Vikan


Vikan - 20.05.1995, Qupperneq 26

Vikan - 20.05.1995, Qupperneq 26
KVIKMYNDIR LJÓSM.: LINDA E. CHEN ■ Frá árinu 1988 hafa myndir með Bruce Willis halað inn meira en 520 milljónir Banda- ríkjadala eða rúma 33 milljarða íslenskra króna einungis í Bandaríkjunum en um 58 milljarða króna á heims- vísu. Date“ og síðan kúrekastjörn- una Tom Mix í mynd Ed- wards „Sunset“. Geta má fleiri vinsælla mynda, sem hann hefur leikið í, eins og mynd Brians DePalma, blaða í gögnum og því sem ég hafði punktað hjá mér en áður en ég vissi af var Bruce Willis kominn og spurði „Ert þú ekki frá íslandi?" Ég játti því strax. Hann tók í höndina á mér og það hefði ekki farið fram hjá neinum í minni að- stöðu að maðurinn var rammur að afli. Bruce Willis er maður þétt- ur vexti og vel vöðvastæltur. Hann var hress í bragði þeg- ar hann settist í stólinn, íklæddur stuttermabol, hafði rakað af sér allt hárið, var með skegg og leit út svipað því sem Egill Ólafsson gerði í kvikmyndinni Magnús. Hann kunni sólinni vel, það virtist liggja mjög vel á honum og hann sagði að svona veður væri nokkuð sem honum væri að skapi en það hlyti að vera eitthvað öðruvísi á íslandi. Ég byrjaði á þvi að spyrja hann hvort hann hefði komið á þennan stað áður. að þessari mynd staðið en öðrum myndum sem ég hef leik- ið í. Við höfðum svigrúm til að prófa okkur áfram með alls konar hluti og allt var svipað því sem gerist og gengur þegar taka á góða kvik- mynd.“ Þú ert sem sagt tilbúinn til að taka þátt í gerð „ódýrrar" kvikmyndar ef handritið er gott? „Já, nákvæmlega og það er nokkuð sem mig hefur alltaf langað til að koma bet- ur á framfæri. Mín skoðun er sú að ef handritið er athygl- isvert þá verði myndin það einnig - algerlega óháð því hversu miklum peningum er varið í gerð hennar.“ Hver er skoðun þín á myndinni „Colour of Night"? „Sú saga, sem er sögð þar, er mjög sérstök og má jafnvel segja að hún sé furðuleg." Hvernig stóð þá á því að þú tókst hlutverkið að þér í þeirri mynd? „Fyrirtæki mitt datt niður á þetta handrit fyrir um fimm „Bonfire of the Vanities", „Mortal Thoughts", „Billy Bathgate11, „The Last Boy Scout11 og nokkuð nýlegri mynd sem ber heitið „Strik- ing Distance11 svo ekki sé tal- að um „Colour of Night11 oq „North". PENINGARNIR ERU EKKI ALLT Það gerðist mjög óvænt að ég fékk þetta viðtal og því var ekki mikill tími til undir- búnings. Ég settist við borð- ið á veröndinni og byrjaði að „Nei, ég hef aldrei komið hingað áður,“ sagði Bruce. „Mér finnst þessi staður frá- bær - fallegur og mjög áhugaverður." Mér lék forvitni á að vita hvers vegna hann hefði vilj- að leika í „Puip Fiction11 þar sem sú mynd er ekki dæmi- gerð fyrir þær myndir sem hann hafði áður leikið í. „Mig langaði strax til að taka þátt í að leika í þessari mynd. Mér fannst handritið mjög athyglisvert, sagan sem sögð var er mjög sér- stök og nokkuð sem myndi hrista upp í fólki og var það meg- inástæðan fyrir því að mig lang- aði til að taka þátt í gerð þess- arar myndar." Skipti þig engu máli þótt ekki ætti að verja miklum fjármunum í gerð hennar? „Nei, það kom aldrei upp í huga minn og í sannleika sagt þá fannst mér ekkert öðruvísi Bruce Willis og Maria de Medeiros í kvik- myndinni „Pulp Fiction". geysivinsælu „Die Hard“- myndum og andhetjunnar Dr. Ernest Menville í „Death Becomes Her“ til Víetnam læknisins, sem þjakaður er af minningunum frá stríðinu, í mynd Normans, Jewison „In Country11. Þess má geta að Bruce hljóp í gerð ýmissa kvik- mynda þegar hann var ekki að leika í hinum ótrúlega vin- sælu sjónvarpsþáttum „Moonlighting". Fyrst lék hann á móti Kim Basinger í mynd Blake Edwards „Blind árum og við biðum með að búa þessa mynd til þangað til við fundum réttu aðilana til að framleiða hana. Þetta er mynd sem fjallar um mann sem missir trúna á lífið og sjálfan sig og mig langaði til að kanna slíkan hugarheim og setja mig í sömu spor og einstaklingur í þannig aðstöðu." Þú varst spurður að því á blaðamannafundinum í gær hvað þér fyndist um að eyða svona miklum peningum í þessa mynd sem væri ekkert annað en rusl. Hvað finnst þér um þessar aðdróttanir? „Ég hef í raun ekki hugsað mikið um þetta en það var greinilegt að þessi kona var að reyna að auðmýkja mig og móðga í viðurvist alls þess fjölmiðlafólks sem var á staðnum. Ég er farinn að vera viðbúinn aðdróttunum sem þessum og segi: Hver vill ekki verða frægur? Núna er þessi kona pínulítið fræg vegna þess að fólk hefur ör- ugglega komið til hennar og spurt hana hvers vegna hún hafi gert þetta en almennt séð finnst mér þessi fram- koma smánarleg. Ég meina - skammaðist þú þín ekki fyrir hennar hönd?“ Jú, ég verð að viðurkenna það. „Mér fannst gagnrýni þessa fólks óréttmæt gagn- vart öllum hlutaðeigandi - en í sannleika sagt: „Fuck them!“.“ Nú er þessi mynd, „Colour of Night", ansi djörf og þú ert í vægast sagt mjög djörfum atriðum. Hefur aldrei komið upp misklíð milli ykkar Demi út af slíkum hlutum? „Nei, hún hefur sjálf leikið í svona senum og veit að þetta er bara leikur en okkur finnst þetta báðum mjög pín- leg staða." Því miður höfum við ekki lengri tíma núna til að spjalla en mig langar til að spyrja þig að lokum hvað komi upp í huga þinn þegar talað er um island? „Ég hef heyrt að Græn- land sé snævi þakið en ís- land sé grænt. Er það rétt?“ Já, það er rétt. Heldurðu að þú eigir eftir að leggja leið þína þangað? „Já, það er engin spurning - ég kem!“ sagði þessi ofur- hetja kvikmyndanna að lok- um um leið og hann kvaddi mig og hélt á braut. □ 26 VIKAN 5. TBL. 1995
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.