Vikan - 10.05.1999, Side 24
Texti: Steingeróur Steinarsdóttir
Öll danska þjáðin bfður
erfingja og
Jóakims
étt fyrir páska til-
kynnti danska kon-
ungshöllin að Alex-
andra eiginkona yngri prins-
ins, Jókims, væri ófrísk eftir
þriggja og hálfs árs hjóna-
band. Alexandra hefur unn-
ið hug og hjörtu Dana svo
barnið er sannkallað óska-
barn, ekki bara þeirra hjóna
heldur þjóðarinnar allrar.
Margir íslendingar hafa
ekki síður fylgst með til-
hugalífi, brúðkaupi og gengi
Alexöndru en Danir. í
fyrstu veltu margir því fyrir
sér hvernig sjálfstæð, metn-
aðarfull og vel menntuð ung
nútímakona tæki því að vera
bundin á klafa stífra hirð-
siða. Flestir eru minnugir
þess hvernig opinbera lífið
og ágangur fjölmiðla fóru
með Díönu prinsessu, ekki
síst vegna þess að prinsess-
urnar eru oft bornar saman
og þykja um margt líkar,
báðar fágaðar, fallegar, hlýj-
ar og bera geislandi per-
sónu. Tígulleiki Alexöndru
og hlýja við opinberar at-
hafnir þykir einnig um
margt minna á Díönu. Veltu
því sumir fyrir sér hvort
danska prinsessan ætti eftir
að eiga jafn erfitt og sú
breska. Því er skemmst frá
að segja að Alexandra virð-
ist eins og sniðin að dönsku
hirðlífi en danska hirðin er
mun frjálslegri og heimilis-
legri en sú breska.
Alexandra er mikil
barnagæla og hlakkar
til að verða móðir
Þessi sérstæða og fallega
kona er að einum fjórða
kínversk. Faðir hennar er
kaupsýslumaður frá Hong
Kong, af breskum og kín-
verskum uppruna, en móðir-
in austurrísk. Alexandra á
tvær yngri systur en þær eru
báðar evrópskari yfirlitum
en hún. Þær systur eru ákaf-
lega nánar og nota hvert
tækifæri sem gefst til að
spjalla saman eða hittast.
Yngri systurnar gleðjast nú
ákaflega fyrir hönd þeirrar
elstu og segja hana mikla
barnagælu sem alla tíð hafi
langað að eiga börn.
Alexandra gekk í Eyja-
skólann (Island School) í
Hong Kong. Skólinn er
þekktur fyrir strangan aga
og hugsanlega hefur veran
þar búið hana undir líf undir
stöðugri smásjá fjölmiðla og
almennings. Hún spilaði
með hokkíliði skólans og
þótti þó nokkuð efnilegur
leikmaður. Strax á ungaaldri
lýsti Alex, eins og prinsess-
an er gjarnan kölluð, því yfir
að hún hygði á starfsframa. I
Hong Kong er viðskiptalífið
blómlegt og flestir, sem
metnað hafa og dugnað,
reyna fyrir sér í viðskiptalífi
borgarinnar. Alex var engin
undantekning frá því og sagt
var að hún hefði unnið nótt
og dag hjá hinu alþjóðlega
fjárfestingafyrirtæki sem
hún vann hjá til að sanna
getu sína. Elja hennar og
iðni borgaði sig því hún
vann sig upp frá að vera að-
stoðarstúlka í að vera virtur
og mikils metin aðstoðar-
framkvæmdastjóri.
Sagt var að Alexandra
hefði átt í þó nokkru sálar-
stríði áður en hún ákvað að
játast prinsinum og hún hafi
gert sér fyllilega grein fyrir
að hún yrði að færa mikla
fórn. Þótt Danir séu frjáls-
lyndir þykir ekki hæfa að
meðlimir konungsfjölskyld-
unnar vinni launaða vinnu
utan skyldustarfanna sem
fylgja titlunum. Líkt og
flestir sem gegna opinberum
stöðum verða hjónin Alex-
andra og Jóakim stöðugt að
passa upp á ímynd sína. Al-
exandra er ekki óvön því
þar sem að framkvæmda-
stjóri fjármálafyrirtækis í
Hong Kong má tæpast
vamm sitt vita, enda mynda
það skaða ímynd fyrirtækis-
ins ef svo væri ekki.
Margrét Danadrottning
og maður hennar, Hinrik
prins, eru sögð yfir sig hrifin
af tengdadótturinni og
Ingríður drottning, móðir
Margrétar, líka. Friðrik
krónprins og yngri bróðir
hans, Jóakim, eru miklir vin-
ir og krónprinsinn hefur tek-
ið konu bróður síns ákaflega
vel. Engin ský eru því sjáan-
leg á heiðskírum himni
dönsku konungsfjölskyld-
Sagt var að Alexandra liefði liikað áður en luin játaðist prinsin-
iiin. Hér er liiin augljóslega búin að gera upp hug sinn.
24 Vikan