Vikan


Vikan - 25.06.1998, Síða 15

Vikan - 25.06.1998, Síða 15
Il árin okkar saman hafa verið of fá, þau höfðu ætt áfram eins og vindurinn. Við vitum öll að tilveru okkar hér á jörðinni lýkur einn góðan veðurdag, en það er alltaf erfitt að sætta sig við dauð- ann þegar hann bankar upp á fyrirvaralaust. Fyrstu jólin eftir andlátið voru hræðileg. Ég eyddi þeim með syni mínum og tengda- dóttur. Auðvitað vakti fyrir þeim að létta á sorg minni og gleðja mig, en líklega hef ég eyðilagt fyrir þeim hátíðina, ég gat ekki skilið hvernig þau gátu glaðst og hlegið þegar maðurinn minn var ekki með okkur til þess að taka þátt í hátíðahöldunum. Fjölskyldu minni og vinum var hætt að lítast á hversu langan tíma það tók mig að vinna úr sorginni og tóku nú til sinna ráða. Ein vinkona mín bankaði upp á og reyndi að sýna mér fram á að lífið héldi áfram, nú yrði ég að taka mig taki. En ég sagði henni að hún gæti trútt um talað. Hvernig ætti hún að skilja hvernig mér liði, hún sem átti manninn sinn ennþá. Dag einn kom sonur minn í heimsókn. Við töluðum sam- an og ég sat lengi og hugsaði eftir að hann var farinn. Þótt að maðurinn minn hafi verið þýðingarmesta manneskjan í lífi mínu mátti ég ekki gleyma þessum góðu börn- um mínum. Þau eru öll gift og ég á yndisleg tengdabörn, svo ekki sé minnst á barnabörn- in, sem eru átta talsins. í raun og veru er svo margt sem ég hef til að gleðjast yfir. Það er skemmtilegt að vera amma og ég er þakklát fyrir það að eiga mína góðu fjölskyldu og vini. Sonur minn hafði kom- ið með þá hugmynd að ég færi í ökutíma, tæki bílpróf og keypti mér lítinn bíl. Ég hélt að hann væri að gera grín að mér, gamalli konunni. Ég var nýbúin að selja bílinn okkar, mér kom ekki til hug- 'Lesandi segir frá ar að ég gæti nokkurn tímann orðið minn eiginn bílstjóri. Ég hló að hugmyndinni, fannst hún í rauninni alveg fáránleg. En svo fór ég að hugsa að ef til vill væri þetta alls ekki svo vitlaus hugmynd. Ég ákvað að slá til. Ég hafði aldrei á ævi minni sest undir stýri. Mín kynslóð leit þannig á að það væri eðlilegra að bflstjóra- sætið tilheyrði karlmannin- um. Ég man ennþá hvað maðurinn minn var stoltur þegar við keyptum nýja bfl- inn okkar, árið áður en hann dó. Hann var góður bflstjóri, ég var alltaf örugg í bílnum með honum. Ég hef nú lúmskan grun um það að ökukennarinn minn hafi ekki fundið til þessarar öryggis- kenndar með mér. Og ég er viss um að hann hefur ekki alltaf hlakkað neitt sérstak- lega til þegar hann kom og sótti mig í ökutíma. En hann stóð sig eins og hetja og gætti þess að hrósa mér og hvetja mig áfram. Mér fannst þetta nú satt að segja dálítið dýrt ævintýri, en þegar ég stóð með ökuskírteinið í höndun- um fannst mér það svo sann- arlega peninganna virði. Ég keypti mér lítinn bfl og nú get ég sest upp í bílinn og heim- sótt ættingja og vini hvenær sem mér dettur í hug. Bfllinn hefur gefið mér ótal mögu- leika á að gera tilveruna skemmtilegri og litríkari. Ef einmanaleikinn hellist yfir mig þá dríf ég mig í bfltúr. Nú er ég alls ekki að segja að allar ekkjur á mínum aldri geti tekið bílpróf og fjárfest í bfl. Ég geri mér grein fyrir því að ég er ein þeirra lánsömu í lífinu. Það, sem ég er að reyna að segja er að besta vopnið gegn sorginni, er að finna sér eitthvað sem maður getur gengist upp í, t.d.hluta- starf, eða sjálfboðaliðastarf hjá einhverju líknarfélag- anna. Það er margt gamalt fólk sem hefur það erfitt og er meira einmana en maður sjálfur. Það er gefandi að heimsækja það fólk, lesa fyr- ir það og stytta því stundir. Þannig er hægt að beina hugsununum inn á aðrar brautir, sjálfum sér og meðbræðrum sínum til gagns gleði.“ og Lcsandi segir Þórunni Stefánsdóttur sögu sína. Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breylt lífi þínu? Þér er vel- komið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætuin fyllstu nafn- leyndar. Heimilisfangið er: Vikan - „Lífsreynslusaga“, Seljavegur 2,101 Reykjavík, síinsvari 515 5690

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.