Vikan


Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 25

Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 25
passa eggin sín fyrir mannin- um meö pokana tvo. Samt er hann ekki vondur viö hana. Hún er móöir. Hún passar börnin sín. Því verður að fara varlega um æöarbyggð. Ekki hlaupa eins og eftir Laugaveg- inum til aö fá ekki stöðumæla- sekt. Ef slíkt er gert grípur um sig alend hræösla í eyjunni. Flögrandi hópast þær út á sjó þar sem þær telja sig hólpnar meöan óvanur dúntekjudreng- urinn úr borginni fær dálítinn skammt af uppeldi. Hann lofar aö fara varlega og passa sig á öndunum. Smám saman viröast æöar- kollurnar átta sig á því aö eng- in raunveruleg hætta er á ferðum. Þær draga brottför sína lengur, sitja fastar. Ein og ein neitar meira að segja alfar- ið aö hverfa á brott til að auð- velda dúntekjufólki aögang. Þær ybba bara gogg, nokkrar. Þá er ekki ánnað aö gera en að láta hart mæta hörðu og reyna að festa hönd á önd þannig aö eitthvert vit sé í. Þá láta þær undan ofureflinu, baöa út báöum vængjum, aldeilis ekki hressar yfir ónæö- inu. Heima hjá slíkum skapöndum er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum. Dúnninn allur blautur og gamalt hey fast í honum, rennandi blautt. Það þarf að plokka megnið af því úr og setja dúnpjötluna í pokann. Setja þurrt hey í hreiðrið og eggin áður en sú blóðheita flögrar til baka. Og hér er æðarbóndl í fimmtiu ár, Jón Benediktsson i Höfnum á Skaga, kominn með afrakstur- inn úr þessu hreiðri. Þá er bara að stinga lagðínum i pokann og leita að næsta hreiðri. ÆÐARLADDI? Þær eru reyndar allar mestu friðsemdarskepnur, bara mis- munandi skapstórar eins og gengur. Sumar fela eggin sín alveg í dún, breiða hann meira að segja yfir þau. Aörar eru heldur nískar á fiðrið, nota meira af sinu eða grasi. Og niðri í fjöru eru nokkrar sem nota þara og ýmislegt fleira lauslegt sem þangaö rekur. Ein var með fimm egg í hreiðr- inu sínu og einn stein. Stein- valan sú var nákvæmlega jafnlöng og eggin í hreiörinu, hún var sporöskjulaga, slétt og felld eftir slípun hafsins. Alveg eins og æðaregg fljótt á litið, nema grátt. Eggin eru annars yfirleitt grænleit. Hvað kollan ætlar að gera við steininn er ómögulegt að segja, kannski ungá út steingervingi! Ætli blikanum, karli hennar, hafi þótt afköst kerlu sinnar heldur rýr í fyrra? Og nú sé hún að reyna að gabba hann? Eða var þetta bara grín hjá henni? Æðarkóngur er hann kallaður þessi og stundum Grænlend- ingur þegar hann er kenndur við heimkynni sín. Ákaflega skrautlegur fugl til höfuðsins. Ætli hún sé eins konar Laddi meðal æðarfuglanna? Aldrei að vita. Þannig lauk dúntekjunni þetta árið. Á spaugaranum í hreiðrinu. Það sem eftir situr er þægilegt samneyti við fuglinn sem svo gjöfullega veitir manninum með sér af hlýj- unni. Fteyndar er gengið aftur um eyjuna þegar ungarnir eru farnir úr hreiðrunum en þá er ekki eins mikið af dún í þeim vegna þess að kollurnar sætta sig ágætlega viö heyið. Nú segjum við skilið við þessa fugla aö sinni, sem þrátt fyrir allt eru ágætir. Þegar maður hefur vanist lyktinni. □
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.