Vikan - 20.06.1995, Blaðsíða 52
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
NÝJUNG FRA
JOICO
Isumarbyrjun var staddur hér á
landi Steve Stefano, stofnandi
Joico hársnyrtivörufyrirtækisins
bandaríska. Stefano er miðaldra, með
grásprengt hár og skegg, snyrti-
mennskan uppmáluð og hitti blaða-
mann Vikunnar á Hótel Sögu klæddur
vönduðum, dökkum jakkafötum.
Hann er lærður hárskeri og starfaði
sem slíkur í nokkur ár. Honum fannst
hársnyrtivörurnar, sem hann notaði,
ekki góðar og fyrir tæpum fjörutíu ár-
um setti hann á fót verksmiðju í 100
fermetra húsnæði. Núna eru fermetr-
arnir orðnir 175.000 beggja vegna Atl-
antsála. Joico hársnyrtivörurnar eru
seldar í tæplega 30 löndum og hér á
landi eru þær seldar á tæplega 100
hárgreiðslu- og rakarastofum.
Hársnyrtivörurnar eru ekki seldar í
verslunum og lyfjabúðum þar sem
Stefano leggur áherslu á að hár-
greiðslufólk miðli viöskiptavinunum af
þekkingu sinni þannig að hver og einn
noti þær vörur sem henta. „Fólk hefur
mismunandi hár og það skiptir máli
hvaða sjampó og næringu það notar.“
Permanent, háralitur og hárþurrkur
skemma hárið og eru Joico vörurnar
endurbyggjandi fyrir skemmt hár.
Nýjungin hjá Joico er Altima hár-
næringin sem kemur í veg fyrir raka-
tap hársins sem ýmsir þættir stuðla
að svo sem loftmengun og þegar hár-
ið er greitt með aðstoða hitatækja en
þá verður það líflaust, þurrt og stökkt.
Altima flytur raka djúpt inn í hárleg-
ginn og lokar hann þar inni auk þess
sem hárnæringin inniheldur nauðsyn-
legar fitusýrur sem eru vörn gegn
skaðlegum áhrifum umhverfisins.
Einnig inniheldur hún náttúrulega sólar-
vörn, kemur í veg fyrir flóka og rafmagn
í hárinu og hefur pH gildið 4,5 - 5,5. □
Til gamans birtum viö hér fyrir neó-
an myndir af fjórum stúlkum, sem
meistaraliö Joico fékk aö hafa
hendur í hárinu á, og sýnum breyt-
inguna sem varö á þeim.
52 VIKAN 6. TBL. 1995