Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 18
Þrjár gerðir og buxur í stíl
Blúnda, Satín 03 Blúnda hnepptur aö framan
• Stærðir brjósthaldara: 32 til 38 A,B,C,D
• Stærðir buxna: S,M,L OG XL
• Litir: Midnisht (svartur), Frost (hvítur)
03 Champasne (kremlitur).
• Verð brjósthaldara: Kr. 2.460,-
• Verð buxna: Kr. 947,-
BUÐIN
SÉRVERSLUN MEÐ UNDIRFATNAÐ
STRANDGÖTU 28 • 2. HÆÐ • HAFNARFIRÐI
SÍMI: 555 0070
mn
THE ONE AND ONLY
wondefbra
Engin eftirlíking stenst þetta
Að upplifa
hin æsifengnu lögunar áhrif
sem „Hinn eini og sanni"
wonderbra gefur,
fyllir þig sjálfstrausti, öryggi
og kynþokka.
ALDARANS
oo
Ckí
a'
Q
Qd
LLJ
o
Fyrir rúmri öld losaði
brjóstahaldarinn konur
úr lífstykkinu og gerði
þeim lífið eilítið bærilegra.
Konur tóku samstundis ást-
fóstri við brjóstahaldarann
og þrátt fyrir að stundum hafi
kastast í kekki á milli þeirra
tveggja sér enn ekki fyrir
endann á ástarambandinu.
Á nítjándu öld voru dætur
heldri borgara vandar við að
ganga í lífstykkjum frá
barnsaldri. Allt var gert til að
vöxtur þeirra yrði sem líkast-
ur stundarglasi og skipti þá
engu þótt rifbein og innyfli
hlytu skaða af.
Franska lífstykkjagerðar-
konan Herminie Cadolle var
orðin þreytt á því að horfa
upp á þær líkamsmeiðingar
sem lífstykkin höfðu í för
með sér. Árið 1889 útbjó hún
fyrsta brjóstahaldarann sem
vitað er um. Hún kynnti hann
sem heilsubætandi því hann
veitti brjóstunum stuðning án
þess að herða að þindinni.
Konur tóku uppfinningu Ca-
dolle fagnandi og nú, rúmum
hundrað árum síðar, selst yfir
hálf milljón brjóstahaldara á
dag í Bandaríkjunum einum.
Brjóstahaldarinn hefur
verið framleiddur í mörgum
gerðum eftir því hvað verið
hefur í tísku. Á þriðja ára-
tugnum þótti ekki lengur fal-
legt að ýkja kvenlegar línur
Svona leit fyrsti brjóstahaldarinn út.
Ifkamans heldur áttu konurn-
ar að vera sem líkastar
drengjum í vextinum. Þá var
framleidd nærflík sem var
allt í senn; magabelti, nær-
buxur og brjóstahald.
Ekki kunnu allar konur við
það að eiga nú allt í einu að
dylja línurnar og ein þeirra
var kjólaframleiðandinn Enid
Bissett. Hún hannaði afar
kvenlegan brjóstahaldara
sem kallaður var Maiden-
form. Þeir náðu miklum vin-
sældum og eru brjóstahald-
Lana Turner í furöuflíkinni
sem kölluö var Merry Wi-
dow.
arar enn framleiddir undir
þessu merki.
Árið 1935 fór undirfatafyr-
irtækið Warner að bjóða upp
á mismunandi skálastærðir
eins og við þekkjum þær í
dag A, B, C og
D.
Kvikmynda-
stjörnur hafa allt-
af haft áhrif á
tískuna og leik-
konan Jane Rus-
sel vakti athygli
fyrir að ganga í
þröngum peys-
um svo barmur
hennar nyti sín
sem best. Geim-
ferðafyrirtæki
Howard Hughes
var fengið til að
hanna brjósta-
haldara á pers-
ónu sem Russel
lék í myndinni
The Outlaw. Þetta var á tím-
um seinni heimsstyrjaldar-
innar þegar bómull og silki
voru af mjög skornum
skammti og var haldarinn
þvf gerður úr málmi. Russel
þótt hann svo óþægilegur að
hún notaði hann aldrei.
Eftir seinni heimsstyrjöld-
ina notuðu konur stoppaða
brjóstahaldara eða létu sig
hafa það að stífa þá. Um
það leyti hvarf tískuhönnuð-
urinn Christian Dior aftur í
tímann og hafi mittið á kven-
fatnaðinum svo grannt að
konur urðu að nota maga-
belti. Og enn lifði
stundaglasavöxturinn góðu
lífi í dálítinn tíma.
Þegar Merry Widow kom
fram á sjónarsviðið gátu
konur fengið brjóstahaldara,
magabelti og nærbuxur í
sömu flíkinni. Framleiðslan
hófst eftir að leikkonan Lana
Turner kom fram í slíkri flík í
myndinni Merry Widow árið
1952. Hún lét þau orð falla
að flíkin hefði eflaust verið
framleidd af karlmanni.
„Engin kona myndi gera
annarri konu þetta.11
Á sjöunda áratugnum
kröfðust konur jafnréttis á
við karla og einn liðurinn í
baráttunni var að brenna
brjóstahaldarana. Læknar
vöruðu þær við sliti en þær
létu það sem vind um eyru
þjóta. Konur áttu ekki að
þurfa að líða nein höft og
ekki heldur barmur þeirra.
Úrvalið af brjóstahöldurum
hefur aukist mikið á síðustu
árum. Þeir fást nú í öllum lit-
um og því engin ástæða til
að einskorða sig við hvítt
eða húðlitt. Rautt, svart,
dökkblátt og ferskulitt þykja
mun munúðarfyllri.
Triumph framleiðir meðal
annars sérstaka brjóstahald-
ara fyrir mjólkandi mæður og
íþróttakonur sem þurfa góð-
an stuðning við brjóst sín.
Einnig eru til fylltir haldarar
fyrir konur með lítil brjóst og
Lilyette, dótturfyrirtæki
Triumph, sér til þess að ung-
ar stúlkur, sem nota stórar
skálar, fái fallega haldara.
Wonder Bra brjóstahaldar-
arnir hafa selst eins og heit-
ar lummur hér á landi en þeir
gera það að verkum að
brjóstin sýnast eilítið stærri
en þau eru og falleg skora
myndast á milli þeirra.
Ekki þykir verra að glitti
aðeins í haldarann í gegn-
um bolinn eða að hlýrinn
gægist undan honum, enda
synd og skömm að hylja
jafn fallega flík og brjósta-
haldarinn er. □