Vikan - 10.05.1999, Blaðsíða 8
Þrítugur vinur aftur
með bleiu
Bjarni Haukur Þórsson,
leikari, vakti mikla athygli í
sýningunni Hellisbúinn.
Ekki var laust við að sýning-
in kœmi við kaunin á mörg-
um og vekti umtal um sam-
skipti kynjanna. Bjarni
Haukur segir það ekki vera
neitt sérstakt sem hann vildi
síður vita um náungann en
man vel eftir atviki þegar
ónefndur vinur hans lagðist
inn á sjúkrahús.
„Hann þurfti að gangast
undir svona „kjallaraað-
gerð". Numinn var burt tví-
burabróðir sem er einhvers
konar bólga þarna niðri.
Hann þurfti að ganga með
bleiu á eftir sem skipt var
um reglulega á sjúkrahús-
inu. Hann lýsti því í smáat-
riðum þegar hann kom af
sjúkrahúsinu hversu óþægi-
legt það hefði verið að vera
aftur kominn með bleiu eftir
tuttugu og átta ára frelsi frá
þess háttar hlutum. Einnig
hafði hann orð á því að mest
hefði hann kviðið því að ung
og ákaflega falleg ganga-
stúlka yrði einhvern tíma
látinn skipta á honum því þá
hefði „besti vinurinn" getað
tekið eitthvað við sér og far-
ið að sýna viðbrögð. Það var
svo sem ekkert voðalega
gaman að hlusta á þetta en
verst var að hann kallaði
sjúkdóminn alltaf Arnór og
Bjarka í höfuðið á knatt-
spyrnutvíburunum frægu og
ég hélt um tíma að sjúkdóm-
urinn héti þessu nafni.
Einhverju síðar var ég
staddur í matarboði með
nokkrum læknum og fór þá
að tala um hversu voðalegur
sjúkdómur Arnór og Bjarki
væri. Þeir skildu auðvitað
ekki neitt og héldu lengi vel
að um einhvern nýjan og
sjaldgæfan sjúkdóm væri að
ræða."
Það á ekki dæma fólk
eftir skoðunum þess
Halldóra Bjarnadóttir,
hjúkrunarfrœðingur, skrifaði
pistla um kynlífí Dag og
þótti berorð og opinská.
Kynlíf hefur ígegnum tíðina
verið eitt afþeim málefnum
sem fólk á erfitt með að tjá
sig um og margir hafa litla
löngun til að rœða um það.
En er eitthvað sem hjúkrun-
arfræðingur sem allt þarf að
vita um starfsemi líkamans
vill ekki vita
um naung-
ann?
„Það er
þrennt sem
ég vil ekki
vita um fólk
og það er
hvað það
trúir á, hvað
það kýs og
hjá hverjum
það sefur.
Þetta eru
málefni sem
mér finnast
ekki koma
mér við og
þoli ferlega
illa að fólk
sé dæmt eftir því hvar það
stendur að þessu leyti. Fólk
er bara fólk og sem betur fer
eru engir tveir eins. Við höf-
um mismunandi smekk og
mismunandi skoðanir sem
er eins gott því annars væri
erfitt að lifa hér. Eg kannast
sjálf við fordóma af þessu
tagi og minnist þess að
ákveðið fólk hafnaði um-
gengni við mig af því það
hélt að ég hefði ákveðnar
stjórnmálaskoðanir. Þetta er
þröngsýni.
Auðvitað er fullt af hlut-
um sem mér koma ekkert
við í lífi fólks en ég er tilbú-
in að gleðjast með öðrum
þegar gengur vel og finna til
með þeim þegar gengur illa.
Ég lít svo á að verið sé að
leggja fólk í einelti þegar sí-
fellt er verið að áfellast það
og tala niðrandi um það. Ég
er vön því að standa upp og
láta vita að ég vilji ekki taka
þátt í slíku þótt ég hafi svo
sem orðið vör við að því sé
ekki vel tekið. Margir átta
sig ekki á að með þögninni
eru þeir að taka þátt í einelt-
inu. Bæði illmælgi urn ná-
ungann og það að bregðast
ekki við illmælgi tel ég ljóð á
ráði fólks."
Gerðu þér greiða og hafðu þetta fyrir sjálfa þig:
Magakveisu barnanna þinna og þitt eigið harðlífi.
Ýmis smáatriði sem eiga sér stað í hjónasænginni.
Ælur og ógeðslegan mat meðan verið er að borða.
fNákvæmar lýsingar á aðgerðum lækna á þínum skrokki.
Lýsingar á útliti þínu fyrst eftir langvarandi veikindi.
Langlokusögur af því hver sagði hvað við hvern þegar „ósvífni" maðurinn gekk
loks of langt.
Iítarlegar frásagnir af nefrennsli og slímuppgangi í síðustu flensu.
Vídeóið af fæðingu síðasta barnsins þíns.
Langar og óstjórnlega vel tíundaðar sögur af fæðingum.
Ættartölur raktar aftur til Egils Skalla-Grímssonar.
Söguþræðinum í framhaldssögu útvarpsins eða uppáhaldssápunni þinni í sjónvarpinu.
Frægðarsögur af börnunum þínum
8 Vikan