Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 70
Margrét og Kristbjörg Karí Sólmundsdóttir, skólasystir hennar, hafa
viða komið fram og sungið við gítarundirleik milli þess sem Margrét
syngur með Jökulsveitinni.
hún þátt í forkeppni fyrir söng-
keppni framhaldsskóla í MR
og hafnaði í öðru sæti þar. Þá
ma geta þess að hún tók þátt í
kraftakeppni Óskastundar
Stöðvar 2 og komst þar í úrslit
ásamt fjórum öörum.
En Margrét hefur ekki látið
sér nægja að kepþa í söng,
hún kom fram með hljómsveit-
inni Burkna um nokkurt skeið
og nú er hún í Jökulsveitinni,
nýju blúsbandi sem hlotið hef-
ur góöar móttökur.
Ekki er allt enn upp talið,
Margrét hefur komið fram og
sungið við gítarundirleik á
Púlsinum með Kristbjörgu
skólasystur sinni sem söng
bakrödd í sigurlaginu i vetur.
Meðal áheyrenda á Púlsinum
var blúsarinn Pinetop Perkins
og fór hann á eftir mjög lof-
samlegum orðum um söng
Margrétar.
Þær Margrét og Kristbjörg
hafa komið víðar fram saman,
meðal annars á árshátíðum
MR og fleiri uppákomum þar
og þá með hinum bakröddun-
um úr söngkeppni framhalds-
skóla. Þá má geta þess að
Margrét hefur aflað sér vasa-
Frammistaða Margrétar á Púls-
inum hefur vakið aðdáun eins
og meðfylgjandi Morgunblaðs-
auglýsing ber með sér.
peninga um allnokkurt skeið
með því að leika dinnertónlist
á píanó. Einnig hefur hún spil-
að á jólaböllum barnaheimila
og þá gjarnan með föður
sínum.
Margrét er ekki sú eina í fjöl-
skyldunni sem hefur áhuga á
tónlist, öðru nær. Fjölskyldu-
band gæti þess vegna verið á
leiðinni, að hennar sögn. Faðir
hennar, Sigurður Björgvins-
son, hefur verið í tónlistinni frá
því hann sleit barnsskónum
og spilað með hinum ýmsu
danshljómsveitum. Amma
Margrétar spilaði og söng á
böllunum í Keflavík í „den“,
bræðurnir spila á píanó og gít-
ar og litla systir er farin að
syngja, aðeins fimm ára gömul
- þó feimni hái þeirri litlu enn
sem komið er.
Margrét gerði hlé á píanó-
námi sínu er hún tók við for-
mennsku Herranætur MR síð-
astliðinn vetur. Píanónám
hafði hún þá stundað í ellefu
ár. Næsta vetur hyggst hún
taka upp þráðinn að nýju og
þá hefur hún einnig í hyggju
að hefja söngnám en hún hef-
ur aldrei farið í söngtíma ef frá
eru skildar æfingar hjá Guð-
finnu Dóru þegar hún söng
með skólakór Garðabæjar. í
nánustu framtíð langar Mar-
gréti að komast til söngnáms í
Frakklandi eða á Ítalíu.
Þegar Margrét var spurð
hvort hún léki á fleiri hljóðfæri
en píanó kom löng þögn. Síð-
an viðurkenndi hún að hún
hafði ef til vill eytt fullmiklum
tíma í að fikta við gítarinn þeg-
ar nær hefði verið að liggja yfir
skólabókunum þegar prófin
stóðu yfir. Áður hafði hún öðru
hverju gripið í gítarinn og þá
spilað Tvær litlar mýs sem
amma hennar hafði kennt
henni. Nú er hún farin að geta
spilað eitthvað fleira.
Svo er það fiðlan. Margrét
lærði á fiðlu í tvö og hálft ár og
spilaði þá í barnaóperunni
Nóaflóðinu en þar voru það
aðeins börn sem sáu um tón-
listarflutninginn. Kveðst hún
stolt af þeirri þátttöku.
Ballett er meðal þess sem
einnig hefur komist á afreka-
skrá Margrétar. Hann stundaði
hún af miklum krafti fyrir tveim-
ur árum en síðan færði hún sig
yfir í samkvæmisdansa.
Síðastliðinn vetur var það
Herranótt og söngurinn sem
voru efst í huga Margrétar og
lítill tími fyrir annað - nema þá
kannski námið, en hún er í
náttúrufræðideild MR og á þar
eftir eitt ár í stúdentinn.
( júní og júlí hefur Margrét
verið í bæjarvinnunni í Garða-
bæ auk þess sem hún hefur
komið fram og sungið og
spilað. í sumarfríinu ætlar hún
svo að fara til Portúgal með 5.
bekkingum MR og vonast til
að geta þá hvílst og sólaö sig.
Ekki er þó ótrúlegt að hún taki
lagið við og við þar ytra.
Það hlýtur að kosta mikið
álag og taugaspennu að hafa í
svo miklu að snúast sem
Margrét. Tíðindamaður Vik-
unnar fékk nasasjón af því
spani sem stöðugt er á Mar-
gréti þegar unnið var að þess-
ari grein en upplýsinganna var
aflað í þrem áföngum vegna
anna hennar. Síðast í hléum
hjá Jökulsveitinni er hún kom
fram á Hressó.
„Álag og taugaspenna? Jú,
því er ekki að neita,“ svarar
Margrét. „Einkum þegar æða
þarf á milli margra staða sama
daginn en þá kemur sér vel að
geta fengið heimilisbílinn lán-
aðan því það er tímafrekt og
dýrt að ferðast með strætis-
vögnum."
Margréti finnst skemmtileg-
ast að syngja tónlist sem gerir
kröfur til söngvarans. Sjálf
segist hún hlusta af áhuga á
alla tegund tónlistar en í mest-
um metum er melódísk tónlist
og hún segir einnig Janis Jopl-
in höfða mikið til sín sem og
annað frá „sýrutímabilinu"
svonefnda. Kannski síst að
hún hlusti á hip hopp og
dauðarokk þó þar á meðal sé
einnig að finna eitt og annað
áhugavert.
Margrét stefnir á frægð og
frama í sönglistinni. Lofar
frammistaða hennar svo sann-
arlega góðu og þar spillir vera
hennar í Jökulsveitinni ekki en
sveitin hefur fengið mjög góða
dóma. □
70 VIKAN 15. TBL. 1992