Þór til að læra að henda reiður á góðu og slæmu hráefni og sagði að þjónar á Argentínu leiðbeindu gestum staðarins við matarval, eftir því hvaða hráefni þeir ættu best í það og það sinn. Þannig tryggja þeir best að matargestir fari ánægðir heim og komi með tilhlökkun aftur. Hófinu á Argentínu lauk með því að djasspíanistinn Hernán Lugano lék syrpu af frumsaminni djasstónlist við góðar undirtektir gesta. Hann var kominn til landsins ásamt argentínskri hljómsveit sinni í tilefni af argentínskri viku, er haldin var á Argentínu, en spil- aði jafnframt á Púlsinum, nýjum, þægilegum tónlistarbar við Vitastíg. □ Uppskriftir á næstu opnu. ► 56 VIKAN 5. TBL. 1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.