Vikan


Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 48

Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 48
aö fá útrás fyrir taugaveiklun- ina á næsta manni. Ég átti erf- itt með aö fylgja til enda öllum breytingartillögunum á hand- ritinu en þetta var dýrmæt reynsla og ég kem aldrei aftur til með aö vinna kvikmynd þannig að hlutirnir ráöist á meöan þeir eru aö gerast. Ég minnist senu með Jack Nichol- ungan sérvitring sem býr einn í kastala og hefur skæri í staö handa en hann er uppgötvað- ur af konu sem selur snyrtivör- ur í týpískum amerískum svefnbæ. Eins og flestir aörir karakterar sem Tim heillast af eða finnur til samkenndar meö er hann utangarðsmaður. Hann er viðkvæmur og leitast viö þá í gegnum teikningar. Hann segist þó vera á réttri leið á þessu sviði en engu að síður vill hann skilja myndirnar eftir svolítið opnar og láta áhorfendum eftir að fylla í eyð- urnar. Það virðist ekki hafa verið stórt vandamál hingað til, eftir aðsókninni að dæma, og jafnvel verið góð tilbreyting fyr- Kappar eins og Arnold Schwarzenegger og Steven Sieagal létu sig ekki vanta á frumsýningu myndarinnar. Hér mætir Sieagal á staðinn. son þar sem hann átti að labba upp stiga og hann spurði mig: Til hvers? Ég yppti öxlum og svaraði: „Ég veit það ekki, ég segi þér það þegar þú kemur upp ... “ Það kom á óvart að Warner- kvikmyndafyrirtækið hafði ekki áhuga á að standa að baki næstu mynd Tims, „Edward Scissorhands" en 20th Cent- ury Fox var ekki lengi aö grípa gæsina á meðan hún gafst og myndin rakaði inn seðlunum fyrir fyrirtækið. Myndin var persónulegri en Batman en Tim hafði gengið með hug- myndina í magnanum frá því í menntaskóla. Edward Sciss- orhands er ævintýri um Tim Burton við stjórnvölinn við gerð kvikmyndarinnar Batman. Liklegur forystusauður í hópi nýrrar kynslóðar leikstjóra í kvik- myndaborginní. við aö vera meðtekinn en er miskilinn og er í senn tragísk- ur og fyndinn. Tim var mjög ánægður með samstarfið við Fox en hann lýsir kvikmynda- gerð í Hollywood sem stöðugu mótlæti og þeir sem eiga að vera að vinna með manni gera allt til að standa í veginum fyrir manni. Þetta viðhorf er senni- lega til komið vegna þess að það er ekki óalgengt að leik- stjórar sólundi milljónum dala í ævintýri sem aldrei komast á hvíta tjaldið. Það búast margir við að „Batman snýr aftur“ verði stærsti sumarsmellurinn frá Hollywood árið 1992 og fyrstu viðbrögðin lofa góðu. Myndin hefur sterkara yfirbragð leik- stjórans en fyrri myndin og ef hún stendur undir þeim vonum sem við hana eru bundnar þá stefnir allt í það að Tim Burton verði forystusauður í hópi nýrrar kynslóöar leikstjóra f kvikmyndaborginni á svipaðan hátt og Steven Spielberg og George Lucas urðu á áttunda áratugnum. Hann er helst gagnrýndur fyrir að vera of sjónrænn í tjáningunni og ekki mikill sögumaður. Hann er fyrstur til að viðurkenna rétt- mæti þessara ásakana en við gerð fyrri myndarinnar talaði hann stundum ekkert við leikarana heldur átti samskipti ir áhorfendur að vera ekki mataðir með skeið eins og oft vill verða í Hollywood. „Bat- man snýr aftur“ sameinar á skemmtilegan hátt fyrri reynslu leikstjórans. Myndin býr yfir ofur-raunsæi Edwards Sciss- orhand og fellíníska stjórn- leysinu frá Beetlejuce í þýsk- expressionískri umgjörð sviðsmyndarinnar sem er jafn- vel enn sterkari en í fyrri myndinni. Allar myndir Tims búa yfir magnaðri sviðssetn- ingu en leikstjórinn lætur sér ekki nægja að nota sviðssetn- inguna sem bakgrunn sögunn- ar heldur gerir hana að sér- Christopher Walken, sem fer með hlutverk Max Shreck, mætir til frumsýningarinnar ásamt framleiðandanum Denise Di Novi. stökum karakter. Frá bæjar- dyrum Tims Burton er myndin um óvenjulega og marg- slungna karaktera fyrst og fremst og nú eru það þrír furðufuglar í stað jókersins sem etja kappi við leðurblöku- manninn. Michelle Pfeiffer stelur senunni að margra mati í hlutverki kattarkonunnar og Danny DeVito er ekki beint frýnilegur í hlutverki mörgæs- arinnar. Cristopher Walken leikur stórbófa, sem á sér ekki fyrirmynd í gömlu teikni- myndasögunum, og hann heldur myndinni á jörðinni inn- an um öll fyrirbærin. Kattar- konan og mörgæsin eru alls ekki alslæmar persónur og áhorfandinn kemst ekki hjá því að hafa samúð með þeim. Þaö er meiri húmor í handritinu en í fyrri myndinni og mörgæsin gerir grín að Batman fyrir að þurfa að vera með grímu af því hann er ekki alvöru frík. Þegar Tim er spurður hvort gerö seinni myndarinnar hafi ekki verið skemmtilegri og létt- ari þá dæsir hann og segir að þótt stjórnleysið hafi ekki verið hið sama og síðast þá virðist honum það verða sér erfiðara með hverri myndinni að gera sjálfum sértil hæfis. Það hjálp- ar ekki að skilningslausir pen- ingamenn spyrja af hverju tökurnar gangi svona hægt þegar sviðsmyndin er eyja með fimmtíu mörgæsum af tveimur ólíkum tegundum, fullt af fjarstýrðum brúðum og Danny DeVito með tuttugu og fimm kílóum af farða ... Þá var það grátbroslegt, þegar verið var að vinna með leikur- um og hæfileikafólki af þessari stærðargráðu, aö engu að síö- ur stjórnuðust tökurnar og allt annað fyrst og fremst af fengi- tíma mörgæsanna sem var yfirvofandi. Tim er ekki viss um hvernig honum líkar það hlutskipti sitt að vera uppáhalds gullkálfur kvikmyndaborgarinnar. Það eru ýmsar sögur á kreiki um framtíðaráform hans, meðal annars að opnaður verði skemmtigarður (svipaður Disneylandi) eftir hugmyndum hans en hann neitar því. Hann er ánægður með að Disney ætlar að framleiöa mynd sem hann fékk hugmynd aö fyrirtíu árum en hún heitir „Fyrir jóla martröð" og bók með teikning- um eftir hann er væntanleg á markaðinn fljótlega. Hvað hann tekur sér næst fyrir hendur er óljóst en hann seg- ist hugsanlega ætla að fara og mála mannsandlit á steinana f eyðimörkinni í Arizona. □ 48 VIKAN 15. TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.