Vikan - 10.05.1999, Side 18
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Er-11íillí11 valinn
vio skóna, fötin, greiðslun
Frá því farsímavæðingin byrjaði hefur verið um það talað hversu duglegir íslendingar eru að tileinka
sér nýjustu strauma og stefnur í tækninni. Nú virðist hins vegar tæknileg fullkomnun hafa vikið ffyrir
hönnun og stíl. Augljóst er að ekki eru allir símar smart og þeir sem draga upp gömlu þykku kubbana
á kaffihúsi koma strax upp um að skynbragð þeirra á tískustrauma er ákaflega vanþroskað. Sumum
símum fylgir orðið framhlið í mismunandi litum sem skipta má út eftir því hverju símnotandinn klæð-
ist eða hvert hann er að fara.
Allt bendir til þess að
sérstök kvenna- og
karlalína sé að skap-
ast og í kvikmyndahúsum má
sjá nýja auglýsingu frá síma-
fyrirtæki. Þar sem ungur mað-
ur á uppleið klæðist fallegum,
Liv Bergþórsdóttir, mark-
aðsstjóri Tals segist sjá þess
greinileg merki að ákveðin
tískulína gildi í farsímum.
„í ár hefur grátt verið mikið
í tísku og silfurlitir og gráir
símar seljast betur en aðrir. Eg
vel sniðnum jakkafötum og er
sáttur við heildarsvipinn þegar
hann sér að síminn passar vel
við klæðnaðinn. Þessi tfsku-
sveifla er skiljanleg þegar nýj-
ustu farsímarnir eru skoðaðir.
Þeir eru liprir, léttir, og falleg-
ir. Hugsanlega má líkja mun-
inum við blöðruskóda og
BMV. Hversu skynsamur og
hófsamur sem maður vill vera
í kröfum sínum til aukinna
lífsgæða verður að viðurkenna
að BMV höfðar heldur meira
til fegurðarskynsins en hinn.
hef heyrt að bleikt sé sumar-
liturinn í ár og er spennt að
vita hvort bleikir símar fylgi,"
segir Liv sposk.
Þrennt skiptir máli
„Símaframleiðendur tala
um að það sé þrennt sem
skiptir máli. Stærðin er mikil-
væg, margir vilja og þurfa litla
síma sem hentar að geyma í
töskum en aðrir vilja frekar
stærri og meira áberandi tæki.
Liturinn er, eins og ég sagði
áðan, einnig atriði. Skjárinn er
svo þriðja aðalatriðið. SMS
skilaboðakerfið nýtur æ meiri
vinsælda en það er kerfi sem
gerir þér kleift að senda texta-
skilaboð milli síma. Ýmist
með því að fara inn á heima-
síðu símafyrirtækisins eða í
tölvupóstinn þinn, hringja í
símann sem þú vilt senda boð
í og prenta inn skilaboðin. Til
að auðvelt sé að lesa texta-
skilaboð af skjánum verður
hann að vera skýr og þess
vegna hefur stór framleiðandi
eins og t.d. Nokia ekki farið út
í að minnka skjáinn þótt
krafan hafi verið sú að
minnka símana. A
nýjustu símun-
um er hægt að slá
boðin beint inn á
símtækið. Þú getur
einnig valið að fá
tölvupóstinn þinn
sendan í símann
og ef það hent-
ar þér getur þú
tiltekið frá
hvaða hóp þú
vilt fá áfram-
sendan
póst og á
hvaða
tíma.
Vegna þess-
ara auknu tengsla tölv-
unnar og símans fer
þjónusta símafyrir-
tækisins að
skipta
meira máli en símtækið. GSM
símar í dag geta allir það
sama, notandinn þarf bara að
tileinka sér og nýta möguleika
símans. Unglingarnir virðast
gera það strax og þau eru
flestir eldfljótir að slá skilaboð
inn á símann og senda. Aðrir
þurfa lengri tíma og sú leið
hefur verið farin hjá Tal að
bjóða upp á kvöldnámskeið í
notkun símanna. Elsti nem-
andi okkar fram að þessu var
85 ára.
En vegna þess að símarnir
búa orðið allir yfir sömu
tækni skiptir útlitið
einmitt meira máli.
Motorola hefur t.d.
fært útlitshönnun sinna
síma til Ítalíu en ítalir
eru mjög framarlega í
tískuhönnun.
Motorola er nýbú-
ið að setja á
markað
síma sem
er svo lítill
að hann pass-
ar vel í innan-
ávasa á jakka.
Ég hef þá tilfinningu
að litlu símarnir henti
karlmönnum betur.
Konur geyma símann
gjarnan í handtöskunni
og ef hann er of lítill ná
þær ekki að finna hann
áður en sá sem hringir gefst
upp á að bíða eftir svari.
18 Vikan