Vikan - 23.07.1992, Page 39
stórt sviö þannig aö lesendum
er ráöið frá því að nota svo-
leiðis apparöt.
Sumar linsur hafa svo
nefndan Macro eiginleika en
það gerir Ijósmyndaranum
kleift að komast nær viðfangs-
efninu en ella og taka myndir
þannig að viðfangsefnið verð-
ur allt að því jafn stórt á film-
unni og í raunveruleikanum
1:1. Þessi eiginleiki er mest
notaður til eftirtöku af teikning-
um og þess háttar og til
myndatöku af smærri fyrirbær-
um eins og blómum.
Verð á linsum fer að miklu
leyti eftir því hvað þær hafa
möguleika á stóru Ijósopi.
Ljósopið ákvarðar ekki ein-
ungis hversu mikið Ijós fer á
filmuna, heldur fer svæöið
sem er í brennipunkti við
myndatöku eftir stærö Ijósops-
Fjarlægðin að fjöllunum var
ekki mlkil svo ég notaði 35 mm
linsu tll að ná bæði stúlkunni á
brúnni og þeim inn á myndina.
Þessar tvær myndir sýna sambandið á milli dýptar brennipunkts myndarinnar
og stærðarinnar á ijósopi linsunnar. Ef Ijósopið er stórt til dæmis 2,8 þá er bak-
grunnurinn ekki í fókus (efri mynd). Á neðri myndinni hefur Ijósopið verið minnk-
að niður í 16 og dýpt myndarinnar þar af leiðandi aukist.
135 mm linsan hjálpaði mér að einangra hluta af Hallgríms-
kirkjuturni og draga úr fjarlægðinni að regnboganum.
vera mjög dýrar en það gefur
Ijósmyndaranum kost á að
mynda við takmörkuð birtuskil-
yrði með fínkorna filmu án
þess að þurfa nauðsynlega að
nota þrífót. Þá er bjartara að
horfa i gegnum leitarann sem
auðveldar að finna brenni-
punktinn. Engu að síður er að
mínu mati vænlegri kostur að
fá sér frekar zoom linsu með
breytilegri brennivídd til að
byrja með, kannski 28-85 mm
eða 35-70 mm ef ein linsa er
valin því myndatökumögu-
leikarnir eru miklu fjölbreyti-
legri.
Lengi vel voru zoom linsur
ekki eins skarpar og fastar
linsur og buðu ekki upp á eins
stórt Ijósop en munurinn fer
alltaf minnkandi. Zoom linsan
virkar eins og margar linsur í
einni linsu og gerir Ijósmyndar-
anum fært að taka myndir með
mismunandi brennivídd án
þess að hann þurfi að færa sig
úr stað eöa skipta um linsur.
Zoom linsan er miklu ódýrari
kostur en að vera með margar
fastar linsur og hún er fljótvirk-
ari. Það er yfirleitt nóg að vera
með tvær zoom linsur, aðra
28-85 mm og hina 80-200
mm, til að dekka flestar kring-
umstæður myndatöku en að
minnsta kosti þrefalt fleiri fast-
ar linsur þyriti til að gera hið
sama. Áðurnefndur munur á
Ijósopi og þyngd á stakri linsu
með fastri brennivídd og
zoom linsu hefur orðið til þess
aö föstu linsurnar hafa haldið
vinsældum sínum og þá eink-
um meðal atvinnumanna.
Sumar linsur með breytilegri
brennivídd ná jafnvel yfir 24-
200 mm en tækniþekkingin í
dag höndlar engan veginn svo
15. TBL 1992 VIKAN 39