Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 31
f BOÐI 0THE BODY SHOP
HVAÐ
Pað kemur ekki á óvart að bólur
eru taldar táningaböl þar sem
80% unglinga fá bólur. Og eins
og við öll vitum þá virðast þær
alltaf koma þegar eitthvað
sérstakt stendur til! En bólótt
húð er ekki sjúkdómur - heldur
hluti af uppvextinum og þess
vegna hefur The Body Shop
ER TEA
framleitt Tea Tree húðvörurnar;
skærgrænar vörur með
skemmtilegri ímynd, en alvöru
virkni. Pær eru sérstaklega
hannaðar fyrir unglinga með
venjulega, feita eða bólótta húð.
Vörurnar eru byggðar á olíu
sem er unnin úr Melaleuca
alternifolia, en það er trjáteg-
TREE?
und sem vex einungis í Ástralíu
og er betur þekkt undir nafninu
Tea Tree. Nafnið er tilkomið
vegna þess að frumbyggjar
Ástralíu bjuggu til Ijúffengt te
úr laufblöðunum. Einstæðir
eiginleikar olíunnar gera hana
að tilvöldu efni í húðsnyrtivörur,
hún er bakteríueyðandi, drepur
sveppi, hún er djúphreinsandi
og sefandi og er því kjörin fyrir
bólugrafna og erfiða húð.
Mikilvægt
er að
hreinsa
húðina
vandlega
Hugsaðu þér öll þau óhreinindi
sem safnast saman yfir daginn
fita, dauðar húðfrumur, ryk, salt
og þvagefni, sem verða til við
svitamyndun, bakteríur og
andlitsfarði, ef þú notar hann.
það tæki þessi óhreinindi um
það bil 28 daga að hverfa af
sjálfu sér ef húðin væri ekki
hreinsuð. Það kallast ekki að
hreinsa húðina að þvo sér
lauslega um andlitið á hverju
kvöldi fyrir svefninn.
Nauðsynlegt er að blanda
einhvers konar hreinsiefni
saman við vatnið. Slík
vökvablanda dregur óhreinindi
fram þannig að hægt er að þvo
þau eða þurrka í burtu. Ef þú
hreinsar húð þína ekki vandlega,
þá verður hún daufleg og líflaus
og meiri líkur eru á bólum og
fílapenslum sem orsakast af
stífluðum svitaholum.
Lykilatriði í árangursríkri
hreinsun húðarinnar er að nota
rétta tegund efna. Ef þú notar
efni sem eru of sterk eða efni
sem virkar hrjúft eins og
sandpappír þá getur það
eyðilagt varnarlag húðarinnar
(sem nefnist "súr möttull"). Ef
efnið er of milt þá er það
gagnslaust.
Tea Tree línan frá The Body Shop
Fljótandi Tea Tree andlitssápa
er bakteríueyðandi, hún hindrar
að óhreinindi safnist saman og
þar sem hún er mild þá þurrkar
hún ekki húð þína. En ef þú vilt
heldur vatn og sápu þá er til...
Sápa með Tea Tree olíu, sem
er sápa eingöngu gerð úr
jurtum. Hana má nota á andlitið
og líkamann til að sefa og
styrkja bólugrafna húð..
Fljótandi hörundssápa með Tea
Tree olíu er hægt að nota á allar
húðgerðir og allur líkaminn
getur haft gott af djúp-
hreinsandi áhrifum hennar.
Þessi bakteríueyðandi sápa
eyðir bólum á baki, öxlum og
brjóstkassa og þar sem i henni
er glyserín þurrkar hún ekki húð
þína.
Andlitsvatn með Tea Tree oliu.
í því er Tea Tree olía sem gefur
raka og eyðir bakteríum,
nornahesli sem herpir mildilega
saman líkamsvefi, allantoin til
að sefa og glyserín til að gefa
raka. Olían tryggir að
andlitsvatnið þurrkar ekki húð
þína jafnvel ekki þegar
nornaheslið hreinsar síðustu
leifar óhreininda og andlitsfarða.
Bólustaukur með Tea Tree olíu
hjálpar til við að eyða bólum og
flýtir fyrir að húðin grói. í
bólustauknum eru einnig allatoin
og bisaboloi til að sefa húðina.
Tea Tree olía. Olíuna má bera
beint á húðina og bólur eða
blanda vatni saman við hana til
að djúphreinsa andlitið.
Hægt er að fá áfyllingar á:
Fljótandi andlitssápuna, andlits-
vatnið og fljótandi hörunds-
sápuna. Eins og með aðrar
vörur frá fyrirtækinu hafa Tea
Tree vörurnar að sjálfsögðu ekki
verið prófaðar á dýrum.
Góðar ráðleggingar
tíl að bæta húð þína
Ef umhirða húðarinnar er eftir
settum reglum þá ætti húð þín
smám saman að verða betri.
Það er einnig ýmislegt annað
sem þú getur gert til að tryggja
að húð þín verði heilbrigð og
bólulaus.
1. Drekktu mikið af vatni. Það
hreinsar líkamann auk þess sem
það losar þig við óhreinindi sem
geta valdið bólum.
2. Neyttu fjölbreyttrar fæðu.
Borðaðu mikið af nýjum
ávöxtum og grænmeti, grófu
brauði, hrísgrjónum, pasta,
morgunkorni, fiski og kjúkling.
Reyndu að minnka neyslu á
sykri og unninni matvöru.
3. Leggðu stund á líkamsrækt.
Það örvar blóðrásina og húðin
geislar af heilbrigði.
4. Ekki neyta of mikils áfengis.
Það þurrkar upp líkamann þinn,
sviptir hann B-vítamínum og
eyðileggur æðar sem skilja eftir
sig æðaslit í andliti.
5. Ekki reykja. Þá eldist húð þín
hraðar. Það eitt að totta
sígarettur veldur hrukkum
kringum munn og augu.
Benzopyrene er efni sem
myndast í sígarettureyk,
Það hindrar líkamann í að nýta
C-vítamín, sem aftur veldur
rýrnun á kollageni sem er
aðalstuðningsprótínið í húð,
sinum, beinum, brjóski og
stoðvef.
6. Fáðu nægan svefn. Þá líður
þér vel - og þegar þér líður vel
þá lítur þú vel út. Frumu-
skiptingar og endurnýjun
húðvefja eiga sér stað hraðar í
svefni en vöku.
7. Verndaðu húðina gegn
sólinni. Sólin er mesti skað-
valdur húðarinnar. Sólarljósið
veldur mörgu af því sem áður
var álitið ellimörk, þar með
taldar hrukkur og þurr húð.
8. Ekki koma mikið við andlitið
þegar þú ert með bólur. Það
dreifir bakteríum og kemur í veg
fyrir eðlilegan bata.
9. Slappaðu af. Streita gerir
húðina feitari og grettur auka
hrukkumyndun.
10. Notaðu rakakrem á veturna.
Það kemur í veg fyrir að kuldinn
þurrki húðina og hún springi.
11. Hindraðu áhrif mengunar.
Haltu óhreinindum, mengun og
fitu í skefjum með reglulegri og
gagngerri hreinsun húðarinnar.
Verslanir The Body Shop eru: í Kringlunni 8-12, 103 Reykjavík, simi 588 1299 & Laugavegi 51,101 Reykjavík, sími 561 7299