Vikan - 06.08.1992, Page 45
STJÖRNUSPÁ
■ Gesturinn: Það er stór
maðkafluga í súpunni sem þér
berið mér.
Þjónninn: Æ, veslings dýrið!
Haldið þér að hún sé dauð?
Sonur minn hafði verið tvær vikur
í herþjónustu í Ordvirki í Kaliforn-
íu þegar hann fyrst fékk tækifæri
til að hringja heim. Okkur fannst
við vera nýbyrjuð að tala þegar
símadaman tilkynnti að viðtalsbil-
ið væri búið. „Bíðið andartak,
fröken,“ sagði ég, „hann lætur
meiri peninga í sjálfsalann."
„Því miður, mamma," sagði
hann raunamæddur. „Ég hef ekki
meiri peninga.“
„Fröken," bað ég, „má ekki
skrifa næsta viðtalsbil hjá mér?“
„Nei, frú. Hann verður að panta
annað viðtal.“ Svo datt henni eitt-
hvað í hug. „Er löng biðröð fyrir
utan?“ spurði hún son minn.
Sonur minn stundi. „Einir fimm-
tíu hermenn, býst ég við."
„Gáið hvort nokkur af félögum
yðar er fyrir utan og fáið lánað
hjá honum.
„Það get ég ekki, fröken," sagði
hann vonleysislega. „Smith lið-
þjálfi er næstur á eftir mér. Hann
er ekki lamb að leika sér við. Ég
þori það ekki.“
„Jerry Smith liðþjálfi?" spurði
símadaman. „Lofið mér að tala
viö hann.“ Brátt heyrði ég byrsta
karlmannsrödd: „Halló! Hver er
það?“
„Það er ég. Heyrðu, drengurinn
er að tala við móður sína en vant-
ar peninga. Lánaðu honum fyrir
einu viðtalsbili."
Liðþjálfinn saup hveljur.
„Lána.“
„Já, ég sagði það. Lánaðu
drengnum fyrir viðtalsbilinu."
Það varð löng þögn - svo
heyrði ég tvo skildinga detta í
sjálfsalann. „Talið nú við móður
yðar eins og þér viljið," sagði
símadaman. „Og kærið yður koll-
óttan um liðþjálfann. Þetta er ekki
nema loft í honum. Jafnvel krakk-
arnir hans ráða yfir honum."
„Þér hljótið að þekkja hann,“
sagði ég.
„Skyldi ég þekkja hann. Hann
er maðurinn rninn!"
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Eftir 13. ágúst, þegar
tunglið er fullt, ferðu aftur að vera
í essinu þínu eftir fremur hvers-
dagslegar vikur undanfarið.
Framkvæmdafrelsið eykst og enn
minnkar spennan. I kjölfarið
færðu meira út úr hugðarefnum
jinum en þig grunar. Nú er um að
gera að notfæra sér meðbyrinn.
NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Himintunglin gefa í skyn
eitthvað óvænt hjá þér á næst-
unni og líklega verðurðu fyrir
óvæntu happi laugardaginn 15.
ágúst eða strax daginn eftir.
Gættu þín samt á að eyða ekki
um efni fram og sýndu þolin-
mæði. Hagsýni þín og útsjónar-
semi verða með besta móti eftir
miðjan mánuðinn.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Nú fer að verða rétti tím-
inn til að hrinda hugmyndum í
framkvæmd en það er áríðandi
að ganga frá öllum lausum end-
um fyrst. Þú hefur góðan meðbyr
og finnur að hugmyndir þínar fá
góðan hljómgrunn. Hins vegar
sakar ekki að vera svolítið á varð-
bergi dagana 13. og 14. ágúst.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Fólk væntir mikils af þér
um þessar mundir svo að nú er
áríðandi að halda gefin loforð.
Samskipti þín við fólk geta brugð-
ist til beggja vona og er það undir
þér komið hver útkoman verður.
Því hreinskilnari og opnari sem
þú ert því betri verður eftirleikur
inn. Búðu þig undir óvænta heim-
sókn.
LJÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Orka þín er í góðu jafn-
vægi og þú hressist svo um mun-
ar um miðjan mánuðinn. Fjármál-
in eru í góðu lagi og flest virðist
ganga þér í haginn. Eftir 13.
ágúst og fram að 18. ágúst eru
góðir dagar nema hvað þú þarft,
af og til, að beita hæfilegri víðsýni
og þolinmæði.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þolinmæði þín fer nú að
skila góðum árangri. Á tímabilinu
10.-15. ágúst bjóðast þér góö
tækifæri sem þú skalt ekki láta
þér úr greipum ganga. Þitt er að-
eins að velja og hafna. Ekki sakar
heldur að hafa hugfast að allt tek-
ur sinn tíma en að öðru leyti lofa
næstu tvær vikur góðu.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Líf þitt gengur hnökra-
laust næstu daga og þú hefur
góðan tíma til að íhuga persónu-
leg markmiö þín. Þú virðist búa
yfir ákveðnum þokka sem ágerist
eftir því sem líður á mánuðinn.
Fólk virðist því laðast að þér og
)ú átt nokkrar ánægjulegar
stundir í vændum kringum 15.
ágúst.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Hafðu hugfast að opin og
heiðarlsg umræða er besta leiðin
til að fullvissa sig um afstöðu ann-
arra en þér gæti hætt til að loka
oig svolítið inn í sjálfri—sjálfum
)ér á næstunni. Allt í kringum þig
er eitthvað skemmtilegt að gerast
svo að besta ráðið til þín núna er:
Hristu af þér slenið.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Vinsældir þínar aukast og
þú hefur því enn í nógu að
snúast. Fjármálin eru kannski
ekki með besta móti en það er lík-
lega vegna breyttra aðstæðna.
Vænlegasti kosturinn er því að
draga svolitið úr ævintýralöngun-
inni þótt ýmislegt sé að brjótast
um í höfðinu á þér þessa dagana.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Þú gætir þurft að takast á
við ný verkefni fyrir miðjan ágúst-
mánuð. Sennilega er þetta þér ný
reynsla en þú skalt gera þitt
besta. Hvers vegna kemur í Ijós
síðar. Þú færð mikilvægar upplýs-
ingar, líklega úr fjarlægð, sem þú
skalt íhuga vandlega því þeim
gætu fylgt viss skilyrði.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Svolítil rómantík og ný
vináttusambönd verða í brenni-
deplinum næstu tvær vikur, sér-
staklega seinni vikuna (frá 14.
ágúst). Þitt er að velja og því skalt
þú eiga frumkvæðið að því að
byggja upp gott samkomulag. Eft-
ir miðjan mánuð áttu etfir að eiga
marga viðburðaríka daga.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Ef þú vilt komast hjá sam-
búðarerfiðleikum þarftu að ein-
beita þér að sameiginlegum
markmiðum, jafnvel þótt þú eigir
erfitt með að koma auga á þau.
Þú gætir stofnað til nýrra sam-
banda í hita augnabliksins enda
drífur margt á daga þína. Sýndu
samt umburðarlyndi og óeigin-
girni.
FINNDU 6 VILLUR
V. D 1991 by King Featurst Syndicate, Inc
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
iununisa6 bjj
qijjou b(bl| jn>|soi ‘jn))9>(>(B|) J9 uuunpuntj ‘))/ejq nja u|p|oí)B66n|6 ‘pipoq
J9 suBpuoqsnq pB|q6Bp ‘jnqAajq je |6ej>|nsAed ‘66ba p u|Ujo>| js puA^
16. TBL. 1992 VIKAN 45