Vikan


Vikan - 20.06.1995, Síða 67

Vikan - 20.06.1995, Síða 67
Sigling á milli eyja Breiöa- fjaröar er ógleym- anleg. mndanfarin sumur hafa hjónin Hrafn- V___y hildur Garöarsdóttir og Sigurjón Þórðarson rekiö Sveitahóteliö Flókaiund á Barðaströnd, friðsælum reit þar sem íslensk náttúra vef- ur gesti sína dúnmjúkum örmum veðursældarinnar. Lygna er algeng á Vatnsfirði og sjórinn er þar bæði hreinni og minna saltur en víða annars staðar. Aðstæð- ur til óhefðbundinna siglinga og íþróttaiðkunar á sjó eru þvi ákjósanlegar á þessum slóðum. í fyrra haust var farin til- raunaferð á kajökum um Vatnsfjörðinn og næsta ná- „Hvert skal halda?!“ Á sjóskíöum á Breiöafiröi. Hann var ekki dreginn af kajak .. . grenni. Sex manns, ungt fólk á aldrinum frá 9 ára, settust um borð í jafnmarga kajaka undir leiðsögn þaulreynds siglingakappa. Sigit var milli eyja á Breiðafirði í fuglafylgd líkt og sjálfur Flóki væri þarna á ferð, inn eftir eyði- fjörðum og meðfram tignar- legri klettaströnd „a la“ Vest- fjarða. Það er skemmst frá því að segja að ferðin gekk vel. Svo vel að nú hefur verið ákveðið að fara einar þrjár slíkar ferðir frá Flókalundi í sumar. Og fleiri eftir því hversu margir vilja reyna þetta æv- intýri. Margs konar hug- myndir eru uppi um feröa- leiðir og gistingu á leiðinni. Jafnvel kemur til greina að Kajaksiglingin undirbúin. Flókalundur í baksýn. tjalda á einhverjum Breiða- fjarðareyjanna eða inni í stórbrotnum eyðifjörðum. En víst er að með þessum þögla ferðamáta kemst mað- ur í ævintýralega snertingu við náttúruna og sér landið frá allt öðru sjónarhorni en ef ferðast væri á hefðbundinn hátt eftir þjóðvegum. Tveir fararstjórar, reyndir siglinga- menn, verða með í för og búist er við að alls geti verið milli 6 og 12 manns í hópi og ferðirnar frá einum degi upp í fjórtán. Farangursrými er í kajökunum en einnig getur vélknúinn bátur fylgt ferða- löngunum með búnað þeirra og vistir. Meðfylgjandi myndir tók Kristján Maack í ferðinni síð- astliðið haust. Þær tala sínu máli. □ FERÐALOG

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.