Vikan - 10.05.1999, Page 46
Þýð: Steingerður Steinarsdóttir
a
Lestu
William opnaði aðra kókdós og tók sér hlé frá
að slá garð ömmu sinnar. „Ég gæti svo sem
gefið þér peninga ffyrir þessum bíl vinur en þú
átt eftir að meta hann mun betur ef þú vinnur
fyrir honum," hafði amma hans sagt í hverri
viku þegar hún rétti honum 3.500 krónur fyrir
að slá garðinn. Vinna sér inn var leiðindahug-
tak að mati Williams. Það hlaut að vera ein-
hver auðveldari og þægilegri leið til að kom-
ast yfir þetta 1962 módel af Ford pallbíll sem
nú var til sölu á bílasölu Lukku Láka. Hann
vantaði enn 42.000 kr.
fauðgar
ranaann
Þegar William hafði
lokið við að slá, settist
hann alltaf við eld-
húsborðið hjá ömmu sinni
og fékk sér að borða með
henni. Hún var lærður bóka-
safnsfræðingur en var nú á
eftirlaunum.
„Hefurðu haft tækifæri til
að kíkja eitthvað í reyfarann
góða sem ég gaf þér Willi-
am?"
„Já, hann var góður," laug
William.
Amma hans hafði gefið
honum hrúgu af bókum í
gegnum árin en hann hafði
enga þeirra lesið enn.
„Ég er svo ánægð með að
þú skulir hafa áhuga á bók-
um. Lestur auðgar andann
William minn," sagði hún.
Það eina sem William
hafði verulegan áhuga á að
lesa voru íþróttasíður dag-
blaðanna en þær voru svo
nálægt atvinnuauglýsingun-
um í sumum blöðum að það
fældi hann frá.
„Hver er uppáhaldsrithöf-
undurinn þinn? Þú átt nú af-
mæli bráðum eins og þú
46 Vikan
veist drengur minn." Amma
hans brosti kankvíslega.
William stundi innra með
sér. Hann hefði svo sem get-
að sagt sér sjálfur að gamli
bókaormurinn myndi troða
upp á hann meira lesefni.
„Það er þessi Samúel
Twain náungi, býst ég við."
Það var eina nafnið sem
hann mundi í svipinn.
„Þú meinar Mark Twain
vinur. Samúel Langhorn
Clemens var raunverulegt
nafn hans. En þú hefur góð-
an smekk vinur. Hefurðu
lesið Tom Sawyer í útlönd-
um?"
„Nei, það er sú eina sem
mig vantar," William var
fljótur að svara.
Hann leit í kringum
sig í rúmgóðu húsi
ömmu sinnar. Allt
fullt af antík.
Tiffany's lampar,
postulíns-
brúður,
perlu-
skreyttar
handtösk-
ur og eld-
gamlar bækur auðvitað. Á
hillu í borðstofuskápnum
voru krúsir með glerkúlum
sem pabbi hans hafði leikið
sér að þegar hann var barn.
William hafði farið á upp-
boð þar sem drasl eins og
þetta seldist fyrir fleiri þús-
undir króna.
Meðan hann virti fyrir sér
Iitríkar og fallega skreyttar
glerkúlurnar, inni í sumum
voru dýrastyttur á floti, fór
að mótast í huga hans áætl-
un sem miðaði að því að
fljótlega sæti hann undir
stýri á pallbílnum gamla og
flotta.
„Ég kem til með að hafa
heilmikinn tíma til að lesa í
þessari viku, amma. Get-
urðu ekki lánað mér ein-
hverja góða bók?" Spurði
William.
Amma hans varð í senn
undrandi og glöð á svip.
„Nú, auðvitað. Það væri mér
sérstök ánægja." Þegar hún
stóð upp og gekk inn í stof-
una að bókaskápnum þreif
Willam eina krúsina með
glerkúlunum og faldi hana
úti á veröndinni. Þegar hann
fór svo stuttu seinna tók
hann krúsina með
sér.
William eyddi
vikunni í að leita
uppi antíkverslanir
og flóamarkaði á
gulu síðum
\ símaskrár-
innar og
leitaði í
smáauglýs-
ingunum, það reyndist meiri
lestur en hann hafði lagt á
sig árum saman.
Hann ætlaði að fara á
flóamarkaðinn nokkrum
götum frá húsi ömmu sinnar
þegar hann væri búin að slá
hjá henni á miðvikudag sem
var dagurinn fyrir afmælis-
daginn hans. Flóamarkaður-
inn var líka þægilega nálægt
bílasölu Lukku Láka þannig
að ef hún hefði ekki tekið
eftir hvarfi krúsarinnar eða
léti ekki í Ijós neinar grun-
semdir vegna þess gæti hann
látið til skarar skríða. Það
eina sem hann þyrfti að gera
væri að lauma út nokkrum
smáhlutum í viðbót og þá
fengi hann nóga peninga.
Amma hans kom til hans
þar sem hann ýtti sláttuvél-
inni á undan sér upp holótta
heimreiðina að húsinu
hennar. Hann var með hug-
ann allan við dagdrauma um
ökuferðir í pallbílnum og
gerði sér í hugarlund ískrið í
hjólunum þegar hann renndi
sér í beygjurnar og hann var
jafnvel farin að herma eftir
vélarhljóði.
„Þarna er afmælisbarnið,"
sagði amma hans um leið og
hún heilsaði honum. „Ég er
búin að baka uppáhalds
súkkulaðikökuna þína og
svo er ég með smágjöf sem
mun koma þér skemmtilega
á óvart en hana færðu þegar
þú ert búin að slá. "
Hún virtist svo sannarlega
ekki tortryggin, bara hress
og kát eins og venjulega.
>*'