Vikan - 06.08.1992, Page 56
Dómkirkjan í Mdina.
Kirkjur á Möltu eru meó eindæmum fallegar eins
og sjá má af þessari mynd af Mosti kirkjunni.
Nýsteinöld: Elstu musterin á Möltu frá ný-
steinöld eru um þúsund árum eldri en pýra-
mídarnir í Gíza í Egyptalandi. Mönnum er þaö
hulin ráögáta hvernig Möltubúar fóru aö því aö
grafa mörg hundruð fermetra grafhýsi inn í
kletta og hvernig þeir gátu byggt musteri úr
steinum sem vógu mörg tonn hver. Þetta er
enn merkilegra með tilliti til þess aö þeir bjuggu
ekki yfir málmtækni heldur notuðust viö hrafn-
tinnu og tinnusteina. Margar af þessum forn-
minjum er hægt að skoöa og ein sú stórkost-
legasta er neöanjarðarmusterið Hypogeum frá
2400 f.Kr.
Þaö hefur lengi veriö sagnfræðingum hulin
ráögáta meö hvaöa hætti þetta musterisbygg-
ingafólk hvarf skyndilega á hátindi menningar
sinnar. Ýmsar skýringar hafa komið fram eins
og að einhver plága hafi herjaö á íbúana og
lagt þá að velli eöa aö þeim hafi fjölgað svo
mjög að þurrt landið hafi ekki getaö mætt þörf-
um þeirra. Margir hafa hallast að þessari skoð-
un vegna þess að enn þann dag í dag er
vatnsskortur eitt stærsta vandamál Möltubúa.
Riddarar Jóhannesarreglunnar: Viö komu
riddara Jóhannesarreglunnar til Möltu áriö
► St. Páls flói. Sagan
segir að hér hafi Páll
postuli orðið skipreka.
Hafi hann læknað einn
af höfðingjum Möltu
en hann varð fyrstur
eyjaskeggja til að taka
kristna trú.
► Höfnin í Valetta
höfuðborg Möltu.
1530 upphófst glæsilegt uppbyggingartímabil í
sögu eyjunnar. Við þaö leiö undir lok eitt erfiö-
asta skeið í sögu Möltu sem einkenndist af
innrásum sjóræningja og Múhameðstrúar-
manna sem fóru ránshendi um eyjarnar og
drápu eöa fluttu nauöuga burtu stóran hluta
íbúanna. Upphaflegt hlutverk riddaranna var
aö hjúkra sjúkum kristnum pílagrímum, hjálpa
fátækum og boða kristna trú. Meö tilkomu ridd-
aranna gátu Möltubúar varist betur utankom-
andi hættum og uppbygging hófst á ný. Malta
blómstraöi og varð miöpunktur menningar, viö-
skipta og handiðnaðar. Riddararnir byggöu
virki og borgir og eru minjar um veru þeirra á
Möltu stórfenglegar. Ber þar fyrst aö nefna
núverandi höfuöborg Möltu, Valetta.
Árið 1789 uröu enn tímamót í sögu Möltu
þegar Napóleon tók eyjarnar herskildi. Frakkar
réöu síðan Möltu til ársins 1800 en þá hröktu
Bretar þá frá völdum samkvæmt beiöni Möltu-
búa. Yfirráð Breta vöröu til ársins 1964 en þá
öðlaðist Malta sjálfstæði og tíu árum síðar fékk
Malta eigin stjórnarskrá og varö lýðveldi.
TRÚARBRÖGÐ
Möltubúar eru rómversk kaþólskrartrúar. Trúin
er þeim afar mikils viröi og þeir leggja mikiö í
kirkjur sínar enda eru þær margar hverjar
ótrúlega fallegar. Dómkirkjan í Mdina er ein
þeirra sem ekki er hægt að lýsa meö orðum,
hana verða allir aö sjá sem feröast til Möltu.
HELSTU ATVINNUVEGIR
Helsti atvinnuvegur Möltubúa er skipaiðnaður.
Ein stærsta skipafríhöfn viö Miðjarðarhafið er á
Möltu og gefur af sér umtalsverðar tekjur fyrir
þjóðarbúiö. Ferðaþjónusta er annar helsti at-
vinnuvegur þjóðarinnar og er nú svo komið aö
mörg lítil fiskiþorp eru að breytast í ferða-
mannastaði.
VEÐURFAR
Loftslag á Möltu er mjög þurrt og því er eyjan
fremur gróðursnauð. Heitasta tímabilið er
sumarið, en þá er hitinn að meðaltali 33°C í
maí og um 30°C í september. Frá nóvembertil
janúar rignir mikið en annars er vetrarveðrið
svipað og meöalgott sumar á íslandi.
VERÐLAG
Gjaldmiðill Möltubúa er pund eða lira en eitt
pund samsvarar hundrað og níutíu íslenskum
krónum. í hverju pundi eru hundraö cent. Sem
dæmi um verðlag má nefna að fyrir eitt pund er
hægt að kaupa fjórar kók á veitingahúsi og
bjórinn er á svipuðu verði. Fyrir eitt pund má
einnig kaupa flösku af innlendu víni. Á góðum
veitingastað er málsverðurinn fyrir fjögurra
manna fjölskyldu á 15 til 20 pund. Fyrir sömu
fjölskyldu getur einnig kostað hátt í 1000 krón-
ur íslenskar að fara á strönd eða í sundlaug.
Verðlag á nauðsynjavörum er fremur lágt en
eins og víðast annars staðar er þjónusta í
hærri kantinum. Strætisvagnagjöld eru þó
mjög lág eða um tíu cent fyrir manninn en við
leigubílstjóra er hægt að gera ágæta samn-
inga áður en lagt er í ferð með þeim.
VERSLUN
Ferðamenn á Möltu geta gert kostakaup í gull-
og silfurvörum en Malta er þekkt fyrir vandaðar
silfurvörur. Það sama má segja um vefnaðar-
og prjónavörur. Einnig eru á boöstólum ódýrar
gler-, keramik- og kristalvörur. Maltneski
steinninn er mikið notaður til margs konar list-
munagerðar og fást slíkir munir á góðu verði.
Helsta verslunarhverfið er Sliema og þar er að
finna flest vörumerki sem íslendingar þekkja.
Þekkt merki í fatnaði eru á fremur háu verði
miðað við annan varning.
VEITINGAHÚS
Á Möltu er að finna svo til allar gerðir veitinga-
húsa og ættu því flestir að finna eitthvað við
sitt hæfi. Mikið er um ítölsk veitingahús,
kínversk, mexíkönsk, indversk, ensk og mörg
einbeita sér að maltneskri matargerð. Sjávar-
réttastaöir eru margir og mikill metnaður lagð-
ur í framreiðslu margs konar fiskrétta. Verðlag
á veitingahúsum er mismunandi en eins og
áður segir ætti fjögurra manna fjölskylda að
greiða um fimmtán til tuttugu pund fyrir nokkuð
góðan málsverð.
VIKAN 56 16.TBL. 1995