Vikan - 16.06.1993, Qupperneq 17
MATTHÍAS Á.
MATHIESEN OG
SIGRÚN
ÞORGILSDÓTTIR
Matthías var langt frá sölum Al-
þingis er hann sá Sigrúnu fyrst.
Hann var á leið í sveit í Borgar-
firði, sex ára gamall, þegar
hann sá hana út um glugga.
Sigrún bjó í Reykholti en Matth-
ías var í sveit á Stóra-Ási.
Kynni þeirra hófust hins vegar
ekki fyrr en þau voru tólf ára
gömul, er þau hittust á sveita-
balli þar sem Matthías heillaði
stúlkuna með harmóníkuspili
og útlitinu auðvitað, en hún
segir hann strax þá hafa verið
mjög myndarlegan. Að auki
kom í Ijós að Matthías var góð-
ur dansari en hann bauð Sig-
rúnu upp í dans þegar hann
fékk að hvíla nikkuna um stund.
Líklega hefur þeim verið ætlað
að eigast því svo fór að þau
lentu í sama bekk í mennta-
skóla og stuttu eftir stúdents-
prófin hófst sambandið fyrir al-
vöru. Þau fóru á gamlar slóðir
upp í Borgarfjörð til að trúlofa
sig og giftu sig eftir fjögur ár í
festum, hinn 10. apríl 1956.
ÁSGEIR ELÍASSON
OG SOFFÍA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Ásgeir Eltasson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins ( knatt-
spyrnu, og Soffía kona hans
kynntust í gegnum íþróttaiðk-
un hvors um sig. Þau voru
bæði á keppnisferðalagi með
unglingalandsliðum í hand-
bolta og kynntust á skemmti-
stað í Kaupmannahöfn. Ásgeir
segir að sig hafi langað til að
dansa og því hafi hann rokið á
myndarlegustu stúlkuna, það
er að segja Soffíu. Þetta átti
sér stað árið 1966 en fjórum
árum síðar, nánar tiltekið 27.
desember 1970, gengu þau í
hjónaband. Að vísu fóru þau
ekki að vera saman fyrr en
nokkru eftir komuna frá Dan-
mörku. Þá hittust þau í
Glaumbæ. Ásgeir var feiminn
á þessum árum og Soffía seg-
ist oftast hafa þurft að hafa
orðið og líklega þurft að brjóta
fsinn og hringja í hann að fyrra
bragði í fyrsta skipti sem þau
töluðu saman í síma.
SÆMUNDUR PÁLSSON
OG ÁSGERÐUR
ÁSGEIRSDÓTTIR
Sæmundur Pálsson eða
Sæmi rokk kyssti Ásgerði
konu sína í fyrsta skipti í aftur-
eftir þegar Sæmi kom fljót-
andi á vindsæng niður ána
sem liggur í gegnum Vagla-
skóg, framhjá Ásgerði og vin-
konum hennar sem voru að
sleikja sólina. Tíminn leið og
sætinu á bílnum hans Gulla
Bergmann. Þá var snótin að-
eins fimmtán ára og Sæmi,
sem var tuttugu og eins árs,
var nýbúinn að heilla hana er
hann sveiflaði henni til og frá
á dansgólfi af sinni alkunnu
snilld. Þetta var á Akureyri,
þar sem Ásgerður var búsett,
en Sæmi, Gulli og fleiri vinir
voru á skemmtiferð um versl-
unarmannahelgi. Fundum
þeirra bar aftur saman daginn
fyrr en varði bauð Sæmi
móður Ásgerðar í bíltúr. Er-
indið var að biðja um hönd
dóttur hennar sem þá var að-
eins sextán ára gömul. Engu
að síður fékk Sæmundur vil-
yrði frá móðurinni, með því
skilyrði að hann skilaði
stúlkunni ekki aftur. Sautj-
ánda júní 1958 trúlofuðu Sæ-
mundur og Ásgerður sig og
sama dag ári seinna gengu
þau í hjónaband.
12.TBL. 1993 VIKAN 17