Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 64
TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER
LÉTTVÆGARI
KVIKMYNDIR
Greinarhöfund langar
nú til aö greina frá
nokkrum kvikmynd-
um sem eiga það sameiginlegt
að vera í léttari kantinum. Allar
þessar myndir verða bráðlega
sýndar á íslandi.
ÞEGAR ALLT LÉK í LYNDI
í myndinni Folks fáum við að
sjá Tom Selleck skegglaus-
an. En auk hans leika Don
Ameche (Things Change,
Cocoon 1 og 2), Anne
Jackson. Christine Eber-
sole, Wendy Creusen. Leik-
stjóri er kanadíski leikstjórinn
Ted Kotcheff (First Blood,
Switching Channels). Kvik-
myndin Folks er ærslafengin
grínmynd. Myndin fjallar um
bankamanninn John Aldrice
sem lifir áhyggjulausu lífi þvi
allt virðist fullkomiö hjá
Tom Selleck skegglaus og Don
Ameche i ærslamyndinni Folks.
honum. Hann hefur yndi af
vinnunni. Hann á skilningsríka
eiginkonu, hlýðinn hund og
ástkær börn. En einn góðan
veðurdag þá gerist sitthvað.
Já, hvað gæti gerst? Persóna
Toms Selleck missir vinnuna.
Hans eiginn bankareikningi er
lokað. Hundinum hans er
stolið. Og eiginkonan og börn-
in flýja heimilið. Hvað veldur?
Faðir Johns er kominn til að
vera. Hann er elliær og fer sín-
ar eigin leiðir. Hann gerir alla
vitlausa á heimilinu. Myndin
þykir vel heppnuð grinmynd
og ætti að koma flestöllum í
gott skap. Tom Selleck hefur
fengið góða dóma fyrir leik
sinn í myndinni. Tom Selleck
hefur líka sýnt að hann er
ágætis grínleikari. Hver man
ekki eftir honum í myndunum
Three Men and a little Baby
og Three men and a little
Lady?
VELKOMINN TIL
BUZZAW
Tvívegis áður hefur verið
minnst á þessa mynd en
hvað? Allt er þegar þrennt er.
Gamanmyndin Welcome to
Buzzaw er léttvæg mynd.
Myndin státar af frambærileg-
um leikurum eins og Matthew
Broderick (Glory, Freshman,
Torch Song Triology) og Jeffr-
ey Jones en þeir léku báðir
saman í myndinni Ferris Bu-
ellers Day Off. Leikstjóri er
franski leikstjórinn Francis
Veber sem áður hefur gert
ameriska bíómynd sem heitir
Three Fugitives, hún státaði
af leikurum eins og Nick Nolte
og Martin Short (Innerspace,
Clifford).
Matthew Broderick leikur
ungan og snjallan fésýslu-
mann sem leggur leið sína um
skógarhöggsbæ sem heitir
Buzzaw. Við fyrstu sýn virðist
bærinn kyrrlátur og friðsam-
legur en allt kemur fyrir ekki.
Fötum hins snjalla fésýslu-
manns er stoliö. En það er
ekki nóg, bilnum hans, sem er
af BMW-gerð, er líka stolið.
Auk þessa týnir maðurinn
skjölum sem eru afar mikil-
væg, svo mikilvæg að fyrir þau
gætu fengist 160 milljónir
Bandaríkjadala. Myndin grein-
64 VIKAN 15. TBL.1992
1i H /■ £ m' WM \1
m m ’M
A Band-
brjálaður
borgar-
stjóri og
örvænting-
arfullur fé-
sýslumað-
ur I mynd-
inni Wel-
come to
Buzzaw.
T Ágrein-
ingur milli
tveggja
persóna.
Úr mynd-
inni City of
Hope.
ir síöan frá því hvernig unga
manninum tekst til við að hafa
uppi á þessum hlutum aftur.
Meö honum slæst í för borgar-
stjóri Buzzaws sem er ekki
með öllum mjalla. Myndin
verður trúlega sýnd í Laugar-
ásbíói áður en langt um líður.
BORG VONAR
Myndin City of Hope er
dæmisaga sem gerist í stór-
borginni Hudson City sem ekki
ertil í raunveruleikanum. Leik-
stjóri myndarinnar, John
Sayles (Matewan), greinir frá
lífsbaráttu svartra sem hvítra.
Fjallar myndin auk þess um
kynþáttamisrétti sem á sér
stað í þessari ímynduðu
stórborg. Hver man ekki eftir
atburðinum í Los Angeles í
maí síðastliðnum? Þetta er
mynd meö skilaboð. Kvik-
myndagerðarmenn í dag gera
sér grein fyrir áhrifamætti kvik-
mynda og því trúa þeir að
kvikmyndir geti gert samfélag-
inu gagn. Myndin City of Hope
þykir raunsæ og sýnir vel hvað
gæti gerst ef dæmið snerist
við, það er hvítir yröu undirok-
aöir af blökkumönnum eða afr-
ískum Ameríkönum eins og
þeir kallast í dag.