Vikan - 06.08.1992, Page 7
t
'
k
)
I
I
[
k
*
►
og er víst alveg eins þrjósk og
merkið ber með sér. Hafi ég
einu sinni ákveðið eitthvað, þá
framkvæmi ég það.“
Gunnur stundar nám við
náttúrufræðibraut Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Hún er bara
sautján ára og því á hún þrjú
ár eftir í stúdentspróf. Hún
segist tilbúin í aö sækja fram-
haldsnám til Reykjavíkur og ef
að fram heldur sem horfir get-
ur hún orðið samferða kærast-
anum þangað en hann ætlar
að læra hagfræði.
Áhugamál Gunnareru ýmis-
leg. „Ég hef áhuga á öllu milli
himins og jarðar,“ segir hún.
„Ég hef reyndar lítinn tíma til
að sinna áhugamálum en ef
ég fæ tækifæri til fer ég í er-
óbikk. Svo hef ég gaman af að
fara á hestbak og þegar næg-
ur snjór er á veturna fer ég á
skíði - oftast í Bláfjöllin." Að-
spurð hvort hún spili á eitthvert
hljóðfæri segist hún glettnis-
lega hafa reynt að læra á klar-
ínett einu sinni en niðurstaðan
hafi verið sú að hún væri ekki
sérlega músíkölsk. Aftur á
móti er hún lagnari við dýr og
fjölskylda hennar á einn hund
- Golden Retriever. Við þetta
má svo bæta að hún lærði
dans um tíma.
Gunnur hefur aldrei reynt
fyrir sér í fyrirsætustarfinu en
hefur hins vegar töluverðan
áhuga á því. Hún nýtur þess
að ferðast og hefur þegar
komið víða, bæði til megin-
lands Evrópu og Bandaríkj-
anna. Hún segist stefna að því
að ferðast miklu meira, enda
hefur hún nægan tíma til þess.
Foreldrar Gunnar eru Magn-
ús Sigurðsson og Guörún Ósk
Ragnarsdóttir. Hún er næst-
elst fjögurra systkina. Gunnur
er 174 sm á hæð og eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd-
um er hún Ijóshærð og blá
eygð. □
16. TBL. 1992 VIKAN 7
TEXTI: HELGA MÖLLER / LJÓSM.: BRAGI P. JÓSEFSSON7 FÖRÐUN: KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR MEÐ NO NAME COSMETICS