Vikan - 23.07.1992, Síða 26
TEXTl: BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON
Hún er aðeins 24 ára en hefur
þegar leikið í átta kvikmyndum
sem hún hefur hiotið heims-
frægð fyrir.
Fyrir aðeins sex árum út-
skrifaðist Julia nokkur
Roberts frá Smyrna
Ga., High School. Hana lang-
aði að leika og ekkert annað.
Ósk hennar rættist. Julia er
aðeins 24 ára gömul en hefur
leikið í um átta kvikmyndum.
Fólk tók eftir henni í Mystic
and og var í eigu Vestron kvik-
•myndafyrirtækisins."
- Hvenær breyttist þetta
svo?
„Þetta breyttist þegar Disn-
ey-kvikmyndafyrirtækið keypti
handritið. Garry Marshall átti
að leikstýra myndinni og á
þessu stigi málsins hafði ég
ekkert með þessa mynd að
gera. Framleiðandinn var
samt viss um að ég væri
ennþá rétt val fyrir myndina.
Ég mætti reyndar töluverðri
andstöðu frá mörgum hjá
Disney, margir töluðu um að
ég væri hreinlega ekki rétta
konan fyrir þetta hlutverk. Ég
fékk að lokum hlutverkið og þá
var bara eftir að yfirstíga einn
annan þröskuld og það var hitt
aðalhlutverkið. Að lokum kom-
um við saman, Richard Gere,
Garry Marshall og ég, og fram-
haldið þekkja flestir."
- Pretty Woman kemur og
kvikmyndahús og reynist vera
stórsmellur. Fannst þér líf þitt
breytast?
„Innra með mér breyttist
ekkert, ég var og er alltaf sú
sama. Auðvitað breytist margt
JULIA ROBERTS
Pizza. Hún varð stjarna eftir
leik sinn í Steel Magnolias
enda útnefnd til óskarsverð-
launa. Hún komst síðan á
toppinn eftir leik sinní Pretty
Woman.
Julia hefur ekki áfallalaust
i getað stjórnað þessari vel-
gengni sinni og á síðasta ári
gerðist margt í lífi hennar.
Julia Roberts kallar 1991
„Fellini-sumar". í júní var hætt
við giftingu hennar og Kiefers
Sutherland og mitt í hringiðu
þess máls var hún við tökur á
kvikmyndinni Hook.
Hook er nýjasta kvikmynd
Stevens Spielberg og var ný-
lega frumsýnd í Bandaríkjun-
um. Meðal leikara eru Robin
Williams, Dustin Hoffman og
Bob Hoskins. í myndinni leikur
Julia fljúgandi veru og þurfti
þess vegna að hanga langtím-
um saman í loftinu við mynda-
tökur.
En það var ekki nóg með að
Julia væri að slíta ástarsam-
bandi og að drukkna í vinnu
heldur var Gróa á Leiti ávallt
skammt undan. Sögur gengu
um að hún ætti við alvarlegt
eiturlyfjavandamál að strfða.
Hver var ástæðan fyrir fimm
daga sjúkrahúslegu í júní?
Var næstum því búið að reka
hana úr hlutverkinu f Hook?
Lengi vel svaraði Julia engum
af þessum spurningum og
reyndi að láta tilgáturnar ekk-
ert á sig fá en það var erfitt.
Á nýju ári stendur Julia Rob-
erts á tímamótum. Árið 1991
var henni erfitt og lét hana svo
sannarlega finna fyrir þvf hvað
það er að vera frægur í Holly-
wood. Nýlega hitti Julia
blaðamann að máli og vildi
ræða um þessar getgátur og
sögusagnir um líf sitt. Engar
spurningar voru bannaðar og
hún var tilbúin að svara öllu.
Julia Roberts er staðráðin í að
þagga niður ósannar sögur og
láta hið rétta koma í Ijós.
Spurning: Það er ekki langt
síðan þú varðst 24 ára. Ef þú
værir 34 ára gömui, heldur þú
að árið 1991 hefði þróast
öðruvísi?
Julia: „Ég veit það ekki. Ég
vona að þegar ég verð 34 ára
verði ég aðeins meira hugs-
andi en ég hef verið. Það er nú
alltaf þannig að þegar illa
gengur og á móti blæs þá seg-
ir maður við sjálfan sig: „Ah,
bara ef ég hefði gert þetta
öðruvísi." En allt hefur sinn
tilgang, vegna þess að það er
ekki hægt að snúa aftur. Hlutir
gerast bara ósjálfrátt. Þegar
eitthvað slæmt gerist reynir
maður að læra af því og halda
áfram lífinu."
- Frá því að þú byrjaðir að
ieika í kvikmyndum hefur þú
verið með góðan umboðs-
mann. Var ákveðið og úthugs-
að hvernig feriil þinn yrði?
„Margir halda að það sé
hægt að stjórna þessu en það
er ekki rétt. Þegar ég hugsa
um velgengni Pretty Woman
koma aðeins orðin ótrúlegt
kraftaverk upp í huga minn.
Það er ekki til nein skýring á
velgengni þessarar myndar og
þegar fólk spyr mig hvort ég
hafi vitað hvað ég væri að fara
út í sagði ég auðvitað nei -
þvert nei. Það er ekki hægt að
gera bíómynd með það fyrir
augumað ætla að græða pen-
inga. Það er ekki næg ástæða
til að gera kvikmynd."
- Þegar þú fékkst hlutverk-
ið í Pretty Woman, hétmyndin
þá Pretty Woman eða Three
Thousand eins og handritið
hét upphaflega?
„Myndin hét Three Thous-
Julla ásamt Richard Gere,
mótleikara sinum í Pretty
Woman.
þegar fólk fer að þekkja mann
á götu og mjög erfitt er að
undirbúa sig fyrir slíkt. Reynd-
ar var það þannig fyrst að fólk
þekkti mig aðallega sem „stór-
kostlega stúlku" ekki Juliu
Roberts. En þetta getur stund-
um verið hálfhættulegt, fólk
kemur upp að manni, hvar
sem er, þrífur í mann og finnst
eins og það eigi mann. Fólki
finnst ekki nema sjálfsagt að
yrða á mann og ræða við
mann um heima og geima. Ég
reyni auðvitað að vera eins al-
mennileg og ég get og sýni
fólki virðingu. Ég vona því að
fólk sýni mér virðingu á rnóti."
- Af hverju heidur þú að fólk
26 VIKAN 15. TBL 1992