Vikan - 20.06.1995, Qupperneq 15
eins og hvort brjóstin geti
slappast af því að vera hald-
ið svona uppi eins og
brjóstahaldarinn gerir. Sumir
læknar hafa svarað því til að
það eigi ekki að hafa nein
áhrif á stinnleika brjóstanna
en þrátt fyrir það eru margir
mjög efins hvað þetta varðar.
BRJÓSTIN OG
TÍÐAHRINGURINN
Eins og gerist með legið
þá undirbýr vefur brjóstanna
sig fyrir hugsanlega þungun.
í fyrri hluta tíðahringsins er
það estrógen-hormónið sem
veldur því að blóðflæði til
þeirra eykst og efnaskipti
þeirra einnig. Frumur brjóst-
anna geta einnig, í sumum
tilfellum, byrjað að framleiða
vökva.
Þessi auknu efnaskipti,
ásamt auknu blóðflæði til
brjóstanna, geta valdið því
að þau verði stinn og við-
kvæm fyrir blæðingar.
Með því að vera meðvit-
aður um eðli og tímasetn-
ingu þessara breytinga getur
konan komið í veg fyrir
óþarfa áhyggjur vegna
hnútamyndunar eða verkja í
brjóstunum.
Brjóstin eru að jafnaði
hnútótt og áberandi hnútar
geta komið reglulega í Ijós
og minnkað síðan verulega
eða jafnvel horfið alveg viku
eftir blæðingar án þess að
um krabbamein sé að ræða.
Á hinn bóginn ætti ekki að
sniðganga neinar þær breyt-
ingar sem konur verða varar
við í brjóstum sínum hvort
sem um fyrirferðaraukningu
eða eymsli er að ræða og
því er mikilvægt að þær
komi til krabbameinsleitar
reglulega.
FIMM BRJÓSTVÆNAR
RÁÐLEGGINGAR
Þrátt fyrir að eftirfarandi
atriði séu ekki alveg óbrigðul
þá ættu þau að sjá til þess
að bæði brjóstin og eigandi
þeirra séu í góðu formi.
1. Æskilegt er að konur
séu í brjóstahaldara. Það
sem aðallega heldur lögun
brjóstanna við er sú húð
sem umlykur þau og band-
vefur vöðvanna.
Því stærri sem brjóstin eru
því mikilvægara er að vera í
brjóstahaldara. Eftir því sem
brjóstin eru þyngri reynir
meira á bandvef þeirra og
því þyngri sem þau eru því
meir teygist hann. Að sjálf-
sögðu geta lítil brjóst einnig
sigið og því getur brjósta-
haldarinn einnig komið að
notum hjá konum með slík
brjóst.
2. Fteyna ber að forða
brjóstunum frá sólinni. Sól-
vörn og föt hlífa húðinni mik-
ið fyrir geislum sólarinnar en
útfjólublár hluti þeirra brýtur
niður kollagen og elastín net
húðarinnar og þar með verð-
ur teygjanleiki hennar minni.
Stöðug sólböð geta verið
mjög skaðleg húðinni og
sólbruni er enn verri.
3. Líkamsþjálfun er af hinu
góða og getur hún gert
ágæta hluti fyrir barminn.
Með því að þjálfa brjóst-
kassavöðvana (pectoral-
vöðvana) eykst þykkt þeirra
og þar sem þeir liggja undir
brjóstunum verður umfang
barmsins í heild meira.
4. Reyna á að halda
þyngd sinni sem stöðug-
astri þvi miklar sveiflur -
jafnvel fimm kíló til eða frá
- verða þess valdandi að
stöðugt strekkist og slakn-
ar á húð brjóstanna og
einnig annarsstaðar og því
tapar hún smámsaman
teygjanleika sínum. Brjóst-
in síga og húðslit getur
myndast.
5. Æskilegt er að konur
þreifi brjóst sín reglulega til
að þær þekki þau vel og séu
betur í stakk búnar til að
segja til um ef eitthvað óeðli-
legt er á ferðinni.
Gott er að þreifa brjóstin
ekki sjaldnar en mánaðar-
lega, strax eftir blæðingar,
því þá eru brjóstin mýkst og
lítið viðkvæm.
>
<
KYNÞROSKA ALDUR
• Á þessu æviskeiði byrja
brjóstin að myndast út frá
klasa af frumum undir geir-
vörtunni og eru þær nefndar
brjóstapúði. Þessar frumur
myndast á fósturskeiði eða
þegar fóstrið er um átta vikna
gamalt. Frumurnar eru óvirk-
ar þangað til eggjastokkarnir
byrja að framleiða eitthvað af
estrógen-hormóninu sem að
meðal annars örvar brjóstvef-
inn til að þroskast. Þessi
hormónaframleiðsla er samt
ekki nægjanleg til að koma
tíðablæðingunum af stað
sem gerist ekki fyrr en nokk-
uð mörgum um árum síðar.
• Húð brjóstanna og
bandvefur þeirra eru mjög
öflug þannig að brjóstin eru
mjög formföst nema þau séu
sérstaklega stór-með mjög
svipað magn af vef bæði fyrir
ofan og neðan geirvörtuna.
• Á þessum aldri er ekki
of snemmt að byrja að þreifa
eftir óeðlilegum breytingum.
Á TVÍTUGS-
ALDRINUM
• Brjóstin hafa, á þessum
aldri, náð svo til fullum
þroska og lögun þeirra og
stærð mun vera orðið nokk-
uð svipuð því sem hún kem-
ur til með að vera næstu tutt-
ugu árin - fyrir utan það sem
kann að gerast við barns-
burð.
• Læknisfræðilega eru
brjóst orðin fullþroska þegar
ekki er mikill munur á milli
geirvörtunnar og brjóstvefs-
ins sjálfs - en það eru marg-
ir sérfræðingar á þessu sviði
sem segja að þessi munur
hverfi aðeins ef konan elur
barn.
• Brjóstakrabbamein er
mjög óalgengt á þessum
aldri en aldrei er of varlega
farið. Nokkuð ber þó á band-
vefs- og fituæxlum sem eru
að öllu jöfnu góðkynja.
• Oftast eru fyrstu ein-
kenni þungunar þau að
brjóstin eru aum. Heildar
framleiðsla á estrógeni og
prógesteroni frá eggjastokk-
unum og fylgjunni geta
stækkað brjóstin um heila
brjóstahaldarastærð - eða
jafnvel meira.
• Jafnframt stærðaraukn-
ingunni - veltur stærð
brjóstsins, við þungun, mest
á auknu umfangi mjólkur-
framleiðandi kirtla.
• í sextándu viku þung-
unnar eru brjóstin tilbúin til
að framleiða mjólk.
• Ekki er ráðlegt á þess-
um tíma að beita venjulegri
kynörvun geirvartanna af
miklum krafti þar sem það
getur hugsanlega leitt til
ótímabærrar fæðingar. Örv-
un geirvörtunnar getur aukið
framleiðslu á hormóninu oxi-
tósín sem getur valdið sam-
dráttum í leginu.
KONUR Á ÞRÍTUGS
OG FERTUGS-
ALDRINUM
• það er ekki mikið sem
gerist í sambandi við brjóstin
á þessu tímabili, nema kon-
ur verði þungaðar. Algengt
er, á þessum aldri, að meiri
vefur myndist fyrir neðan
brjóstið en ofan.
• Húðslit getur hafa kom-
ið fram eftir barnsburð sem
verður vegna hormónabreyt-
inga í líkama konunnar á
þeim tíma, frekar en það sé
vegna þess að of mikil togn-
un eigi sér stað á húð brjóst-
anna.
• Ef konan hefur haft barn
á brjósti getur hún átt von á
því að brjóstin rýrni eitthvað.
Þetta er nokkuð algengt en
konur geta vænst þess að
fituvefurinn verði sá sami
eða aukist að einhverju
marki innan árs en oft verður
sú ekki raunin.
• Þegar konur hafa náð
þrjátíu og fimm ára aldri er
nauðsynlegt fyrir þær að
þreifa brjóst sín mánaðar-
lega, með tilliti til brjósta-
krabbameins, og ráðfæra sig
við lækninn sinn um brjósta-
myndatöku.
Á FIMMTUGSALDRI
• þegar blæðingar hætta
minnkar framleiðslan á est-
rógen-hormóninu og brjóstin
rýrna oft að sama skapi en
það er þó mjög einstaklings-
bundið. Ef viðkomandi kona
tekur inn estrógen hormón
getur verið að brjóstin
stækki og verði viðkvæm
eins og fyrr.
• Skortur á estrógeni hef-
ur mikil áhrif á stinnleika
húðarinnar og konur geta
orðið varar við að brjóstið
sígi eitthvað. Ef konan hefur
orðið þunguð hefur það að
sjálfsögðu áhrif á stinnleika
brjóstanna.
• Ef kona hefur haft barn
á brjósti er mun ólíklegra að
hún muni fá alvarlega bein-
þynningu, vegna þess að
meðan hún er mjólkandi þá
taka bein hennar meira af
kalki til sín en ella og það
þýðir að hún er betur undir-
búin undir beinþynningu síð-
ar á ævinni.
• Sérfræðingar fullyrða
að það eigi ekki að vera
neinar sérstakar meginbreyt-
ingar á þéttleika brjóstanna
á fimmtugsaldri. Þessar
breytingar eiga að vera frek-
ar hægfara og mjög einstakl-
ingsbundnar.
6. TBL. 1995 VIKAN 15
BRJOST