Vikan - 16.06.1993, Qupperneq 10
TEXTI: KARL PÉTUR JÓNSSON / UÓSM.: KPJ O.FL.
Hér eru gestir að hylla brúöhjónin sem viröast bara nokkuö ánægö meö gesti sína.
Þau hefðu sjálfsagt verið
löngu búin að láta pússa sig
saman ef ekki hefðu komið
til B-keppnir, ólympíuleikar,
heimsmeistarakeppnir, ís-
landsmót, bikarmót og Evr-
ópukeppnir. Þau eru vitan-
lega Guðmundur Hrafnkels-
son, landsliðsmarkvörður í
handbolta, og Valdís Arnars-
dóttir, starfsmaður hjá Sam-
útgáfunni Korpus. Reyndar
gæti þessi lýsing einnig átt
við Geir Sveinsson, félaga
Guðmundar úr Val, en hann
kvongaðist Guðrúnu Arnars-
dóttur viku eftir brúðkaupið
sem hér er til umfjöllunar.
Laugardaginn 29. maí var
svo loksins komið að því að
stíga skrefið til fulls og ganga
upp að altarinu hjá séra Pálma
Matthíassyni í Kópavogskirkju
sem ein bandarísk ferðakona
fullyrti að væri flottasti McDon-
aldsstaðurinn í heiminum.
ÁRS UNDIRBÚNINGUR
Fólk gengur þó ekki inn af göt-
unni og giftir sig, svo mikið er
víst. Undirbúningurinn var
geysilegur og fyrirhyggja nokk-
uð sem þarf að hafa með í
spilinu. Það eru hundruð smá-
atriða sem skipta öll miklu
máli, allir vilja að brúðkaups-
dagurinn sé sá eftirminnileg-
asti á ævinni og allt er gert til
þess að svo megi verða. Hægt
er að kaupa nánast alla þjón-
ustu við brúðkaup og til eru
dæmi um brúðkaup sem kosta
sjö stafa tölur! Valdís og
Gummi ákváðu að vinna mik-
inn hluta undirbúningsins sjálf
og spara þannig fé en auka
fyrirhöfn, sem auðvitað er hið
besta mál því brúðkaupsstúss-
ið er allt hið skemmtilegasta.
Það skýtur skökku við það
tal manna að „allir séu að gifta
sig“ og að brúðkaup séu í tísku
að samkvæmt tölum Hagstofu
(slands giftu helmingi færri sig
árið 1990 en árið 1974! Að
sama skapi hefur giftingarald-
A
HANDBOLTAHETJAN LOKS KOMIN I HNAPPHELDUNA
10VIKAN 12. TBL. 1993