Vikan


Vikan - 20.06.1995, Síða 62

Vikan - 20.06.1995, Síða 62
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ JÓNA A FRH. AF BLS. 54. Auðvitað er það rétt hjá Láru að ef barn byrjar að draga aðra á asnaeyrunum með ósannsögli og ósvífni þegar á barns aldri eins og hann er full ástæða til að álykta sem svo að í viðkomandi barni kunni að búa mögulegur stórlygari framtíðarinnar ef ekkert breytist við tiltal og leiðsögn. RAUNVERULEIKINN OG RANGHUGMYNDIR Hitt er svo annað mál að börn, sem hafa mikið ímynd- unarafl, geta tekið sér skáldaleyfi af og til og krydd- að frásagnir sínar án þess að þau séu endilega óheið- arleg eða óráðvönd í eðli sínu. Hvað varðar son Láru þá er hann náttúrlega löngu kominn af smábarnaaldri og heldur áfram að skrökva, eins og slíkt atferli sé eðli- legasti hlutur í heimi. Hann virðist jafnframt rugla saman raunveruleika og ranghug- myndum og búa úr þeim sjálflægar staðreyndir, sem hann flytur til annarra blygð- unarlaust, eins og hann sé bæði veruleikafirrtur og sið- laus. TÍMI HJÁ GEÐLÆKNI EÐA SÁLFRÆÐINGI Lára spyr hvort hægt sé að gera eitthvað til að hjálpa honum og þá væntanlega til þess að leiða hann um leið út úr þeim neikvæða veru- leika sem hann virðist gagn- tekinn af. Eðlilegast væri að drengurinn fengi tíma hjá geðlækni eða sálfræðingi. Það er sennilegt að annar hvor fagmaðurinn muni finna út að þessi lygaárátta sé sjúklegt fyrirbæri eða hreint samvisku- og siðleysi sem mögulega gæti verið raun- veruleg staðreynd í þessu tilviki. ENGINN SKILNINGUR OG RANGT ATFERLI Lára spyr hvað hún geti gert sjálf til að uppræta þessar tilhneigingar hans. Það virðist augljóst á bréfi hennar að hún hefur bók- staflega gert allt sem í henn- ar valdi hefur staðið til að venja drenginn af ómerkileg- heitunum. Ekkert hefur þó ennþá opnað skilning hans á því að hann stundi rangt at- ferli sem komi illa við þá sem eru honum kærir. Hann verð- ur til þess með framferði sínu og framkomu að særa þá og svekkja og þykir það í góðu lagi. EKKI SIÐTÆKT ATFERLI AÐ UÚGA Það kemur að afleiðingum gerða hans því að rangt at- ferli hans hlýtur auðvitað á endanum að koma honum í koll við einhverjar aðstæður. Ekki síst vegna þess að hann verður stöðugt til þess að bregðast trausti annarra á þennan óþægilega og nauðaómerkilega máta. Hann er með þessu að safna glóðum elds að höfði sér. Best er því, eins og áður sagði, að fá fagfólk til að upplýsa Láru um hvað raun- verulega valdi þessari lyga- þráhyggju drengsins. Það er ekki siðtækt sjónarmið að álíta að það sé eðlilegt að skrökva og blekkja. Allir vita auðvitað að megintilgangur slíkrar hegðunar er að afla sér ávinninga og trausts á fölskum forsendum. ÓHEPPILEG UPPELDISÁHRIF SVIKA OG PRETTA Auðvitað hefur Lára áhyggjur af því að sonur hennar sé að skapa uppeld- islegar hættur fyrir systkini sín með því að vera þeim ófullkomin og ómerkileg fyr- irmynd. Börn geta orðið fyrir mjög óheppilegum áhrifum frá þeim sem þeim eru eldri og klókari. Sérstaklega er þó hættulegt ef þeir, sem þau treysta og virða, leggja sig f líma við að breyta heilbrigðri hugsun þeirra og eðlilegu siðamati. Börn eiga ekki að þurfa að sitja undir svikum og prettum. ÁHRIFAMÁTTUR SKRÖKVARANS Það er því mjög slæmt ef stöðugt eru hafðar fyrir börn- um rangfærslur sem þjóna engum öðrum tilgangi en að hagræða sannleikanum sér í hag. Það er engu barni hollt að hafa skrökvara sem fyrir- mynd í sínu daglega lífi. At- ferli barna mótast mest af þeim sem þau umgangast að staðaldri í mikilli nálægð. Allar fyrirmyndir eru því til- neyddar til að sýna persónu- leika barna þá virðingu og þann sóma að bjóða honum ekki upp á lygar. Ef að svo illa vill til að viðkomandi verður þrátt fyrir öðruvísi ásetning ber að lygum þá á sá hinn sami að leita sér hjálpar strax. Því áhrifamátt- ur skrökvarans er mikill og neikvæður. Skrökvarari veld- ur öðrum tjóni. Sonurinn get- ur því haft slæm áhrif á syst- kini sín ef hann kemst áfram upp með að Ijúga án ábyrgð- ar og fær ekki viðeigandi hjálp. TUNGULIPURÐ SKRÖKVARANS OG FAGURGALI Það er oft mjög erfitt að sjá við stórlygurum vegna þess að þeir eru sérfræðing- ar í því að fá aðra til að treysta sér með tungulipurð sinni og fagurgala. Skrökvar- ar eru alls staðar til vand- ræða og skapa ótrúlegar fyr- irstöður í samskiptum fyrir hvern þann sem að ósekju verður bitbein þeirra. Það er því mikilvægt ef við verðum vör við það að þeir, sem við unnum, fara að temja sér að Ijúga að við bendum þeim strax á að slíkt sé rangt. INNRI AUÐUR OG TRÚMENNSKA Það er mjög átakanlegt að þurfa að búa með lygara. Það er því sérstaklega að- kallandi fyrir Láru að fá sem fyrst hvíld frá ónauðsynleg- um og villandi lygum sonar- ins. Hann þarf að vita að erf- iðleikar okkar geta margfald- ast ef við erum ekki heiðarleg og sönn. Eða eins og áreiðanlegi drengurinn sagði fyrir stuttu. „Elskurnar mínar, ég hef ekki sagt ósatt orð frá fermingu vegna þess að ég sá fljótt að það var fáránlegt og neikvætt að Ijúga. Eg sá það jafnframt á svipuðum tíma að ef ég sleppti öllum lygurn myndi ég eignast innri auð heiðarleika og trúmennsku. Slíkur auður er partur af þeim auði sem getur gert okkur rík sem manneskjur og þess vegna ákvað ég að eignast hann ungur. Ég lýg aldrei og er því stöðugt að auka við mannlega auðinn.“ Með vinsemd, Jóna Rúna HRINGDU INN LAUSNARORÐ KROSSGÁTU VIKUNNAR OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÓKA- VERÐLAUN ■ Það eina sem þú þarft að gera þegar þú hefur ráðið krossgátuna er að hringja í Fróða-línuna 99 1445 og gefa upp lausnarorð gátunnar auk nafns þíns og heimilisfangs. Þann 20. mai drögum við svo út nöfn fimm heppinna lesenda og hlýtur hver þeirra fjórar bækur frá Fróða hf. EITT SÍMTAL 901 1445 Lausn sí&ustu krossgátu + + + + + + + + A+ Æ+ E + KO+K + + + + + + ÞAÐ + VIÐRAR + A + + + + + + + MIKILL + SKEL + + + + + + + ELO + LAGKAKA + +G + + E + NIDUR+E + + K + SKELFIR+ + N+ÆFINGIN + ORELT + GJARÐAR + K+ J + LEGÁTAR + REIKAR + VÁ MAT + R + + ESÓP+IP+ATEL + NTB+EGILL + F.ÖR.MÆLA + + ILLRÁÐÖ+ÍÖRAUR+ + + R + AÁ + SKRAUT + GRAFA RANNSAKA + FLANA+RYK STOKAÐAR + AU + ÁRA + RK + AMA + H + PÖRRA + + U+ I + HRAÐALL+F + + FRIGGRS + + R+ FJÓN + SALERNI + K MA1 + MÖD + BÖL + + + ANGA ÁLM + ÁTAL + LAUSN + NOT + LUX + ARÍA + UMLIDALA + TROS + ANNAÐ + AÐ+ + F + + A + FLÓN + DL+AF + NÖLÓ + FÁRÁÐA + LEÐUR + JÓEL + + S1NA + LEIÐ + ATÓMIÆ BRAKAR + AGN + FRÁ T E K T H R E I N S K I P T 1 N Nl+ A L K I Lausnarorö: HREINSKIPTINN 62 VIKAN 6. TBL. 1995

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.