Vikan - 06.08.1992, Side 36
sinnt sínum hugðarefnum og
blandað geði við kunningja.
Flesta sunnudagsmorgna fór
Benni í reiðskóla fyrir fatlaða
ásamt Dóru og heimilisvinin-
um Rachell sem er sjúkraþjálf-
ari. Hugsjónafólk starfrækir
skólann ókeypis. Þetta þótti
Benna skemmtilegt enda þótt
hann þyrfti að bera reiðhjálm
sem var honum mjög á móti
skapi. Hjálmurinn gleymdist
þó fljótt í hita leiksins og eftir
nokkra tíma gat hann setið
eyjunni. Hann bauð Dóru heim
til sín. Að skilnaði gaf hann
henni „íslenskar" pylsur sem
hann hafði gert sjálfur og harð-
fisk að heiman. Þessi matur
vakti að vonum óblandna
ánægju strákanna og varð
undirstaðan í sautjánda júní
hátíð í Wellington. Þann dag
héldu þau veislu mikla fyrir um
fimmtíu manns, drukku
kampavín með harðfiskinum
og öðrum kræsingum. Dóra lét
gestina hafa sig út í þá raun
<
'<
nz
cz
O
<
HUGARÓRAR HALLGERÐAR
BORGAR SIG
EKKIAÐ
• •
BOGGA MIG
gæfan hest nær óstuddur,
hent bolta í körfu og haldið sér
þegar klárinn brokkaði mjúkt
eða stiklaði yfir trjáboli á reið-
vellinum. Við þessi tækifæri
stóð Dóra lengst af þar sem
lítið bar á og þurrkaði við og
við gleðitár af vanga. Á eftir
var svo haldið til fundar við vini
og kunningja á einhverju eftir-
lætiskaffihúsi i Wellington og
snæddur morgunverður.
BARNAAFMÆLI OG
17. JÚNÍ
Barnaafmæli eru með nokkuð
öðrum hætti á Nýja Sjálandi
en Benni átti aðvenjast. Hon-
um var fljótlega boðið í afmæli
Toms, bekkjarbróður síns, og
var beðinn að hafa með sér
sundföt. ForeldrarToms höfðu
tekið litla sundlaug á leigu og
fór hluti veislunnar þar fram.
Börnin léku ýmsa boltaleiki í
vatninu. Þá voru þau flutt heim
til afmælisbarnsins I rútubíl.
Þar biðu kræsingar. Síðan var
farið í leiki og loks endaði
veislan með grillmat, fjársjóðs-
leik, pokahlaupi og fleiri hóp-
leikjum í nálægum skemmti-
garði.
Á ferðum sínum um Nýja
Sjáland hitti Dóra þrisvar ís-
lendinga og hafði fregnir af
fleirum. í eitt skiptið beið henn-
ar ungur maöur, kjötiðnaðar-
maður að mennt, ættaður úr
Kópavogi, er hún kom á hótel-
herbergi i litlum bæ á Norður-
Eg er rólega að geðbilast
hérna á Nesinu og öllum
er svo innilega sama.
Það elskar mig enginn. Ég er
greinilega munaðarlaus.
Glæta. Ég meina, alveg sama
þó ég sé svo þreytt og slitin
eftir vikuna, þá er mér samt
dröslað og ég endurtek drösl-
að til Tótu frænku klukkan eina
mínútu yfir þrjú allar helgar.
Pabbi er alltaf eina mínútu að
kíkja á hvort þjófavarnarkerfið
er í gangi. Það er algjör óþarfi
að láta eins og maður sé fáviti,
þó maður neiti að fara í boð til
Tótu frænku á hverjum sunnu-
degi og borða stanslaust
sömu uppþornuðu brúntertuna
með stöfunum manns ofan á
og einu kerti til að blása á. Allir
í einu náttúrlega. Alveg sama
þó allir séu andfúlir og með
smitandi sjúkdóma. Það sjá
allir. Allir í stressi út af „boll
boll'' Tótu frænku. Glæta, eins
og það séu ekki til fleiri ætt-
ingjar en þessi ástsjúka, ak-
feita, móðursjúka geit sem
hugsar bara um mat og hvort
Óli kærastinn hennar stækki
eitthvað við það að fara í sund
tvisvar á dag. Það sést svo
innilega að það hefur „ekkert"
stækkað á bautanum. Hlunk-
urinn getur ennþá notað
gömlu matrósubuxurnarsínar,
að syngja þjóðsönginn. Frið-
finnur taldi þetta hetjudáð og
óskaði vinkonu sinni á eftir til
hamingju með að hafa klöngr-
ast í gegnum allar nóturnar
sæmilega hreint en bætti svo
við að hann hefði nú oft heyrt
þetta lag betur sungið.
BENNI LENDIR Á
SJÚKRAHÚSI
Dag einn, er Dóra var á fyrir-
lestraferð lengst norður í landi
í Bay of Plenty, fékk hún þær
fregnir að Benni hefði dottið á
höfuðið á leið I skólann og
væri á sjúkrahúsi. Þetta var
áhyggjuefni en allt benti þó til
að vel væri séð um Benna.
Friðfinnur, sem hefur víðtæka
reynslu af því að detta, taldi
þetta ekki alvarlegt og sagöist
geta séð um fóstra sinn enda
hefði þeim borist öflugur liðs-
styrkur Sue Gates, gestgjafa
þeirra hjá IHC og fleiri vina.
Þeir Benni dvöldu á sjúkrahús-
inu í sólarhring og á þeim tíma
varð mjög gestkvæmt við
sjúkrabeðinn. Hátt á annan
tug manna heimsótti Benna,
þar á meðal tvö bekkjar-
systkini hans ásamt mæðrum
sínum, uppeldisfulltrúinn,
kennarinn og skólastjórinn auk
annarra vina og kunningja.
Benni, sem hafði fengið væg-
an heilahristing, náði sér fljótt
en naut þessarar athygli út I
æsar og borðaði ógrynni af
gómsætum nýsjálenskum ís.
□
Góöir vinir
á ferö í
Honululu,
Benni og
Friðfinnur.
það sjá allir. Ég er hörð á því
að fara ekki á sunnudaginn.
Ég er rólega að tapa persónu-
leikanum. Það spyrja mig allir
hvort ég sé búin að taka til
rauða flauelskjólinn og ætli að
hafa gosbrunn í hárinu og ís-
lenska fánann í fanginu svo
Tótu finnist ég ekki vera að
vaxa frá sér eöa eitthvað. Ég
meina það eru tíu ár síðan ég
var fjögurra ára. Ég neita að
gefa þessu liði upplýsingar um
ferðir mínar. Það eru greini-
lega allir á rosalegri spæjara-
vakt. Gamla liðið sér náttúr-
lega að það borgar sig ekki að
reyna að bögga mig. Ég gef
ekki svona pakki kost á svona
rosalegu ofbeldi. Ég veit að
það verður ekkert talað við
mig næstu dagana. Þess
vegna læt ég mig bara hverfa í
bili. Þetta lið á eftir að sakna
mín rosalega. Við skulum bara
athuga það að síðast þegar
átti að neyða Jóu vinkonu til
að fara til gamallar frænku
sinnar, þá bara sagði ég henni
að flýja burt með þetta tveggja
daga fyrirvara. Það voru allir
svo hræddir um hana að það
má segja að liðið heima hjá
henni hafi hlaupið meö hana í
fanginu heim þegar það fann
hana loksins. Allir hágrátandi
svona innilega. Ég meina það
er ekkert verið að gera í því að
koma Jóu I kast. Hún er svo
rosalega viðkvæm sál. Hún
lætur sig þá bara hverfa smá
og allir fara í kerfi. Við Jóa
þolum ekki svona lið sem er í
því að pína fólk til að hlusta á
sömu gömlu velluna um vörtur
og kláða allar helgar. Okkur
kemur ekkert við, þó báðar
frænkur okkar séu næstum al-
skeggjaðar og séu í því að'
blokka á sér höku- og efrivar-
ardúninn með klökkum árang-
ri, þó stærstu hárin séu alltaf til
sýnis. Fær maður velgju? Já,
og þá meina ég. Glæta. Mér
ofbjóða svona hökufléttur á
svona gömlum ofdekruðum
loðlúsum og Jóu líka. Vonandi
verð ég uþþgötvuð fljótlega.
□
VIKAN 36 16.TBL. 1992