Vikan - 16.06.1993, Síða 9
þrifin i fang brúðgumans
með tilþrifum. Kirkjugestir
hlógu innilega með brúð-
hjónunum og þetta segja þau
Geir og Guðrún að hafi létt
andrúmsloftið verulega. „Það
voru eiginlega allir hlæjandi
eftir þetta,“ segir Guðrún
Helga og þegar myndir frá
vígslunni eru skoðaðar þarf
ekki frekari vitnanna við.
Veislan var hin veglegasta
og mættu um 150 manns í
hana. Hún var haldin í Odd-
fellowhúsinu, matur og
skemmtiatriði að hætti Vals-
manna og Kvenfélagsins
Ung og aðlaðandi, brúðar-
valsinn stiginn og síðan tók
við dansleikur fram á nótt.
Þá héldu brúðhjónin heim á
leið, undir fullu tungli. Heima
beið þeirra kampavín og ost-
ar en ekki sá stutti, hann var
í pössun. „Geir fór í bakaríið
um morguninn og birtist með
nýbakað bakkelsi við rúm-
gaflinn og morgungjöf.
„Hann gerði allt tilheyrandi
og meira en það, alveg frá
a-ö,“ segir Guðrún Helga og
af orðum hennar má ef til vill
skilja að ekki rúmist allt inn-
an stafrófsins. □
► Veislan.
F.v.: Ragn-
heiður,
Geir,
Guðrún
Helga,
Sólveig
systir
hennar,
Arnar og
Þórhildur.
12. TBL. 1993 VIKAN 9