Vikan - 23.07.1992, Side 82
HELGI RÚNAR ÓSKARSSON
IVIKULOKIN
Dísætir Sykurmolar á þrykk!
■ Engin íslensk hljómsveit
hefur náð jafn langt á erlend-
um vettvangi og Sykurmolarn-
ir. Nú er Árni Matthíasson
blaðamaður að skrifa bók um
hljómsveitina og kemur hún út
í lok ársins á vegum Arnar og
Örlygs. Bókin, sem unnin er
með samþykki hljómsveitar-
meðlima, er unnin út frá sjón-
arhóli höfundar og verður hún
hlaðin myndum og upplýsing-
um um hljómsveitina. Árni hef-
ur ávallt fylgst vel með Syk-
urmolunum og var hann til
dæmis á 14 fyrstu tónleikum
sveitarinnar. Árni tjáði Vikunni
að ýmislegt kæmi fram í bók-
inni sem ekki hefur komiö fram
í fjölmiðlum. Sykurmolabókin
verður svo þýdd yfir á ensku
og ef móttökur verða góðar
má gera ráð fyrir útgáfu víðar
en í Bretlandi og Bandaríkjun-
um.
■ Hljómplötuútgefendur hafa
verið iðnir við að gefa út
gömul, íslensk gullkorn á
geisladiskum, lög sem jafnvel
hafa verið ófáanleg svo árum
skiptir. Nýlega kom út plata
Stuðmanna, Sumar á Sýr-
landi, og hafa aðdáendur
Þursaflokksins og Spilverksins
einnig fengið að njóta gamalla
uppáhaldslaga á geisladisk-
um. Þeir sem halda upp á
Björgvin Halldórsson verða
ekki sviknir því nýlega kom út
geisladiskur sem inniheldur
tvær eldri plötur söngvarans
en þar er að finna perlur eins
og Þó líði ár og öld, Ég skal
syngja fyrir þig, Ástina og fleiri
gullkorn. Einnig er væntanleg-
ur safndiskur með öllum bestu
lögum hljómsveitarinnar Brim-
klóar.
Það „geislar" af Bjögga . ..
■ Skemmtistaðurinn Tunglið
hefur verið lokaður undan-
farna mánuði en nú stendur til
að opna Rósenberg kjallar-
ann, undir Tunglinu. Það voru
þeir Vilhjálmur Svan og Holger
Clausen sem tóku Tunglið á
leigu í byrjun ársins en þar
sem reksturinn stóð ekki undir
sér var staðnum lokað. Eig-
endur hússins hafa verið á
höttunum eftir nýjum leigjend-
um. Það eru þeir Sverrir
Rafnsson og Sigurður Kaldal
sem hafa tekið Rósenberg
kjallarann á leigu og ætla þeir
að sjá um rekstur staðarins,
en þeir sáu um reksturTungls-
ins fram að síðustu áramótum.
Töluverðar breytingar hafa
verið gerðar á kjallaranum,
sem á að höfða til fólks á aldr-
inum 22 til 30 ára.
■ Skemmtistaðnum Hollí hef-
ur verið lokað um stundarsak-
ir. Staðurinn veröur opnaður
aftur í ágúst en nú standa yfir
viðræður milli skemmtana-
stjóranna, Sigga Hlö og Bjarna
Hauks, og eiganda staðarins,
Margeirssonar, um framhald-
ið.
■ Móðir og barn nefnist ný
bók frá Erni og Örlygi en þetta
er handbók foreldra um meö-
göngu, fæðingu og umönnun
ungra barna. Bókin, sem hefur
að geyma um 800 litmyndir,
skiptist í þrjá meginhluta:
Meðganga og fæðing; Barnið
þitt, þar sem fjallað er í
smáatriðum um umönnun
ungbarna; og Heilsuvernd, en
Skemmtistaðirnir Hollý og Tunglið taka breytingum eftir lokun.
þar er lýst algengustu kvillum
sem geta hrjáð börn. íslensku
þýðinguna annaðist Álfheiður
Kjartansdóttir en umsjón með
útgáfunni hafði Hálfdán Ómar
Hálfdánarson líffræðingur.
Ráðgjöf veittu Jóhanna Jónas-
dóttir lækni rog Þórólfur
Guðnason barnalæknir. Átím-
um vaxandi jafnréttis kynjanna
og aukinni þátttöku feðra í
uppeldi barna sinna furðar
undirritaður sig á að titill bók-
arinnar sé einskorðaður við
móðurina.
■ Áður en fólk fer aö velta fyr-
ir sér meðgöngu og fæðingu
er nauðsynlegt að töfrar kyn-
lífsins fái að njóta sín en það
er einmitt nafn á nýrri kynlífs-
bók sem Örn og Örlygur voru
að senda frá sér. í formála
höfundar segir meöal annars:
„Kynlíf verður því aðeins töfr-
andi að elskendur leggi sig
báðir fram, jafnræði sé með
þeim og báðir séu virkir í ást-
arleiknum. Þó er það svo að
elskendur eru mismunandi
hvað varðar hæfileika, hneigð-
ir og viðbrögð. Reynsla karla í
kynlífi er allt önnur en reynsla
kvenna og þarfir og langanir
kvenna eru frábrugðnar þörf-
um og löngunum karla.“ Höf-
undur bókarinnar er dr. Miriam
Stoppard en þýðendur eru:
Guðrún Björk Guösteinsdóttir,
Hálfdán Ömar Hálfdánarson
og Sverrir Konráðsson. Töfrar
kynlífsins er ríkulega mynd-
skreytt og eru ýmsar djarflegar
ábendingar um hvernig megi
ná enn fyllri unaði í kynlífinu.
82 VIKAN 15. TBL.1992