Vikan


Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 44

Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 44
gefist tími til þess að setja saman gott rafmagnað pró- gramm eins. Við viljum ekki ana af stað með illa undirbúna hluti, heldur gera þá vel.“ Helmingurinn af plötunni er nú þegar að baki og vinna þeir ásamt Eyþóri í hljóðveri sem heitir Gnýr og er það kannski við hæfi því það er þéttur gnýr sem Jet Black Joe framleiðir ef dæma má af þessum tvéimur lögum á Bandalögum og von- andi að framhaldið verði ekki síðra. Nú þegar samningurinn liggur á borðinu, eruð þið þá ekkert hræddir um að ofmetn- ast? „Nei, nei. Við erum fyrst og fremst tónlistarmenn, göngum ekki með einhverjar stjörnu- hugmyndir í höfðinu. Við vilj- um bara gera okkar tónlist og gera hana vel. Þetta er núna okkar vinna.“ Starri, Jón Örn og Hrafn hættu til dæmis í skóla til að einbeita sér að hljómsveitinni og Páll og Gunnar hættu í sinni vinnu. „Eftir að við skrifuðum undir samninginn hefur til dæmis gengið betur að sannfæra vini og vandamenn um að þetta sé það sem við viljum. Áður gekk það erfiðlega, vægast sagt! Við vorum líka oft blankir þú skilur. “ Verslunarmannahelgin er framundan, hvar verðið þið að spila? „Við verðum fyrir austan, nánar tiltekið á Eiðum ásamt Stjórninni, og komum til með að spila þar öll kvöldin," sögðu strákarnir í Jet Black Joe að lokum og verður virkilega spennandi aö fylgjast með þeim í framtíðinni. Jet Black Joe. Frá vinstrl: Páll Rósinkrans Óskarsson (söngur), Starri Sigurðsson (bassi), Gunnar Bjarni Ragnars- son (gítar), Jón Órn Arnarson (trommur) og Hrafn Thoroddsen (Hammond orgel). Langt er síðan komið hef- ur fram á sjónarsviðið jafn góð hljómsveit og Jet Black Joe úr Hafnarfirði. Reyndar hefur það ekki gerst síðan Risaeðlan hóf störf og eru nokkur ár síðan. Jet Black Joe er ekki gömul hljómsveit, aðeins rúmlega hálfs árs að aldri. Strákarnir í Jet Black Joe eru ekki gamlir, meðalaldurinn^ hljómsveitarinnar. „Það var bara enginn „fílingur" að syngja á íslensku. ,Við reynd- um að semja texta á íslensku við tónlistina okkar en það gekk einfaldlega ekki. Hvernig leiö ykkur eftir að hafa skrifað undir samninginn? „Þetta er áfangi sem okkur er búið að dreyma um. Þetta er alveg pottþétt!" Jet Black Joe skrifudu nýlega undir plötusamning hjá Steinum hf. o co co co o: '< o; < o co 'O er í kringum 18-19 ár. Jet Black Joe (Kolsvarti Jói á ást- kæra ylhýra) er kominn á samning hjá Steinum h/f sem hljóðar upp á 10-14 laga plötu í haust. „Við sendum efni til beggja fyrirtækjanna en Pétur Kristjánsson var einfaldlega fyrri til og dæmið small bara saman og nú er samningurinn í höfn.“ Á Bandalögum 5 má heyra tvö lög með Jet Black Joe, meðal annars lagið Rain sem er rokkballaða ársins að mati blaðamanns. Bæði lögin eru sungin á ensku og er sú reyndar raunin með alla tónlist BAKSVIÐS HJÁ TODMOBILE OG BOLT- INN RÚLLAÐI AF STAÐ Jet Black Joe eru langt komnir í upptökum með Eyþóri Arn- alds úr Todmobile vegna væntanlegrar plötu. „Við vor- um baksviðs á tónleikum með Todmobile í Keflavík, bara með kassagítara og vorum að „heilla einhverjar dömur“ sem voru þar. Það gekk ágætlega og meðan á því stóð heyrði Eyþór í okkur og hann hreifst að tónlistinni. Þá fór boltinn af stað og hann hefur ekkert stoppað síðan. Meiri háttar að vinna með Eyþóri!“ Áhrif í tónlist hljómsveitar- innar koma frá traustum aðil- um, lífs eða liðnum; Rolling Stones, Elvis Presley, AC/DC, Stevie Wonder (Páll Rósin- krans söngvari!) og hjá Gunn- ari Bjarna gítarleikara brotnaði ísinn þegar hann heyrði plöt- una Deep Purple; In Rock, í fyrsta skipti. „Þetta er allt melódískt sem við spilum, svolítið öðruvísi en til dæmis Dauðarokkið, okkurfinnst vera aðeins of mikið af öskrum í þeirri tónlist. Trash-metal (Rusl-rokk í íslenskri þýðingu) er skárra, og pönkið var ágætt, þar var mikil reiði, útrás. Við erum hreinlega á annarri línu en dauða- og ruslrokkararnir en margt af því sem þeir gera er mjög gott og gert af metn- aði. Við höfum sama metnað en viljum gera annars konar tónlist." Er ólgandi reiði í ykkur? „Já, já, en það er engin brjá- læðisleg reiði. Og við fáum bæði útrás fyrir reiði og gleði, það má ekki gleyma því. Viö viljum reyna að túlka bæði hugtökin í tónlist okkar, ekki bara vera reiðir ungir menn.“ GEKK BETUR AÐ SANNFÆRA VINI OG VANDAMENN EFTIR SAMNINGINN Fram aö þessu hafa þeirfélag- ar einungis komið fram opin- berlega „akústikk", það er órafmagnað. Þeim finnst það skemmtilegt. „Það er náttúr- lega allt öðruvísi, öðruvísi stemning sem skapast. Viö æfum á mikilli keyrslu og svo hefur okkur einfaldlega ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.