Vikan


Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 47

Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 47
létt tónlist en ekki sú alvar- lega,“ segir hann. Jóhann var frumkvöðull að stofnun Músíktilrauna og sat nokkur ár í stjórn Tónlistarhússins. Fyrir nokkrum árum stofnaði hann Púlsinn ásamt nokkr- um félögum sínum. „Þetta var áhugaverður tími. Við tókum upp og mynduðum helstu tónlistarviðburði með vandaða útgáfu í huga á þriggja ára afmælinu. Við vorum m.a. í samstarfi við Bylgjuna um beinar útsend- ingar í hverri viku í samfleytt níu mánuði svo það var úr miklu efni að moða. Með hvaða hætti rekstur Púlsins lagðist af gerði þessar hug- myndir að engu. Annars átt- um við í rauninni aldrei að opna Púlsinn því þegar stað- urinn var opnaður sátum við uppi með tíu milljóna skuld vegna framkvæmda við eig- ið húsnæði Vífilfells. Þá var hluti framkvæmda- kostnaðar reiknaður inn í leiguna sem á endanum var komin hátt í hálfa milljón á mánuði fyrir vonlausan stað undir veitingarekstur miðað við staðsetningu. Endalok Púlsins urðu þó til þess að ég sneri mér aftur að eigin sköpun og í framhaldi hef ég markvisst verið að losa mig út úr öllu öðru vafstri til að geta sinnt myndlistinni og tónlistinni sem best,“ segir Jóhann. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig hafi gengið að draga fram lífið sem skapandi listamaður. Jóhann segist hafa sett sér það markmið strax í upphafi að þrauka og fara ekki í nein önnur störf en þau sem snertu tónlist og síðan myndlist. „Ég var með gallerí á sín- um tíma og kom upp m.a. myndleigukerfi. Ég leigði fyr- irtækjum og einstaklingum málverk, setti þau upp og bauð kaupleigusamninga," segir hann. í fyrra var stofn- aður listkaupaklúbbur í kringum Jóhann til þess að skapa honum starfsgrund- völl. „Þetta skilar sér í betri aðstöðu, minna óöryggi og því að hægt er að vinna markvissar að sýningum. Mikið af tíma myndlistar- manna fer í fjárhagsáhyggj- ur, þannig að allur stuðning- ur, sem gerir listamanninum kleift að einbeita sér betur að listsköpuninni, ætti að skila sér í betri verkum. Með skattaívilnunum gæti ríkið stuðlað að því að fyrirtæki fjárfestu meira í myndlist en það yrði góður stuðningur við íslenska myndlistar- menn.“ 200 LÖG OG TEXTAR Jóhann segir textagerðina oft hafa verið veikasta hlekk- inn í annars frábærri ís- lenskri tónlist. „Margir textar eru mikið yfirborðshjal,“ seg- ir hann. „Ég vil taka afstöðu í gegnum textana. Spilltur heimur Óðmanna kom út 1969, og er, að ég held, fyrsti ádeilutexti sem kemur fram. Þar er verið að fjalla um stríð og hagsmuni vopnaframleið- enda. Á seinni plötu Óð- manna, í laginu Bróðir, var fjallað um misskiptingu lífs- gæða og afleiðingu þess ef höfin yrðu lífvana vegna mengunar, eins og franskur haffræðingur spáði f grein sem ég las og varð kveikjan að textanum. Á hippatímabil- inu trúðu margir því að kær- leikurinn væri lausnin og allt þetta mótaði mann og hefði áhrif. Ég vildi því syngja um eitthvað sem skipti máli. Mitt efni verður venjulegast til vegna þess að mér liggur eitthvað á hjarta," segir Jó- hann. Á sólóplötunni Langspil, er Jóhann að fjalla um sam- skipti kynjanna. Sú plata snýst mjög mikið um mann og konu og tilfinningar. Langspil var bönnuð hjá Rík- isútvarpinu því vissum aðil- um fannst hræðilegt að ís- lendingur væri að syngja á ensku. Lagið Ef, sem Björgvin Halldórsson söng, var fyrsta framlag Jóhanns til Eurovis- ion-keppninnar en til þessa hafa komið út 200 lög og textar eftir hann. Meðal eftir- minnilegra texta síðustu ára er Hjálpum þeim, sem Jó- hann samdi við lag eftir Axel Einarsson. „Það þurfti tals- vert til að koma þeirri hug- mynd í framkvæmd því tón- listarmenn skiptust í tvö horn - með og á móti. Björgvin Halldórsson hafði tekið að sér umsjón með fram- kvæmdinni svo það mæddi mest á honum en venjulega þegar hann tekur eitthvað að sér þá gengur það upp. Þeg- ar svo allir voru orðnir já- kvæðir þá rann lagið inn en það þurfti langan aðdrag- anda. Margt gengi nú betur ef fólk væri jákvætt og léti ekki tortryggni og neikvæðni hamla sér.“ Jóhann fór að semja lög tólf ára gamall. Nú liggur hann með mikið af efni og er að reyna að koma því á framfæri. Hann trúir því að alþjóðleg tónlist eigi mögu- leika í þeim opnu viðhorfum sem ríkja í dag. „Óðmenn lögðu áherslu á hijóðfæra- leikinn og að fara eigin leiðir. Síðan þá hefur það ráðist af eftirspurn markaðarins hverju ég hef komið frá mér að undanskilinni þeirri tónlist sem ég hef gefið út sjálfur. Ég stefni að útgáfu á næsta ári og hef þegar valið um 20 lög með íslenskum textum úr stóru safni og tólf lög með enskum textum sem ætlunin er að þróa áfram með til- raunastarfsemi. Það gilda al- veg sömu lögmál í tónlistinni og hverri annarri vöruþróun að tilraunastarfsemi er nauð- synleg. Markaðurinn hér heima er lítill og þeir, sem honum ráða, eru nánast ein- ráðir. Allt virðist snúast um fyrirfram ákveðnar hug- myndir um hvað selst og hvað ekki, þrátt fyrir vel- gengni óhefðbundinnar tón- listar, samanber tónlist Bjarkar. Sigur norska lags- ins, Nocturne, í Eurovision- keppninni bendir til þess að Eurovision-formúlan sé ekki óskeikult lögmál," segir lista- maðurinn. YRKJUM ÍSLAND Fyrir nokkrum árum samdi Jóhann lagið Yrkjum ísland. Kveikja textans var stofnun sjóðsins Yrkju í tilefni sex- tugsafmælis forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. Lagið var gefið út í fyrra til stuðnings hvatningarátakinu Yrkjum ísland með stofnun fræbanka Landgræðslusjóðs að markmiði. Fyrir nokkru hófst undirbúningur að seinni hluta átaksins sem verður hrint í framkvæmd á næstunni. „Til að ná góðum árangri þarf fólk að skynja málefnið sjálft. Það gengur ekki að þurfa að sannfæra fólk endalaust um að mál- efnið sé gott, hvað þá þegar um landið okkar og velferð komandi kynslóða er að ræða. Álagið verður þá heift- arlega mikið á þá sem eru í framlínu hverju sinni." Jóhann á tvær dætur, er þrefaldur afi og finnst það skemmtilegt hlutverk. „Þótt mér finnist það furðulegt er ég að ná þeim áfanga að verða fimmtugur eftir tvö ár. Nú finnst mér ég nægilega þroskaður til að skynja lífið og hve stórkostlegt það er. Það skynja ég ekki síst í barnabörnunum sem eiga að erfa heiminn. Þar af leið- andi finnur maður til meiri ábyrgðarkenndar og spyr sig hvernig heimi við séum að skila til barna og barna- barna.“ Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Jó- hann er mikill áhugamaður um umhverfisvernd og að hann hefur einnig hugsað sér að leggja „Friði 2000“ lið og segir það stórmerkilegt málefni. ■ Stefnumól við Jóhann G. Jóhannsson á myndlistar- sýningu hans ó veitinga- staðnum Argentína steik- hús. ■ Til þessa hafa komið út eftir hann 200 lög og text ar. Og nú undirbýr hann út gófu á 20 nýjum lögum til viðbótar. ■ „Nú finnst mér ég nægi- lega þroskaður til að skynja lífið og hve stór- kostlegt það er . . Blaðamaður telur það öf- undsvert hlutskipti að geta starfað að því einu sem mann langar til en Jóhann svarar því til að á tímum hafi starfshættir hans verið hálf- gerður kross. „Þegar ég hef fylgst með vinum mínum byggja upp fjölskyldur sínar, eignir og öryggi, hafa komið þeir tímar að ég hefði viljað geta farið sömu leið og þeir. En í upphafi ferils míns varð mér það strax Ijóst að ég gat ekki ráðist í kaup á fasteign, varla bíl, því tekjurnar voru svo ótryggar," segir hann. Hann er þó galvaskur núna, með fyrirhugaða plötuútgáfu á næsta ári og er að vinna að stærri málverkasýningu, sem er fyrirhuguð f haust. Jóhann á lokaorðin: „Það sem virðist auðvelt og aug- Ijóst í hugarheiminum verður oft erfitt í framkvæmd þegar að efnisheiminum kemur en ótrúlega margt af því, sem ég hef séð fyrir mér, hefur þó orðið að veruleika." □ 6.TBL.1995 VIKAN 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.