Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 50
TRÚMÁL
„Það er
eitthvað svo
sérstakt við
hattana,
þeir skapa
svo mikil
tengsl milli
fólks," segir
Ingunn
Hagen.
mjög skemmtilegt samstarf.
Svo hef ég gert útvarps-
þætti fyrir norska útvarpið
þar sem ég segi frá íslandi
og tengi það heimspeki og
trú og hefur Ríkisútvarpið
verið mér hjálplegt [ þessu
sambandi.
Þegar ungi Norðmaðurinn
fórst í snjóflóðinu í Bláfjöllum
hélt ég minningarguðsþjón-
ustu fyrir fjölskyldu hans
sem kom til landsins vegna
þessa sorglega atburðar.
Jarðarfarir minna mig á
það að við eigum öll okkar
sorgir í lífinu. Margir þora
ekki að horfast í augu við
sorgina í lífi sínu. Hún getur
verið vinátta sem brast,
áform sem ekki gengu upp
eða hjónaband sem endaði
með skilnaði - allt saman
vonbrigði. Sorgarferli er
meira en að syrgja látna
manneskju og oft verður
presturinn að segja aftur og
aftur við aðstaðendur að þeir
megi syrgja en þetta er oft
svo erfitt vegna þess að fólk
er ekki vant því að mæta
sorg sinni og vinna úr henni
fyrr en við dauðsfall nákom-
ins ættingja eða vinar.
Það hjálpar að ræða sam-
an og presturinn á að vera
stuðningur syrgjenda og
vera til staðar til að hlusta á
tilfinningar þeirra og reyna
að brúa bilið milli himins og
jarðar, flytja orð sorgarinnar,
vera opinn og reyna að
skilja. Miðla af trú sinni.“
Og Ingunn á mikla trú og
þegar blm. ætlar af sínu al-
kunna innsæi að fara að tala
um örlög er Ingunn ekki á
sama máli. Hún álítur að
slys séu aðeins slys og hafi
enga þýðingu en séu ekki
einhverjir fyrirfram ákveðnir
atburðir sem ekkert fær
breytt og þegar þýðingar-
miklar og jákvæðar tilviljanir
virðast á ferðinni séu það
„brot úr himninum" sem okk-
ur hlotnist, mannanna börn-
um.
„Jeg er en trassig bærer
av háp og tro,“ segir ungi
presturinn sem lauslega
þýðist. „Ég er þrautseigur
fylgjandi vonar og trúar." Ég
leita alltaf til Guðs með
hugsanir mínar og vil lifa
með Guð í hversdagslífinu.
Jesú er fyrirmynd þess
hvernig mæta á ólíku fólki.
Jesú kom fram við alla af
virðingu, eins og jafninga
sína. Hann horfði fram hjá
ytri táknum en leit inn í huga
fólks, erfiðleika þeirra og
gleði. Þegar fólk hittist fjallar
það meira um hinn innri
mann, hugsanir og tilfinning-
ar, heldur um ytri umgerð
fólksins.
Aftur á móti sæki ég kven-
ímyndir mínar í Biblíuna. Allir
hafa heyrt um Móses og Ar-
on en við tölum sjaldnar um
Miriam sem einnig tók þátt í
að leiða ísraelsmenn út úr
Egyptalandi. Hún var kven-
legur leiðtogi með aðra eig-
inleika en bræðurnir. Hún
notaði hugmyndaflugið og
leiddi fólkið meðal annars
með söng og dansi.
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
'0IJJOM !)|!>jsnt09 -g ge>i>!æis pjoqjqn 'S 'wn
-u!uueujn|6ðj6q| q pipjo SunAejqepeijqdiAg p piqoq jn>|æqe|9>)s e 'ismus su|s6uajp
QnjQH z qsAejq jnjaq p|>)joujn|6ej6oq ') :epuAuj miuj p pipjo ejeq jeöuiiAejq jepiepso
Það er auðvelt að sann-
færast þegar rætt er við Ing-
unni Hagen, ættaða úr
Svindal í Noregi, því að hún
er vel að sér og rökföst. Alls
kyns bækur um listræn og
andleg efni má sjá í litlum
stöflum hér og þar á borðum
heima hjá henni en eitt á eft-
ir að ræða við hana um og
það er dansinn.
Auk þess að vera prest-
lærð er Ingunn lærð í leik-
rænum uppeldisfræðum
(drama-pedagog) og nýtir
sér það í starfi sínu sem
prestur en einnig dansar hún
Afríkudans í Kramhúsinu og
hefur af því mikla ánægju.
„Afríkudans og aðrir dans-
ar gefa tækifæri til að nota
líkamann. Mér finnst við
manneskjurnar svo fallegar
og vel af Guði gerðar, svo
sérstakar og það vekur með
mér mikla gleði að dansa
þessa dansa.
Ég söng í suður-afrískum
kór í Ósló. Kórinn söng frels-
issöngva og á ég marga af-
ríska vini, bæði svarta og
hvíta sem þjáðust vegna
þess að þeir bjuggu í landi
þar sem fólki var haldið niðri
og það kúgað. Kristnin gerir
okkur meðvituð um óréttlæti
og fær okkur til að taka af-
stöðu.
Við konurnar í prestastétt
getum lagt nýjar línur. Við
þurfum ekki að falla inn í
neitt mynstur vegna þess að
við erum öðruvísi.
Reynsluheimur okkar er
öðruvísi en karlprestsins og
við leggjum aðrar áherslur í
prédikunina en áður hefur
verið gert. Ég held að við
þurfum bæði á karl- og kven-
prestum að halda til að
margbreytileikinn geti notið
sín. Við höfum ólíka hluti
fram að færa en þegar lagt
er saman er heildinni náð.
Þar fyrir utan finnst mér að
við konur ættum að fara að
láta til okkar taka og sækja í
stöður þær sem eingöngu
karlmenn hafa áður gegnt. Á
þann hátt getum við konur
haft áhrif á samfélagsum-
ræðuna og samfélagsþróun-
ina í mikilvægum rnálum."
Við þökkum Ingunni fyrir
spjallið. Gaman væri að
glugga ofurlítið í Biblíuna og
sjá hvort konurnar í hinni
helgu bók minna á ungu
konuna á Seltjarnarnesi sem
leitar til Guðs með hugsanir
sfnar og reynir að sjá brúna
milli himins og jarðar. □
50 VIKAN 6. TBL. 1995