Vikan - 20.06.1995, Síða 6
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON/UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Pað eru mörg atriöi sem greina kvenkynið frá karlkyninu
en eitt þeirra eru brjóstin sem aöeins konur hafa til að bera.
Þær eru þó ekki allar jafn ánægöar meö þennan líkamshluta,
sem flestum karlmönnum finnst mjög eftirsóknarverður þeg-
ar kemur aö kynlífinu. Brjóstin eru stundum, aö mati sumra
kvennanna, of lítil, of stór, of sigin, hafa ekki rétta lögun, eru
meö húöslit eöa annaö. Sumum þessara vandamála hafa
læknar og aörir sérfræöingar brugöist viö og komið konum,
sem viö þau eiga aö stríöa, til hjálpar meö ýmsum aöferðum.
Sum þessara vandamála geta veriö heilsuspillandi, eins og
til dæmis þegar konur eru með mjög stór brjóst, en þaö getur
leitt til háls- og bakverkja og fleiri kvilla.
Paö sem kalla mætti skort á hluta af kvenlegri fegurð er
þegar brjóstin eru lítil sem engin. Sumir hafa kallað stækkun
á þeim meö aðgerð hégóma en þar sem þetta er eitt af aöal-
kyneinkennum kvenna og krafan um fullkominn líkama er
nánast allsstaöar má velta því fyrir sér, nú í nútíma þjóöfé-
lagi, hvort vöntun á reisn þessara líkamshluta sé hégómi.
Par sem mörg þessara áhyggjuefna kvenna, sem hér hafa
verið nefnd, eru algengari en margan grunar langaði okkur
hjá Vikunni aö grennslast fyrir um þau og athuga hvaöa úr-
bætur standa til boöa ásamt því að líta almennt á brjóstin frá
ýmsum hliöum.
Blaðamaður Vikunnar leitaði víða fanga hvað þetta efni
varðar, bæöi hér heima og erlendis. Hann ræddi viö íslenska
konu sem var aö láta stækka brjóst sín, fylgdist meö aögerð-
inni og talaði viö konuna á eftir um væntingar hennar um ár-
angur aögeröarinnar og upplifun hennar hvaö þetta varöaöi.
Einnig var rætt viö íslenskan lækni, sérfræðing í lýtalækning-
um, sem framkvæmir ýmsar aögeröir á brjóstum kvenna,
Sigurö Þorvaldsson, en hann er einn þeirra lækna sem hafa
hvaö mesta reynslu á þessu sviöi hér á landi. □
Margar spurningar
geta örugglega
vaknaö þegar um-
ræöuefniö snýst um brjóst
eins og til dæmis þessar:
Hvers vegna eru sumar kon-
ur meö stór brjóst en aðrar
meö lítil? Hvaö eru brjóst?
Er hægt aö fá fullnægingu
meö því einu að örva brjóst-
in? Mjólka stór brjóst meira
en lítil? Er silíkoniö, sem not-
aö er við brjóstastækkanir,
krabbameinsvaldandi? Hvaö
er brjóstamyndataka? Getur
hún verið sársaukafull? . . .
og svo framvegis.
HVAÐ ER BRJÓST?
Brjóstiö er samansett úr
kirtlum ásamt fitu- og band-
vef. Engir vöövar eru í
brjóstinu sjálfu nema þá í
húöinni en nokkrir vöðva-
þræðir eru þó í kringum geir-
vörtuna. Hvert brjóst hefur
fimmtán til tuttugu og fimm
„aðalkirtla“ en hver þeirra er
samansettur af mörgum
mjólkurkirtlum. Sérhver kirtill
er umlukinn fitu- og bandvef
og frá kirtlinum liggja mjólk-
urgöng út í svokallað mjólk-
urhólf en þaö er staðsett bak
viö geirvörtuna og geymir
mjólkina þangaö til henni er
mjólkað út af barninu - eöa
meö öörum hætti.
Hægt er aö fullyrða að
hægra og vinstra brjóst sér-
hverrar konu séu aldrei ná-
kvæmlega eins. Þaö er frek-
ar regla en undantekning aö
annað brjóstiö sé heldur
stærra en hitt en brjósta-
stæröin fer aö langmestu
leyti eftir því hversu mikið
umfang fituvefsins er. Kirtil-
vefurinn og bandvefurinn eru
oftast í miklum minnihluta.
Hvers vegna sumar konur
fá stór brjóst en aðrar lítil er
ekki nákvæmlega vitaö en
nokkuð víst er að erfðir og
hormónakerfið gegna þar
stóru hlutverki.
BRJÓSTIN VIÐ
KYNÞROSKANN
Brjóstin byrja að vaxa hjá
stúlkum þegar þær komast á
kynþroskaaldurinn. Það er
fyrst og fremst estrógen
hormónið sem stjórnar
brjóstaþroskanum. Fyrst
byrjar geirvartan aö stækka
og geirvörtubaugurinn
þykknar og eftir því sem
band- og fituvefurinn í brjóst-
inu eykst þeim mun hvelfd-
ara veröur brjóstiö.
Ef stúlkur eru mjög grann-
ar eða grennast mikiö á kyn-
þroskaaldrinum er hætt viö
aö brjóstin nái ekki aö þrosk-
ast eðlilega og stækka því
fituvefurinn gegnir lykilhlut-
verki. Þroski brjóstanna get-
ur hreinlega stöövast viö
mikið og langvarandi þyngd-
artap.
BRJÓSTIN OG
KYNLÍFID
Brjóstin eru eitt augljós-
asta tákniö um kynferði kon-
unnar og þau geta jafnframt
veriö mjög kynnæmt svæði.
Eftir því sem næst verður
komist hafa ekki verið gerð-
ar rannsóknir á íslandi sem
sýna óyggjandi fram á
hversu mikilvæg brjóstin eru
fyrir konur þegar aö kynlífi
Ó VIKAN 6. TBL. 1995