Vikan


Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 14

Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 14
Lífsreynslusaga /Áj J&0 Hann var lífmitt og yndi, en lífið heldur áfram... sælt í stofunni þar sem . Húsgögnin eru gömul og þegar klukkan á slær minnir það á gam/a nan, sem situr á móti tæplega sjötug. Fyrir árum varð hún ekkja. Iþessu húsi hef ég lifað gæfuríku Iífi í mörg ár. Hér hefur hljómað bæði barnshlátui og -grátur. Hér ólust börnin mín upp og héðan fóru þau út í lífið, full- orðnar, sjálfstæðar mann- eskjur. Við vorum samstiga í uppeldi þeirra, maðurinn minn og ég. Ég var lánsöm þegar ég hitti manninn minn.Við vorum ung og ást- fangin og fyrstu búskaparár okkar bjuggum við við þröng- an kost í litlu húsnæði. Auð- vitað vissum við ekki hvað framtíðin bæri í skauti sínu, en aldrei þorði ég að vona að líf okkar yrði jafn hamingju- ríkt og það reyndist verða. Við eignuðumst okkar eigið hús og fljótlega gátum við leyft okkur að kaupa bíl. Smátt og smátt eignuðumst við alla þá hluti sem þarf til að skapa fallegt og notalegt heimili. Við eignuðumst síðar meir sumarbústað, þar sem við eyddum sumrunum, hvenær sem frístundir gáfust. Ég get ennþá séð manninn minn sáluga fyrir mér þar sem hann situr í gamla stólnum sínum í sumarbústaðnum. í sveitinni áttum við margar okkar bestu stundir. í dag er ég þakklát fyrir hversu oft ég sagði manninum mínum hvað mér þótti vænt um hann og hvað ég átti alltaf auðvelt með að segja honum allar mínar hugsanir, sérstaklega þær góðu. Við eignuðumst saman fjögur börn og sorg okkar var stór þegar við misstum eitt þeirra aðeins tveggja ára að aldri. En þá gátum deilt sorginni saman og höfðum hin þrjú börnin til að hugsa um. Nú hef ég verið ekkja í nokkur ár og hef sætt mig við að lifa lífinu ein. Það er þess vegna sem mig langar til að segja sögu mína. Ég hugsaði sem svo að þeir, sem stæðu í mínum sporum gætu ef til vill lært eitthvað af því hvernig ég tók á mínum málum. Enginn getur komið í stað mannsins 14 míns, hvorki fjölskylda mín né vinir, en ég er sáttari við líf- ið nú en lengi eftir að maður- inn minn dó, sem gerðist mjög snögglega. Ég hef komist að því að það er ýmislegt sem ég get gert þrátt fyrir að verða orðin ein. Og svo á ég jú allar góðu minningarnar um manninn minn. Þegar manninum mínum leið illa einn morguninn datt okkur ekki í hug að eitthvað alvarlegt amaði að honum. Allavega grunaði mig það ekki. En læknirinn vildi láta leggja hann inn á sjúkrahús til rannsóknar. Ég fylgdi honum á sjúkrahúsið og horfði á eft- ir honum inn í skoðunarher- bergið. Þegar ég sá hann aft- ur var hann dáinn. Mér fannst það ótrúlegt. Átti erfitt með að skilja að maðurinn minn væri farinn og kæmi aldrei aftur. Það var mér svo mikið áfall að ég hefði ekki komist yfir næstu daga án læknishjálpar og ró- andi lyfja. Þetta bar svo brátt að; ég trúði ekki að hann væri dáinn og beið eftir því að vakna upp af vondum draumi og sjá manninn minn koma gangandi inn um dyrnar. En smátt og smátt varð ég að við- urkenna þessa staðreynd. Ég man næstum ekkert eftir deg- inum þegar hann var jarðað- ur. Öldruð tengdamóðir mín var óhuggandi, en ég reyndi að sýna stillingu, vissi að ég mátti ekki brotna saman. Nú fóru slæmir tímar í hönd. Ég sökk niður í þunglyndi, svaraði t.d. ekki í símann þeg- ar vinir mínir vildu hafa sam- band við mig. Oftar og oftar fannst mér ekki taka því að klæða mig og ég var hætt að þrífa mig. Ég borðaði mjög óreglulega og horaðist niður, mér fannst svo tilgangslaust að vera að elda mat fyrir mig eina. Ég gat ekki hugsað um neitt annað en manninn minn. Ég saknaði þess sárt að geta ekki setið og horft í fal- leg augu hans, hlustað á rödd- ina hans, strokið honum um vangann og skriðið í hlýjan faðm hans. Mér fannst ég al- gjörlega ein í heiminum og bjargarlaus. Ég vissi ekki hvaða hlutverki ég gegndi í tilverunni. Ég hafði lifað inni- haldsríku lífi með manninum mínum, nú fannst mér ég ekk- ert hafa að gera. Ég hafði allt of mikinn tíma til þess að sitja og hugsa. Ég hafði það ágætt peningalega, maðurinn minn hafði verið ríkisstarfsmaður og ég fékk makalífeyri eftir hann. Það hefði reynst mér erfitt að þurfa að fara út á vinnumarkaðinn, þar sem ég hafði aldrei unnið utan heim- ilisins. Við höfðum átt svo gott líf saman. Ég reyndi að segja við sjálfa mig að ég skyldi gleðjast yfir góðu minningum og þakka fyrir öll árin sem við fengum að eiga saman. En ég átti svo ákaf- lega erfitt með að sætta mig við að hann hafði farið svona allt of snemma og mér fannst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.