Vikan - 06.08.1992, Page 28
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR / MYNDIR: RÚNAR >ÓR
yndlistarmaöurinn
Örn Ingi hefur lengi
verið áberandi í
listalífi íslendinga. Hann hefur
verið fenginn til að undirbúa
hátíðlr víðs vegar um landið,
hefur rekið veitingastað og
haldið fjölmargar málverka-
tveimur öðrum greinum eftir
því sem tími vannst til. Örn
Ingi kenndi myndlistina, Ásta
Arnardóttir kenndi leiklist og
Anna Ríkharðsdóttir kenndi
dans. Börnin voru látin semja
sín eigin leikrit og spunadansa
og var hreint ótrúlegt hvað
náðist að gera á þessum tíma.
Við Glerárskóla er mjög góð
sundlaug sem krakkarnir fóru í
á kvöldin og oft voru haldnar
kvöldvökur og voru þær undir-
búnar af krökkunum sjálfum
og tókust mjög vel. Eitt kvöldið
langaði þau að dansa og
undirleikurinn varð harmón-
íkuleikur Ástu og gítarleikur
ráðskonunnar sem kunni
vinnukonugripin. Krakkarnir
dönsuðu og dönsuðu og end-
uðu á aö fara f marseringu
fram í eldhús en þar beið
þeirra kvöldkaffi.
NYJUNG
LISTNAMI
BARNA
OG UNGLINGA
SUMARSKOLINN
Á AKUREYRI
sýningar svo að eitthvað sé
nefnt. í sumar kom hann á fót
sumarskóla í listum fyrir börn
og unglinga 10-14 ára. Skól-
inn hafði aðsetur í Glerárskóla
á Akureyri en þangað komu 24
börn víðs vegar af landinu og
fengu tilsögn í myndlist, leik-
list, dansi og matargerðarlist.
Þessi fyrsti sumarskóli stóð í 2
vikur og var kennt frá morgni til
kvölds alla dagana. Börnin
völdu sér eina aðalnámsgrein
og voru svo einnig í einni eða
Stundum
var mat-
urinn í list-
rænna lagi
og kom þá
til kasta
skólastjóra
ns aö sann-
færa
nemendur.
Örn Ingi
ræöir um
grænu
mjólkina
viö
strákana.
j leiklistar-
tima hjá
Ástu. Mikiö
þurfti aö
ræöa og
ráögera.
Þeir sem völdu sér matar-
gerðarlist sáu um að gera
kvöldmatinn og var námið í
því fólgið og að þjóna til borðs
og varð það eitt vinsælasta
starfið í skólanum. Fengu hinir
krakkarnir að taka þátt í því til
skiptis. Annað vinsælt atriði
var að vaska upp eftir sig. Það
gerðu krakkarnir allan tímann
nema síðasta daginn en þá
var spennan orðin svo mikil að
Ijúka verkefnum sínum að
annað komst ekki að. Þau
lögðu nótt við dag til að klára
það sem þau voru að gera og
það tókst. Mikil listahátíð var
haldin og komu foreldrar og
aðrir gestir til að sjá árangur-
inn af starfinu. Hátíðin byrjaði
á því að börnin sýndu indíána-
dans í göngugötunni á Akur-
eyri síðdegis á föstudegi og
sungu einnig fyrir vegfarendur
frumsamið lag er þau nefndu í
sumarskóla er gaman. Þau
sýndu einnig nokkra skúlptúra
og var þeim vel tekið. Síðasta
daginn, þegar sólin skein
skærast, var myndlistarsýning
undir beru lofti, bæði málverk
og skúlptúrar prýddu umhverf-
ið. Uppi í hlíðinni fyrir ofan
Glerárskóla var iindíánaleikur-
inn fluttur í náttúrlegt umhverfi
og ævintýraleikritið Skessan
og fjársjóðurinn var einnig flutt
utan dyra við mikla ánægju
áhorfenda.
Foreldrar, afar og ömmur
áttu viðburðaríkan dag, Nes-
kaffivagninn sá um að enginn
væri þyrstur og kleinur og
lummur voru bakaðar á
staðnum.
í skólalok borðuðu allir
kvöldverð saman og uppvask-
ið tóku vaskir Sauðkrækingar
að sér og fékk ráðskonan frí
eftir annasamar vikur við mat-
reiðslukennslu og daglegt
stúss. Eitt er víst. Það eru dug-
leg börn til á íslandi, listræn og
frumleg. Þau vilja fá kennslu,
þau vilja skapa. Leyfum þeim
það. Sjáum til þess að þau fái
það besta. □